Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar 24. ágúst 2026 11:51 Ísland og Færeyjar eiga það sameiginlegt að sjávarútvegur er mikilvæg atvinnugrein. Bæði löndin eru utan ESB en tengsl Færeyja við ESB eru mun meiri en Íslands vegna tengsla landsins við Danmörku. Það er ekki auðvelt að skilgreina hugtakið fullveldi en sennilega telja fæstir að Færeyingar séu fullvalda þótt ekki sé deilt um að þeir gætu slitið sambandinu við Danmörku ef meirihluti þeirra kysi það. Peningastefnan í Færeyjum ræðst af fastgengisstefnu dönsku krónunnar gagnvart evru sem studd er af Evrópska seðlabankanum. Þetta fyrirkomulag þvingar dönsk og færeysk stjórnvöld til að aðlaga sig að peningastjórnun sem tekur mið af hag evrusvæðisins. Það er einnig nokkur munur á umfangi auðlindanna sem sjávarútvegurinn nýtir og yfirráðum yfir þeim en Færeyingar eru mjög háðir samningum við önnur ríki um fiskveiðiheimildir. Í ljósi mismunar í þessum mikilvægu málaflokkum, sem hafa verið mikið í umræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst, er nærtækt að spyrja hvort hægt sé að greina áhrif hans á gengi landanna í efnahagsmálum. Vægi sjávarútvegs og yfirráð yfir auðlindum Vægi fiskveiða í færeyskum þjóðarbúskap var 11,2% árið 2024 og hafði minnkað úr 18,4% árið 1998. Samsvarandi tölur fyrir Ísland eru 2,7% árið 2024 og 7,7% árið 1998. Fiskeldi er öflugt í Færeyjum, 7,7% árið 2024, en á sama ári var fiskeldi 0,4% af íslenskum þjóðarbúskap og fiskvinnsla 1,9%. Þótt sjávarútvegur sé mikilvægur í báðum löndunum er vægið mun meira í Færeyjum. Ef við skoðum verðmæti afla sem veiddur er innan landhelgi landanna er hlutfallið um 50% fyrir Færeyjar en tæplega 90% fyrir Ísland. Ef tekið er tillit til veiða innan landhelginnar úr deilistofnum (þ.e. stofnum sem aðrar þjóðir nýta líka, makríll og kolmunni í Færeyjum en loðna og stundum síld og makríll hér) eru hlutföllin nokkuð lægri, einkum hjá Færeyingum. Sjávarauðlindir sem Færeyingar ráða yfir eru mun rýrari en þær sem Íslendingar ráða yfir og þeir ráða einir yfir mikið minni hluta af þeim auðlindum sem þeir nýta og eru því háðari samningum við aðra um nýtingu þeirra, m.a. ESB. Áhrifin á þróun efnahagsmála Ef fullveldi, yfirráð yfir auðlindum og sjálfstæð peningastefna sem skapar möguleika á að bregðast við áföllum með gengisbreytingum eru lykilatriði fyrir farsæla þróun efnahagsmála má ætla að það sæist þegar árangur Íslands og Fæeyja er borinn saman. Myndin hér fyrir neðan sýnir hlutfallslegan mun vergrar landsframleiðslu (VLF) á mann í Færeyjum og á Norðurlöndum í samanburði við Danmörku, sem er eina landið sem hefur verið í ESB allan tímann sem sýndur er í myndinni. Tölur um landsframleiðslu eru umreiknaðar í bandaríska dollara (USD) og leiðrétt hefur verið fyrir mismun í verðlagi (Purchasing Power Parity, PPP). Heimildir: Hagstofa Íslands og datastat.org. Ég fann tölur fyrir öll löndin aftur til 1980, nema Færeyjar þar sem tölurnar ná aftur til ársins 2008. Ef miðað er við lengsta tímabilið, 2008-2024, er meðaltal mismunarins gagnvart Danmörku 1,4% fyrir Færeyjar en -1,0% fyrir Ísland. Þrátt fyrir að Færeyjar stæðu verr en Ísland á árum bankahrunsins, 2008-2010, stóðu þeir betur þegar horft er til alls tímabilsins 2008-2024. Myndin sýnir að á árinu 2024 var landsframleiðsla á mann lang hæst í Noregi og þar hafði hún einnig hækkað mest. Meginástæðan er vitaskuld olían. Finnland hefur alltaf verið neðst af Norðurlöndunum. Fyrst eftir að þeir gengu í ESB árið 1995 gekk þeim tiltölulega vel. Ástæðan var ekki inngangan í ESB, eða þátttaka í Evrópska myntsamstarfinu (EMU) frá árinu 1999, heldur að þeim tókst að ná forystu í þróun og framleiðslu farsíma (Nokia). Erfiðleikar þeirra hófust þegar Apple hóf sölu á iphone-símum árið 2007. Myndin sýnir að landsframleiðsla á mann á Ísland og í Svíþjóð var meiri en í ESB-ríkinu Danmörku árið 1980 en hlutföllin hafa lækkað mikið síðan. Reyndar hefur hraðinn á lækkun hlutfallslegs munar á milli Svíþjóðar og Danmerkur aukist eftir að Svíþjóð gekki í ESB árið 1995. Lokaorð Boðskapur þessarar greinar er ekki að yfirráð yfir sjávarauðlindum, fyrirkomulag peningastefnu eða fullveldi skipti engu máli fyrir þróun efnahagsmála, en þau atriði sem nefnd voru hér að framan benda til þess að áhrif þeirra fyrir þróunina sé minna og sennilega flóknara en margir fullyrða núna í hita leiksins fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Fullveldið hefur mikið verið í umræðunni og ljóst að miklar tilfinningar eru tengdar hugtakinu. Sjálfsagt hefur fullveldishugtakið breyst frá árinu 1918 og einnig frá árinu 1944, en það sem hefur breyst mest eru aðstæðurnar, tæknin sem hefur rofið einangrun landsins og skapað möguleika (og nauðsyn) á alþjóðlegu samstarfi sem hefði verið óhugsandi (og sumt óþarft) á árinu 1918 og jafnvel á árinu 1944. Guðni Th. Jóhannesson hefur í skrifum sínum um útfærslu landhelginnar á síðustu öld sýnt hvernig þróun alþjóðlegra aðstæðna mótuðu skrefin sem stigin voru hverju sinni og að hernaðarlegt mikilvægi landsins var nýtt til að þrýsta á um hagstæðar lausnir fyrir Ísland. Samspil þessarra þátta mun líka ráða för í framtíðinni. Sumir telja sig vita allt um þá möguleika sem bjóðist við inngöngu í ESB og sérstaklega allt varðandi sjávarútveg. Ég held að það sé ekki rétt. Þess vegna ætla ég að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Höfundur eftirlaunaþegi í dag en var áður forstöðumaður rannsóknar- og spádeildar hjá Seðlabanka Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun