Langmæðgur vilja sjá – frá Flatey til den Haag Guðrún Marta Jónsdóttir og Guðrún Marta Ársælsdóttir skrifa 20. ágúst 2026 15:02 Við nöfnur erum langmæðgur. Gunna eldri er 79 ára og horfir yfir Breiðafjörðinn frá Flatey. Gunna yngri er 27 ára og hjólar í skólann í Haag. Það eru 52 ár á milli okkar og við höfum alist upp við talsvert ólíkar aðstæður. Önnur okkar tilheyrir kynslóðinni sem sá Ísland opnast út í heim. Hin tilheyrir kynslóðinni sem ólst upp við að heimurinn stæði henni opinn. Við erum ekki sammála um allt en um eitt erum við sammála: Við viljum fá að sjá hvaða samningur Íslandi stendur til boða við Evrópusambandið. Gunna eldri hefur lifað tímana tvenna. Á hennar ævi hefur Ísland breyst úr tiltölulega einangruðu samfélagi í opið og alþjóðlegt samfélag. Íslendingar hafa sótt sér menntun og atvinnu út fyrir landsteinana, ferðast, flutt út og heim aftur og tengsl okkar við aðrar Evrópuþjóðir orðið sífellt nánari. Gunna yngri lifir afrakstur þeirrar þróunar. Hún stundar framhaldsnám í Haag og hefur í námi sínu tvisvar fengið styrki frá Evrópu. Fyrir henni er Evrópusamstarfið því ekki fjarlæg hugmynd eða stofnun í Brussel. Hún hefur sjálf notið þeirra tækifæra sem samstarfið hefur skapar. En Haag er ekki endilega framtíðarheimilið. Gunna yngri vill búa á Íslandi. Og þegar hún horfir heim hugsar hún um það sem bíður hennar kynslóðar þar: Hvernig verður að kaupa sér heimili? Hvað kostar að taka lán? Hvernig verður að byggja upp líf og fjölskyldu í landi þar sem háir vextir hafa lengi verið hluti af veruleikanum? Hún veit ekki hvort aðild að Evrópusambandinu er svarið við þessum spurningum. Hvorug okkar veit það í raun, en það er einmitt málið. Það er auðvelt að gleyma því að margt af því sem Gunna yngri og hennar kynslóð telja sjálfsagt gerðist ekki af sjálfu sér. Fyrri kynslóðir tóku ákvarðanir um að opna Ísland og tengja það nánar öðrum Evrópuþjóðum. Þær ákvarðanir voru ekki allar óumdeildar á sínum tíma. Nú stöndum við aftur frammi fyrir vali um samband Íslands við Evrópu. Hvorug okkar veit hvernig hún mun greiða atkvæði um endanlega samning um aðild Íslands að Evrópusambandinu, enda liggur enginn aðildarsamningur fyrir. Við vitum ekki hvað Ísland gæti samið um, hvaða sérlausnir gætu náðst eða hvort niðurstaðan yrði nógu góð til að við vildum segja já. En við vitum að við viljum vita. Gunna eldri hefur lifað nógu lengi til að vita að breytingar þurfa ekki að vera ógn. Ísland hefur ekki orðið minna íslenskt við það að opnast og tengjast umheiminum. Gunna yngri nýtur í dag þeirra tækifæra sem sú þróun hefur skapað – en vill á endanum koma heim. Hennar kynslóð mun lifa lengst með þeim ákvörðunum sem við tökum nú. Þess vegna vill Gunna eldri ekki loka dyrum sem kynslóð Gunnu yngri gæti viljað ganga inn um. Og Gunna yngri vill fá að sjá hvað er hinum megin áður en hún ákveður hvort hún vilji ganga inn. Hvort sem horft er yfir Breiðafjörðinn frá Flatey eða hjólað í skólann í Haag er niðurstaðan því sú sama: Við langmæðgur segjum já til að sjá. Höfundar eru langmæðgur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar