NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson skrifar 23. ágúst 2026 07:30 Allt frá því að ég fékk kosningarétt fyrir 58 árum hef ég litið á þjóðaratkvæðagreiðslur sem kórónu lýðræðisins. Þær hafa á þessu tímabili verið tiltölulega fáar hér á landi ef frá eru taldar forsetakosningar. Raunar held ég að þær séu einungis þrjár á þessum tíma, þ.e. tvennar Icesave kosningar og svo kosningarnar um nýja stjórnarskrá 2012. Hingað til hefur mér það þótt vera nánast atlaga að lýðræðinu í landinu að reyna að hindra slíkar kosningar og enn fráleitara að reyna með einhverjum meðulum að eyðileggja þær. Um slíkt höfum við því miður mörg dæmi út í hinum stóra heimi, ekki síst í svokölluðum einræðisríkjum. En í vestrænum lýðræðisríkjum er slíkt fátítt, þótt þannig tilburðir hafi verið til staðar í sk. BREXIT-kosningu í Bretlandi 2016. Lýðræðisleg eyðileggingaröfl mætt hjá okkur En nú eru þessi öfl mætt hjá okkur. Allt frá því að fyrir lá sú stefna núverandi ríkisstjórnar að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort eigi að hefja viðræður um mögulega aðild Íslands að ESB hafa ýmis samtök, hagsmunahópar og jafnvel fulltrúar elstu lýðræðisstofnunar heims, Alþingis, reynt með ýmsum aðferðum að annaðhvort koma í veg fyrir slíka atkvæða-greiðslu eða koma því að með blekkingum, getgátum og falsfréttum inn hjá fólki að kosningin 29. ágúst snúist um aðild að ESB. Meira segja margir stjórnmálamenn sem höfðu lofað því að standa að slíku ferli opna nú munninn með kolsvarta tungu og segjast ekkert muna frá því fyrir kosningar 2013 (sbr. yfirlýsingar þáverandi formanna Framsóknar og Sjálfstæðisflokks). En verst þykir mér að tveir fyrrverandi forsetar Alþingis sem og fyrrverandi forseti lýðveld-isins í 20 ár skuli nú hafa skipað sé í þann hóp manna sem vill hafa þann lýðræðislega rétt af þjóðinni að kjósa um hvort Íslendingar eigi að taka að fullu þátt í ESB-samstarfinu eftir að möguleg samningsdrög liggja fyrir. Minnir málflutningur þeirra mig að nokkru á málflutning breska lýðskrumarans Nigel Farage og hans fylgifiska í fyrrnefndri atkvæðagreiðslu 2016. Atkvæðagreiðslu þar sem meirihluti Breta í dag telur hafa verið mótuð af blekkingum og falsi og niðurstöðuna stórfelld mistök. Við gamla heygarðshornið Nú er um aldarþriðjungur síðan Alþingi samþykkti með 33 atkvæðum af 63 samninginn um EES. Samningur sem flestir landsmenn telja hafa skipt sköpum um þróun lífskjara og margs-konar réttinda á Íslandi frá því að hann tók gildi 1994. Þeir sem studdu þennan samning á Alþingi voru allir 10 þingmenn Alþýðuflokksins og 23 af 26 þingmönnum Sjálfstæðis-flokksins. Á móti voru hins vegar auk Sjallanna þriggja allir þingmenn Alþýðubandalagsins með fyrrnefnda forseta lýðveldisins og fv. forseta Alþingis í broddi fylkingar. Þá voru Framsókn og Kvennalisti einnig á móti (nokkrir þingmenn þeirra sátu þó hjá). Því má segja að enn séu fv. forsetarnir tveir sem og Framsókn, klofin og óklofin, við sama heygarðshornið og þeir voru þá með þjóðrembuna, hræðsluáróðurinn og fortíðarhyggjuna að vopni. Tel ég það hafa verið eitt mesta framlag Davíðs heitins Oddsonar til jákvæðrar þróunar hins íslenska samfélags á valdatíma hans að hafa fengið svo stóran meirihluta sjálfstæðismanna til að skipta um skoðun og styðja þennan samning. En nú óttast stór hluti af forystu Sjálfstæðisflokksins einnig að bera það undir þjóðina hvort hún vilji gerast fullgildur meðlimur að þessu merki-legasta samstarfi í sögu Evrópu (friður og frelsi í 80 ár!). Rangar fullyrðingar Undanfarna mánuði hafa fjölmiðlar, einstaklingar og félagasamtök verið stútfull af fullyrð-ingum um þessar kosningar, sem ekki standast lágmarks sannleikspróf, sjá grein eftir Kristínu Völu Ragnarsdóttur prófessor emerita, https://www.visir.is/g/20262921855d/lygar-um-thjodaratkvaedagreidsluna-29.-agust-og-adildarvidraedur-vid-evropusambandid. Ég ætla bara að benda á þá fráleitu fullyrðingu að 29. ágúst verði kosið um aðild að ESB. Minna má á að Norðmenn gerðu tvo samninga um aðild að ESB árið 1972 og 1994. Báðir þessir samningar voru felldir í þjóðaratkvæðagreiðslum og þess vegna er fráleitt að halda því fram að JÁ nú um samningaviðræður þýði aðild að ESB. Þá felldu Svisslendingar aðildarsamning um EES í þjóðaratkvæðagreiðslu! Loks má benda á að samþykktur samningur um aðild þýðir ekki sjálfkrafa aðild þar sem hver og ein þjóð innan ESB getur hafnað aðildarsamningi. Þannig höfnuðu Frakkar í tvígang aðildarsamningi sem Bretar gerðu við ESB árin 1961 og 1967!! Yngra fólkið ráði för og framtíð Ég er nú kominn á efri ár og eru því allmiklar líkur á því að líf mitt verði fremur stutt ef þá nokkuð með Ísland innan ESB yrði það niðurstaðan í fyllingu tímans eftir þjóðaratkvæða-greiðslu um drög að samningi við ESB. Því dettur mér ekki annað í hug en að segja JÁ nú 29. ágúst enda vil ég að kynslóðir barna minna og barnabarna og kynslóðirnar þar á milli hafi mest um að segja hver framtíð þeirra verður. Raunar finnst mér fráleitt að nú sé reynt með alls kyns fölskum fullyrðingum og á grundvelli vanþekkingar á alþjóðlegu samstarfi reynt að koma í veg fyrir að næstu kynslóðir ákveði með lýðræðislegum hætti hver framtíð þeirra verður. Skiptir þá engu hvort af aðild verður eða ekki Höfundur er fv. veðurstofustjóri og varaþingmaður Alþýðuflokksins 1991-1995. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Icesave Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar