Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar 25. ágúst 2026 09:00 Innganga í ESB mun hjálpa Íslandi töluvert við innviðauppbyggingu. Annars vegar er möguleiki að fá beina styrki til innviðauppbyggingar og hins vegar verður hægt að fá ódýrt fjármagn frá Evrópska fjárfestingarbankanum EIB til slíkrar uppbyggingar. Seinna atriðið skiptir meira máli. ESB styrkir innviðauppbyggingu með beinum hætti. Þóroddur Bjarnason lýsti þessu vel í skrifum sínum um daginn (https://www.akureyri.net/is/umraedan/yrdi-evropusambandid-bjargvaettur-eda-bolvaldur-landsbyggdanna) en hér verða helstu atriðin varðandi styrki til samgöngumannvirkja endurtekin. Ríki í ESB með minna en 90% af meðalþjóðartekjum á mann hafa möguleika á miklum styrkjum til innviðauppbyggingar. Ísland er sannarlega ekki í þeim hópi. Öll ríkin hafa hins vegar aðgang að CEF sem er samkeppnissjóður, ríki sækja um styrki í ákveðin verkefni og sum verkefni eru styrkt en önnur ekki. Bendir Þóroddur á að Írland hafi fengið frá 1,6 til 16 milljarða á ári síðustu þrjú ár í þau verkefni sem Írland sótti um. Í samgöngum eru einungis helstu samgöngumannvirki á Íslandi styrkhæf svo sem Hringvegurinn, helstu hafnir og flugvellir. Vegna fámennis, fjallvega og dreifðra byggða ætti Ísland að geta fengið einhverja beina styrki ekki síður en Írland. Hins vegar er það aðgangur að fjármagni. Það er stærra atriði en beinir styrkir. Með ESB aðild yrði næsta verkefni að taka upp evru en þá myndi fjármagnskostnaður ríkisins líkleg súnka niður um 1,5 prósentustig. Með aðild að EIB yrði aðgangur að fjármagni í vegagerð enn hagstæðari. Bankinn lánar til ýmiskonar innviðauppbyggingar í ESB. Kjörin á lánum hans í evrum eru mjög hagstæð. Bankinn hefur lánshæfið AAA og lánskjör hans eru svipuð og þeirra örfáu landa í Evrópu sem eru með þetta lánshæfi. Það er mat undirritaðs að gera megi ráð fyrir að raunvextir lána frá EIB séu um 1%. Til samanburðar eru raunvextirnir um 2,75% á því fjármagni sem íslenska ríkinu stendur nú til boða á markaði í krónum. Þessi umtalsverði munur hefur mikla þýðingu varðandi vegagerð sem krefst mikils fjármagns. Framkvæmdatími er oft langur svo sem í jarðgangagerð og dýrt fjármagn þýðir að fjármagnskostnaður á framkvæmdatíma endar sem töluverður hluti framkvæmdakostnaðar. Áhrif lægri fjármagnskostnaðar eru hvað sýnilegust ef veggjöld eru látin fjármagna verkefnið. Veggjöld gætu verið lægri í Hornafirði ef sú vegagerð hefði verið fjármögnuð með fé frá EIB. Sama gildir um nýja brú yfir Ölfusá. Ódýrara fjármagn þýddi að veggjald þar gæti verið lægra eða endurgreiðslutíminn styttri. Til að skýra þetta enn betur er hér tekið dæmi af mögulegri framkvæmd sem hugsanlega mætti fjármagna með veggjaldi. Þetta er Bláskógavegur, mögulegur vegur milli Suður- og Norður-Þingeyjarsýslu sem myndi stytta vegalengdir mjög mikið. Sjá mynd. Í þessari framkvæmd felst 32,6 km vegagerð og myndi hún kosta um 4,9 milljarða króna. Vegurinn myndi stytta leiðina milli Kópaskers og Akureyrar um 25 km en milli Kópaskers og Húsavíkur um 14 km. Hægt væri að taka veggjald sem þyrfti þó að taka mið af minni vegstyttingunni. Umferð er lítil en gera má ráð fyrir að um 260 bílar á dag myndu aka veginn ef gjald á fólksbíl yrði um 1.400 kr. Með ýmsum öðrum forsendum sem of langt mál er að telja upp hér gæti þessi vegur borgað sig upp á 33 árum ef raunvextir á fjármagninu sem færi í framkvæmdina væri einungis 1%. Ef hins vegar fjármagnið væri á 2,75% raunvöxtum er tæpt að dæmið gengi upp. Sömu forsendur gefa þá 49 ára endurgreiðslutíma. Þetta þýðir í fáum orðum að ýmiskonar samgönguverkefni verða viðráðanleg - sem eru það ekki um þessar mundir - ef fjármagn verður ódýrara. Það gildir ekki eingöng um þéttbýlasta svæðið á suðvesturhorninu heldur um land allt. Það væri einstaklega ánægjuleg breyting fyrir byggðir landsins. Höfundur er hagfræðingur og lektor við viðskiptadeild HA. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Vegagerð Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar