Við erum á plastbát í ólgusjó Dagur B. Eggertsson skrifar 20. ágúst 2026 13:32 Í gær hækkaði Seðlabanki Íslands stýrivexti í 8%, meðal annars með vísan til verðbólguáhrifa stríðsins í Mið-Austurlöndum. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa - enda vonbrigðin mikil og áhrifin grafalvarleg fyrir heimili sem skulda og fyrirtæki sem reiða sig á krónuna og krónulán í sínum rekstri. Þetta dregur athyglina að vandanum við að stýra verðbólgu og verðbólguvæntingum íslensku krónunnar með stýrivöxtum gagnvart ytri áföllum. Skoðum nýleg dæmi um sama ytra áfall en gjörólík áhrif á stýrivexti hér og á evrusvæðinu. Þetta er nefnilega ekki í fyrsta sinn. Þrjú dæmi um ytri áföll og vaxtastig á Íslandi og á evrusvæðinu Árið 2021 – COVID og rofnar aðfangakeðjur. Bæði Seðlabanki Ísland og sá evrópski lýstu áhyggjum af áhrifum á verðbólgu. Í nóvember voru íslenskir stýrivextir komnir í 2%. Vextir ECB voru enn í –0,5% (óbreyttir). Munur: 2,5 prósentustig. Árið 2022 – innrás Rússlands í Úkraínu. Aftur miklar áhyggjur af áhrifum á verðbólgu. 22. júní voru íslenskir stýrivextir komir í 4,75%. Vextir ECB voru enn –0,5% (óbreyttir). Munur: 5,25 prósentustig. Árið 2026 – stríðið í Mið-Austurlöndum. ECB hefur hækkað vexti á árunum 2022-2026 og í júní fóru þeir í 2,25%. Seðlabanki Íslands hækkaði í morgun stýrivexti í 8%. Munur: 5,75 prósentustig. Jafnvel þegar tekið er tillit til þess að verðbólga er hærri hér núna er raunvaxtamunurinn nú um 3,4 prósentustig. Það er gríðarlegt. Mynstrið er sláandi COVID. Úkraína. Mið-Austurlönd. Áföllin koma að utan. Þau dynja á allri Evrópu. Í litlu hagkerfi með eigin gjaldmiðil lenda áföllin af margföldu afli á heimilum og fyrirtækjum sem þurfa að reiða sig á krónuna. Við erum á plastbát í alþjóðlegum ólgusjó Ég birti þessa upprifjun í gær og margir spurðu sig: hvernig má þetta vera? Ágæt samlíking er að við – sem erum með einn minnsta ef ekki minnsta gjaldmiðil í heimi sem flýtur á markaði – erum eins og plastbátur með lítilli vél í miklum öldugangi. Hver alda er áskorun. Ef þú ert á risa farþega- eða flutningaskipi haggastu varla við slíkan öldugang. Hvað með stýrimenn og skipstjóra? Dæmin sem ég rakti hér að ofan eru frá tíð þriggja ríkisstjórna. Það er mikilvægt því í umræðunni erum við oft fljót að benda á stýrimennina eða skipstjórana: seðlabankastjóra, forsætisráðherra, fjármálaráðherra eða viðskiptaráðherra: Ásgeir, Már Bjarni, Katrín, Kristrún, Daði, Lilja eða hvaða nöfn við viljum nefna. Og það er sjálfsagt að ræða stjórnina, aðhald er gott og það skiptir máli hvernig haldið er um stýrið. Fólk er mjög misgott við að stýra plastbát með lítilli vél. Við eyðum hins vegar mikilli orku í þessa umræðu sem leiðist stundum út í sakbendingar. Fólk bendir líka hvert á annað, eins og gengur. Meginatriðið í mínu huga er þó að um er að ræða lítinn plastbát með lítilli vél. Við þurfum stærra skip. Og ættum að ræða það. Krónan er magnari en ekki dempari Saga krónunnar - okkar sjálfstæðu myntar - hefur verið saga óstöðugleika, gengisfellinga og verðbólgu, þótt til séu (allt of fá) stutt tímabil undantekninga. Verðbólga og háir vextir á Íslandi yfir langan tíma hefur leitt til þess að verðbólguvæntingar á Íslandi er þrálátar, viðvarandi og afdrífaríkar. Háar verðbólguvæntingar leiða einar og sér til meiri verðbólgu og hærri vaxta, og ýkja þannig sveiflurnar. Krónan er magnari en ekki dempari á alþjóðarlegar ölduhreyfingar að ekki sé talað um stórsjói. Nýjar – og eldri – greiningar sýna þetta svart á hvítu. Ég efast ekki um að allir séu að reyna að gera sitt besta. Við þurfum hins vegar að horfast í augu við að þetta viðvarandi, óásættanlega ástand og hefur með umgjörðina að gera, gjaldmiðilinn: þá staðreynd að við erum með eina minnstu fljótandi mynt í heimi. Við eigum því að skoða aðra kostir. „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur skrifaði sterka grein um breytta stöðu alþjóðamála og þjóðaatkvæðagreiðslu um að hefja viðræður við Evrópusambandið í vikunni. Myndlíkingin í fyrirsögninni er sótt í hákarlamyndina Jaws. „Eftir að hafa séð hákarlinn í návígi í fyrsta sinn í Ókindinni (e. Jaws, 1975) sagði lögreglustjórinn Brody „þið þurfið stærri bát.” Þó að þjóðaratkvæðið um ESB viðræður snúist ekki um endanlega afstöðu til aðildar, þá snýst hún um hvort við viljum leggja mat á hvort ekki væri ráðlegt að vera í stærri bát.“ https://www.visir.is/g/20262922988d/-thid-thurfid-staerri-bat- Ég hvet alla til að lesa grein Erlings. Líkingin sem hann notar á ekki síður við í efnahags- og gjaldmiðlamálum. Við verðum að spyrja okkur: Höldum við að þetta séu síðustu ytri áföllin sem við þurfum að glíma við sem opið útflutningsdrifið hagkerfi? Er ekki löngu tímabært að fullkanna þann kost að taka upp evru? Höfundur er alþingismaður Reykvíkinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dagur B. Eggertsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar