Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson skrifar 22. ágúst 2026 22:45 Ísland ber þá gæfu að hafa jafnan kosið stangheiðarlega og grandvara menn til setu á Alþingi. Því vakti það athygli þegar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, nýbúin að mynda ríkisstjórn með Þorgerði Katrínu (og eftir atvikum Ingu), lýsti því yfir að í mikilvægum ráðherraembættum „mætti ekki plata“. Menn áttuðu sig ekki strax á því hvert hún var að fara. Nú, viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu, hillir undir skýringuna. Í Brussel situr nefnilega kona sem fer með stækkunarmál Evrópusambandsins og hefur sýnt Íslendingum óvenjulega ræktarsemi undanfarið. Hún heitir Marta Kos. Að minnsta kosti heitir hún það núna. Tara, Blanka, Marta Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor rakti í The Conservative 5. júlí efni bókar slóvenska sagnfræðingsins Igors Omerza um Kos. Þar eru birt skjöl úr safni slóvensku leyniþjónustunnar sem benda til þess að hún hafi árið 1989 verið skráð heimildarmaður undir dulnefninu Tara og ári síðar færð upp í flokk samverkamanna undir nafninu Blanka. Um svipað leyti kom stofnunin henni í starf hjá Deutsche Welle. Hannes gætir hófs í ályktunum sínum. Líklegast hafi framagjörn ung blaðakona átt stopul samskipti við stofnunina á lokaárum kommúnismans og slík saga væri mannleg. Hitt vegur þyngra, að frammi fyrir Evrópuþinginu neitaði Kos afdráttarlaust öllu slíku samstarfi. Skjölin segja aðra sögu. Yfirhylmingin er mun verri en brotið. Skriffinnar í Brussel kusu engu að síður að líta fram hjá gögnunum, enda er stjórnunarhæfni metin þar ofar sannsögli. Þar má plata. Og eitt má hún eiga. Sú, sem gekk undir þremur nöfnum á yngri árum ætti ekki að vera í vandræðum með að tala tveimur röddum nú. Ferill án skýringa Sjaldan er ein báran stök. Kos hvarf fyrirvaralaust úr slóvensku utanríkisþjónustunni árið 2020 af óþekktum ástæðum. Fyrir slóvensku þingkosningarnar 2025 beitti hún sér opinberlega gegn Janez Janša, þótt siðareglur framkvæmdastjórnarinnar bjóði hlutleysi í kosningum einstakra ríkja. Formlega var kvartað en framkvæmdastjórnin aðhafðist ekkert. Slóvenskir kjósendur létu sér ekki segjast: Janša tók við forsætisráðuneytinu 4. júní og krefst þess nú að Kos víki. Fagnaðarerindið flutt Íslendingum Viku fyrir atkvæðagreiðsluna sagði Kos í samtali við Vísi að engin aðlögun íslenskra laga að regluverki sambandsins færi fram þótt þjóðin segði já og ekkert væri hægt að fullyrða um undanþágur. Umbúðirnar voru hlýjar: „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni.“ Fallega mælt og fjölskyldulíkingin ekki út í hött. Í fjölskyldum tíðkast einmitt að segja börnunum aðeins það sem þeim er hollt að heyra. Annað hljóð í strokknum Þegar Kos ræðir við fullorðna fólkið kveður við annan tón. Í viðtali við norska ríkisútvarpið NRK í maí 2025 sagði hún ferlið snúast að verulegu leyti um aðlögun löggjafar umsóknarríkis að löggjöf sambandsins. Viðræðurammi ESB gagnvart Íslandi frá 2010 kveður á um að hraðinn ráðist af innleiðingu regluverksins, og Kos hefur sjálf staðfest að hann standi óhaggaður og varanlegar undanþágur séu ekki í boði. Hún talar því þvert á eigið umboð og eigin orð þegar hún heldur að Íslendingar heyri ekki til. Tara segir eitt, Blanka annað og Marta hvort tveggja, allt eftir því hver á hlýðir. Pakkinn er opinn öllum en skjalaskápurinn harðlæstur Trúverðugleikavandi utanríkisráðherra Íslands sprettur af sama meiði. Þorgerður Katrín hefur gert orð Kos að burðarási í málflutningi sínum fyrir aðild. Kjósendur eru beðnir að reiða sig á fyrirheit um hraðferð og sársaukalausa vegferð sem stangast á við skjalfest samningsumboð sambandsins sjálfs. Þegar gengið er á ráðherrann um aðlögun eða undanþágur er vísað til orða Kos; þegar spurt er um annað er vísað til trúnaðar. Þá hefur ráðherrann neitað að afhenda Alþingi og almenningi um hundrað trúnaðarskjöl um samskipti sín við Evrópusambandið. Þjóðin er hvött til að „kíkja í pakkann“ en fær ekki að kíkja í harðlæstan skjalaskápinn. Reynslan hefur ávallt sýnt að menn leggja sjaldan lykkju á leið sína til að fela það sem styrkir málstað þeirra. Líkur sækir líkan heim. Annaðhvort hefur Þorgerður Katrín kynnt sér feril helsta bandamanns síns í Brussel og kýs að þegja, eða hún hefur ekki hirt um að kanna hann. Hvorugur kosturinn fer embættinu vel. Boðberinn er sagður hafa leynt fortíð sinni frammi fyrir Evrópuþinginu og situr undir brottvikningarkröfu forsætisráðherra heimalands síns. Ábyrgðarmaðurinn hér heima situr á hundrað skjölum. Dómurinn um Brussel á sér þannig hliðstæðu í ráðuneytinu við Rauðarárstíg. Forsætisráðherrann sagði í upphafi stjórnarsamstarfsins að það mætti ekki plata. Það var rétt hjá henni og vel mælt. Hinn 29. ágúst gefst þjóðinni færi á að taka hana á orðinu. Höfundur er læknir og sjálfskipaður fullveldissinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Valsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar