Viðskipti innlent

Vaxta­hækkun sé röng og illa tíma­sett

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, segir vaxtahækkun leggja eina ferðina enn auknar byrðar á skuldsett heimili sem hafa þegar greitt hátt verð fyrir baráttuna gegn verðbólgunni.
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, segir vaxtahækkun leggja eina ferðina enn auknar byrðar á skuldsett heimili sem hafa þegar greitt hátt verð fyrir baráttuna gegn verðbólgunni. Vísir/Vilhelm

Forseti Alþýðusambands Íslands segir vaxtahækkun við núverandi aðstæður vera ranga, illa tímasetta og leggja aukna byrði á skuldsett heimili landsins. Allt bendi til þess að forsendur kjarasamninga frá árinu 2024 bresti.

Þetta kemur fram í frétt á vef Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, segir að skýr merki séu um að hagkerfið sé að kólna, atvinnuleysi sé að aukast og að heimili hafi þegar búið við gríðarlega vaxtabyrði árum saman.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í morgun að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Þeir eru nú 8 prósent. Fjórir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en einn vildi halda vöxtum óbreyttum.

Finnbjörn segir rökstuðning Seðlabankans fyrir vaxtahækkuninni vekja athygli en talsmenn bankans sögðu að aukning mældrar verðbólgu hefði fyrst og fremst litast af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum.

„Hærri stýrivextir lækka ekki opinber gjöld. Þeir stöðva ekki stríð. Þeir lækka ekki heimsmarkaðsverð á olíu,“ er haft eftir Finnbirni í fréttinni.

Hins vegar geri þeir húsnæðislán dýrari, þrengi að ráðstöfunartekjum heimilanna, dragi úr framkvæmdum og geri húsnæðisuppbyggingu enn erfiðari.

Röng ákvörðun á versta tíma

Vaxtahækkunin sé röng ákvörðun á versta tíma en eftir nokkra daga liggi verðbólgumæling ágústmánaðar fyrir og allt bendi til þess að forsendur kjarasamninganna frá 2024 bresti.

Verkalýðshreyfingin geti ekki horft fram hjá þeirri staðreynd að stýrivextir standi í átta prósentum en fyrir rúmum tveimur árum hafi launafólk verið beðið um að treysta því að hófsemi í launakröfum myndi skapa grundvöll fyrir lægri vexti og meiri stöðugleika.

„Það verður ekki samþykkt að svarið við brostnum forsendum sé enn meiri fórn af hálfu sama fólks. Launafólk á Íslandi á ekki að borga enn einu sinni fyrir mistök sem það ber ekki ábyrgð á,“ er haft eftir forseta ASÍ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×