Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar 24. ágúst 2026 10:30 Endanleg ákvörðun um inngöngu Íslands í Evrópusambandið er í höndum þjóðarinnar. Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst nk. snýst hins vegar um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið á nýjan leik. Hún snýst ekki um inngöngu en verði það niðurstaðan 29. ágúst að hefja skuli aðildarviðræður á ný þá verður aðildarsamningur lagður fyrir kjósendur í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu. Sú atkvæðagreiðsla mun snúast um inngöngu í ESB. Ólýðræðisleg upplýsingaóreiða í boði nei-sinna Ákvörðun um að hefja aðildarviðræður er því ekki endilega ávísun á inngöngu í ESB. Það veltur allt á því hvernig aðildarsamningur kemur til með að líta út að loknum samningaviðræðum og hvort kjósendum hugnist hann. Óumdeilt er því að endanleg ákvörðun um inngöngu liggur hjá þjóðinni þegar aðildarsamningur verður lagður fyrir hana í síðari þjóðaratkvæðagreiðslunni. Tilraunir ýmissa á nei vagninum með Ólaf Ragnar Grímsson fyrrverandi forseta fremstan í flokki til að halda öðru fram eru ekki á rökum reistar. Í raun er hér um ólýðræðislega upplýsingaóreiðu að ræða þar sem markmiðið er að láta fólk greiða atkvæði á röngum forsendum 29. ágúst nk. Baráttan endalausa við verðbólgu og vexti Margar góðar og gildar ástæður eru fyrir því að hefja aðildarviðræður á nýjan leik. Ein sú stærsta snýr að efnahagslegum stöðugleika. Síðasta hækkun stýrivaxta seðlabankans fyrir skemmstu var enn ein harkaleg áminningin um þann efnahagslega óstöðugleika sem Íslendingar búa við og skapast m.a. af því að við erum með minnsta sjálfstæða gjaldmiðil heims. Segja má að öll síðari tíma saga Íslands markist af endalausri – og á tímum vonlausri – baráttu við verðbólgu og vexti. Þá má heldur ekki í þessu sambandi gleyma hinu séríslenska fyrirbæri verðtryggingunni. Hver kannast ekki við að hafa reynt að útskýra hana fyrir útlendingum með takmörkuðum árangri? Það kemur okkur heldur ekkert sérstaklega á óvart þegar verðbólgan hækkar milli mælinga og stýrivaxtahækkun í kjölfarið kemur ekki beinlínis eins og þruma úr heiðskýru lofti. Þetta raskar ekki úr hófi fram ró okkar því þetta er sá veruleiki sem við þekkjum og við nálgumst þetta soldið eins og íslenska veðráttu, við bara látum okkur hafa það og reynum bara að klæða okkur eftir veðri, sem getur reynst erfitt því skjótt skipast veður í lofti á Íslandi. Hvernig verjumst við veðrinu? Af þessum sökum hlýtur það að vera skynsamlegt að halda þeim möguleika opnum að eignast skjólbetri föt sem gætu gagnast okkur í baráttunni við verðbólgu og vexti. Hingað til hefur engum tekist að benda á betri eða skilvirkari leið til að taka á þessum viðvarandi vanda og efnahagslegum óstöðugleika en upptöku Evru í gegnum aðild að ESB. Einu rökin sem heyrast gegn þeirri leið eru eiginlega þau að þetta gerist ekki strax og að Evran sé engin töfralausn eins og einhver hafi einhvern tímann haldið því fram. Við munum áfram þurfa að kljást sjálf við íslenskt veður, vexti og verðbólgu en það eru hins vegar allar líkur á því að evran með evrópska seðlabankann sem lánveitanda til þrautavara muni veita okkur betra skjól og betri tæki til þess að takast á við efnahagsmálin. Það væri ekki skynsamlegt að loka á þennan möguleika. Rúsínan í pylsuendanum væri svo að losna við verðtrygginguna, sjá húsnæðislánin lækka og þurfa aldrei að útskýra gangverk hennar fyrir útlendingum aftur! Höldum möguleikum opnum – lokum ekki dyrum Já 29. ágúst nk. snýst ekki bara um það að sjá heldur líka að halda öllum möguleikum opnum og loka engum dyrum. Höldum dyrunum opnum fyrir efnahagslegan stöðugleika með því að segja já 29. ágúst og förum full sjálfstrausts í aðildarviðræður við ESB. Verum stolt þjóð meðal þjóða. Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar