Innlent

Skóli hefst á ný í Grinda­vík og þing­menn efast um full­yrðingar Rússa

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Hádegismynd

Í hádegisfréttum verður rætt við fulltrúa í utanríkismálanefnd Alþingis varðandi þær fullyrðingar sendiherra Rússa í Noregi að þeir hafi engan áhuga á að spilla fyrir þjóðaratkvæðagreiðslunni sem framundan er hér á landi. 

Þá skellum við okkur til Grindavíkur þar sem skólastarf hefst í haust. Þar þarf í ýmis horn að líta þegar kemur að öryggi barnanna og við ræðum við bæjarsjórann í beinni. 

Einnig tökum við stöðuna á hinu óhugnanlega máli í Reykholti sem nú er í aðalmeðferð hjá héraðsdómi Suðurlands.

Í sportpakka dagsins verður fjallað um stór tíðindi sem bárust úr  Bestu deild karla í morgun þegar Stjarnan rak þjálfarann sinn sem hafði aðeins stýrt liðinu í fjórtán leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×