Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 21. ágúst 2026 15:00 Stundum hlusta ég á viðtöl um umdeild mál í samfélaginu og velti fyrir mér hvert hlutverk spyrilsins eiginlega sé. Viðmælandi fær orðið og segir sína sögu. Það er gott og gilt. Vandinn byrjar þegar frásögn eins einstaklings fær að standa nær óáreitt, jafnvel lengi, án þess að spurt sé um það sem kann að vanta í myndina. Viðtalið fer að minna meira á einræðu en samtal. Þegar viðmælandinn er aðeins einn eru slík viðtöl stundum kölluð drottningaviðtöl. Viðmælandinn fær sviðið en fátt er um spurningar sem setja umræðuna í víðara samhengi. Rétt eins og aðeins ein hlið sé á málinu. Jónas Kristjánsson heitinn ritstjóri talaði gjarnan um kranablaðamennsku þegar viðtöl voru eins og skrúfað væri frá krana eins viðmælanda og svo fyrir hann aftur þegar tíminn var búinn eða plássið uppurið. Myndlíkingin lýsir þessu vel. Andstæða yfirheyrslu Gott viðtal þarf alls ekki að vera aðgangshart. Spyrill þarf ekki að sækja miskunnarlaust að viðmælandanum af tortryggni eða grípa sífellt fram í fyrir honum. Þvert á móti getur yfirvegað og opið samtal oft leitt meira í ljós. Það er aftur á móti munur á því að leggja við hlustir og því að láta viðmælanda alfarið stýra ferðinni. Ef viðmælandi setur fram fullyrðingu hlýtur spyrill að ganga á eftir því hvað liggur að baki henni. Ef aðeins ein hlið máls kemur fram þarf að spyrja viðeigandi spurninga og geta annarra sjónarmiða sem fram hafa komið. Ef eitthvað í frásögninni stangast á við þekktar staðreyndir eða aðrar upplýsingar þarf að fylgja því eftir. Undirbúningur skiptir öllu Spyrill þarf þess vegna að mæta undirbúinn til leiks. Hann þarf að þekkja forsögu máls, vita hvar ágreiningurinn liggur og hafa kynnt sér það sem viðmælandinn kann að hafa áður sagt um málið. Annars er hætt við að spyrillinn fylgi einfaldlega frásögn viðmælandans. Viðmælandinn ræður þá bæði umræðuefninu og hvernig um það er talað, hvað er sagt og hvað látið ósagt. Vel undirbúinn spyrill þarf ekki að setja fram langar eða flóknar spurningar. Stundum nægir einföld mótspurning: Hvað með þetta? Hvernig samræmist það hinu? Hvað segir þú við þeirri gagnrýni? Er önnur skýring möguleg? Slíkar spurningar geta gjörbreytt viðtali. Fyrir hlustandann Viðmælandi á auðvitað að fá að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. En gott og upplýsandi viðtal ætti ekki að leiða fram aðeins eina hlið þegar augljóslega eru fleiri. Viðtalið er líka fyrir þá sem hlusta, lesa eða horfa. Það á að bæta einhverju við umræðuna, varpa frekara ljósi á málið og hjálpa okkur að sjá stærri mynd. Þá dugar ekki einræða eða þröng sýn eins viðmælanda. Spyrlar þurfa hvorki að vera frekir né dónalegir. En þeir þurfa að vera vel undirbúnir og þekkja málefnið sem rætt er um. Góður spyrill kann að hlusta og spyrja og þorir að fylgja svörunum eftir, líka með gagnrýnum spurningum þegar ástæða er til. Höfundur er þingkona Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar