Hvað var afaðlagað? Þorvaldur Logason skrifar 21. ágúst 2026 12:45 Einu sinni var draugur. Hann varð til, eins og svo margir draugar, þegar einhver óþekkt manneskja missti hausinn. Þessi manneskja sem missti hausinn, missti hausinn alveg árið sem Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu 2009. Draugurinn fékk nafnið Aðlögunarvofan. Hún var þá álitin óhemju hættuleg vofa og gerði margt fólk dauðhrætt. Þess vegna var þjóðvarnarlið Íslands, þjóðvarnarlið Morgunblaðsins, kallað út til að kveða hana niður. Röktu þeir slóð Aðlögunarvofunnar, þ.e. aðlögunarferilinn, inn í Alþingi, inn í Stjórnarráðshúsið og jafnvel inn í skrifstofur ASÍ þar sem vofan átti greinilega marga vini. Vofu þessari var lýst sem skuggalegustu vofu í sögu Íslands og hún kæmi líkt og Sandvíkur-Glæsir í fínum fötum með pípuhatt en tæki ofan höfuðið þegar hún heilsaði. Þjóðvarnarliðið sakaði vini Aðlögunarvofunnar um að þeir væru saman í leynilegum viðræðum um að svíkja Ísland „inn í brennandi ríki Evrópusambandsins“ og að þeir væru að „ljúga til um gang og eðli viðræðanna“ við sambandið, að viðræðurnar byggðu á „sögulegustu svikum íslenskrar stjórnmálasögu“ og kostuðu ógrynni fjár sem þjóðin mátti ekki missa. Aðlögunarvofan átti að hafa „gjörsamlega lamað íslenska stjórnkerfið“ á örlagatímum og í bígerð væri að umbreyta samfélaginu algjörlega án samþykkis þjóðarinnar. Aðrir sögðu að Aðlögunarvofan væri bara draugasaga til að hræða fólk frá því að gera eins og milljarðamæringarnir og flytja til Hollands eða Portúgal. Sumir þeirra voru svo óíslenskir að þeir trúðu ekki á drauga. Þeir sögðu að enska orðið „accession“ þýddi aðild en ekki aðlögun og því gæti Aðlögunarvofan ekki verið til. Ef orðunum aðild og aðlögun yrði varanlega snúið við á Íslandi þá gætu hér orðið mikil vandræði. Ímyndið ykkur börn á leikskólum sem færu ekki lengur í aðlögun og samtal við leikskólakennara heldur stæðu í alls konar stappi við að fá samþykkta aðildarumsókn í eins konar aðildarviðræðum. Þau gætu farið að ítreka sjálfstæði sitt, mótmæla þvingandi tilraunum til að koma þeim á leikskóla og gætu farið að líta á leikskólastjórann sem svikara, vegna þess að þau áttu aðeins að fá kakósúpu og mauksoðið pasta í staðinn fyrir harðfisk og hangikjöt. Það yrði víða gubb og gaman, þess vegna er bara best að halda sig við merkingu hugtakanna og rifja kannski upp hvað vísindamenn sögðu um aðlögunarvofuna á sínum tíma (á Vísindavefnum): „... óumdeilt er að ekki er þörf á neinni aðlögun ... náðu íslensk stjórnvöld og ESB saman um að Ísland myndi hvorki ráðast í breytingar á opinberum stofnunum né lagabreytingar, sem af aðild leiddu, fyrr en að afstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu.“ Því miður hafði þetta lítil áhrif því þjóðvarnarlið Morgunblaðsins trúir ekki að vísindi séu til, loftlagsbreytingarnar í Evrópu telja þeir líklega stafa af skattahækkunum. En ef einhver trúir enn á Aðlögunarvofuna ætti hann að spyrja sig einnar spurningar: Ef Aðlögunarvofan og vinir hennar voru í leyni að breyta Íslandi í Evrópusambandið með hókus pókus aðferðum, hvaða töframaður breytti þá Íslandi aftur í Ísland eins og það er? Með öðrum orðum: Ef mikil og stórhættuleg, leynileg aðlögun átti sér stað, hvað var þá seinna afaðlagað á Íslandi? Annað en sannleikurinn? Höfundur er heimspekingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar