Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson skrifar 20. ágúst 2026 07:16 Um eina algengustu hugsanaskekkju okkar „Viltu hafa rétt fyrir þér eða komast að hinu rétta?“ Þessari spurningu getur verið óþægilegt að svara en hún er gagnleg þegar við tökum mikilvægar ákvarðanir. Mannshugurinn er nefnilega ekki eins hlutlaus og við viljum gjarnan halda. Við túlkum upplýsingar, vegum þær og metum í ljósi þess sem við vitum, trúum og höfum áður upplifað. Þar geta ýmsar hugsanaskekkjur haft áhrif án þess að við gerum okkur endilega grein fyrir því. Eftir fáeina daga göngum við til kosninga um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Slík ákvörðun er meðal þeirra stærstu sem þjóð getur tekið. Hún kallar á yfirvegaða umræðu þar sem staðreyndir, rök og gagnrýnin hugsun fá að njóta sín. Við sjáum það sem við viljum sjá Ein algengasta hugsanaskekkjan birtist þegar við metum upplýsingar sem tengjast skoðunum sem við höfum þegar myndað okkur. Við eigum þá til að veita því meiri athygli sem styður afstöðu okkar en því sem ögrar henni. Þessi tilhneiging kallast staðfestingarskekkja (confirmation bias). Hún getur orðið til þess að við teljum okkur vera að leggja hlutlaust mat á staðreyndir þegar við erum í raun að velja, túlka og muna upplýsingar í ljósi þess sem við trúðum fyrir. Þetta gerum við flest, óháð menntun, greind eða stjórnmálaskoðunum. Staðfestingarskekkja er einfaldlega hluti af því hvernig mannshugurinn starfar. Dæmi um þetta er að sá sem er eindregið á móti ESB gæti leitað sérstaklega að fréttum um vandamál innan sambandsins. Sá sem er eindregið fylgjandi gæti á sama hátt leitað að fréttum sem sýna kosti aðildar. Báðir geta verið sannfærðir um að þeir séu einfaldlega að „skoða staðreyndirnar“. Sömu staðreyndir en ólík niðurstaða Tökum annað dæmi. Tveir einstaklingar fylgjast með sömu kappræðum stjórnmálamanna. Annar telur frambjóðanda A hæfastan en hinn styður frambjóðanda B. Að kappræðunum loknum eru báðir sannfærðari en áður um að „þeirra maður“ hafi staðið sig best. Þeir horfðu á sömu umræðurnar en tóku eftir ólíkum atriðum, túlkuðu þau á mismunandi hátt og lögðu mismunandi áherslu á það sem féll að fyrri skoðunum þeirra. Smám saman getur skapast sú tilfinning um að „öll gögn“ styðji eigin skoðun, þótt raunverulega hafi aðeins verið valin þau gögn sem falla best að henni. Þegar heimurinn virðist sammála okkur Samfélagsmiðlar geta magnað þessa tilhneigingu. Við veljum hvaða efni við lesum, hverjum við fylgjum og í hvaða hópum við tökum þátt, auk þess sem reiknirit miðlanna sýna okkur gjarnan meira af því efni sem vekur viðbrögð okkar. Heimurinn virðist þá sífellt meira sammála okkur, jafnvel þótt raunveruleikinn sé mun fjölbreyttari. Hvernig getum við dregið úr áhrifum staðfestingarskekkjunnar? Í fyrsta lagi með því að spyrja reglulega: Hvaða upplýsingar gætu sýnt fram á að ég hafi rangt fyrir mér? Sú spurning hvetur okkur til að leita markvisst að mótrökum og gögnum sem ögra afstöðu okkar, í stað þess að safna aðeins staðfestingum. Í öðru lagi er gagnlegt að kynna sér vel rökstudda afstöðu sem er andstæð okkar eigin. Markmiðið þarf ekki að vera að skipta um skoðun heldur að skilja hvers vegna skynsamt og upplýst fólk getur komist að annarri niðurstöðu. Það eitt getur hjálpað okkur að sjá veikleika í eigin röksemdafærslu. Í þriðja lagi er hollt að venja sig á að segja: „Ég gæti haft rangt fyrir mér.“ Það er ekki veikleikamerki heldur merki um vitsmunalega auðmýkt. Skoðanir okkar ættu ekki að vera óhagganlegar. Þær eiga að geta breyst þegar ný og betri gögn koma fram. Markmiðið er ekki að vera skoðanalaus. Markmiðið er að láta skoðanir okkar ráðast af bestu fáanlegu upplýsingum en ekki aðeins þeim upplýsingum sem okkur líkar best við. Þegar við göngum til kosninga ættum við því ekki aðeins að spyrja hvaða niðurstöðu við viljum fá. Við ættum einnig að spyrja hvaða rök og gögn gætu fengið okkur til að endurskoða afstöðu okkar. Það kann að vera óþægilegt að uppgötva að maður hafi haft rangt fyrir sér. En það er betra en að halda fast í rangar hugmyndir aðeins vegna þess að þær eru okkar eigin. Höfundur er stjórnendaþjálfari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eyþór Eðvarðsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar