Hégómi Haukur Eggertsson skrifar 24. ágúst 2026 18:31 Vinur er sá er til vamms segir, og einn vina minna hefur bent mér á að sú höfuðsyndanna sjö, sem ég á í hvað mestum vandræðum með, mögulega þá sleppir letinni, sé hégómi. Ein birtingamynd hégóma míns er að ekki bara vil ég hafa rétt fyrir mér, heldur vil ég líka að aðrir sjái að ég hafi rétt fyrir mér. Lífleg umræða, vissulega mismálefnaleg, hefur spunnist um hvort að eitthvað sé í pakka þeim, sem á að innihalda mögulegar tilslakanir Evrópusambandsins, gagnvart hugsanlegri endurupptekinni aðildarumsókn Íslendinga. Ber himinn og haf á milli fullyrðinga helstu stuðningsmanna aðildarumsóknar og þeirra sem mótfallnastir eru, á innihaldi ofangreinds pakka. Annað hvort er hann fullur af alls konar, eða eins galtómur og háttbyljandi tunna. Sjálfur veit ég ekki hvað yrði í pakkanum, en grunar að það sé meira en sumir láta og einhverju minna, en aðrir láta í skína. En forðast fullyrðingar. En það sem hins vegar vekur jafn hégómagjörnum manni og mér furðu er að fæstir þeirra, sem af því er virðist öruggri vissu, staðhæfa að ekkert sé í pakkanum, skuli ekki bara vilja fara á mis við að sýna samferðamönnum sínum að þeir hafa rétt fyrir sér, heldur einnig, láta hjá líða að lækka rostann í hinum pólitísku mótherjum, afhjúpa þá sem skýjaglópa. Það er vissulega ærið dagsverk hverjum grandvörum manni, að feta hinn vandrataða stíg dyggðanna, en auðvitað er ekki loku fyrir það skotið að margir þeirra séu ekki bara betur að sér í guðfræði og siðfræði en ég, heldur takist einnig betur að lifa í samræmi við þá þekkingu. Það að umsókn sé dýr, tímasóun, standi allri ákvörðunartöku fyrir þrifum og setji stjórnsýsluna á hliðina, (sem er þó minning fæstra okkar frá fyrri lotu), gætu því verið rök þeirra sem ráða betur við hégómagirnd sína en ég. Svo gæti líka verið að þeir óttist að eitthvað sé í pakkanum og standi þeir því sjálfir eftir afhjúpaðir sem bullukollar, yrði litið í hann. Það er slæmt fyrir hégómagjarna. Hvað heldur þú? En það er morgunljóst að ef ekki verður kíkt í pakkann, munu deilur, jafnvel illdeilur, halda áfram um hvað hefði verið í pakkanum. Besta leið þeirra sem hugnast lítt aðild að Evrópusambandinu er því að afhjúpa sannleikann, sýna okkur um hvað málið snýst, slá á falsvonir aðildarsinna og segja já við umræðum og, eftir atvikum, nei við samningi. Þannig getum við tekið upplýsta og nokkuð varanlega ákvörðun og í framhaldinu snúið okkur að öðrum verkefnum. Höfundur er verkfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar