Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar 25. ágúst 2026 12:30 Fram til þessa hefur undirritaður haldið sig til hlés í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fram fer næsta laugardag. Ekki vegna þess að ég hafi ekki skoðun á málinu, ekki vegna þess að ég hafi ekki gert upp hug minn heldur vegna þess að mér þykir þetta vera mál þjóðarinnar, fólksins í landinu sem á skilið að taka upplýsta og yfirvegaða ákvörðun án afskipta stjórnmálanna, peningaaflanna eða annarra sérhagsmunafla. En nú þegar dagafjöldinn í sjálfa þjóðaratkvæðagreiðsluna er talinn á fingrum annarrar handar þá hefur upplýsingaóreiðan eiginlega endanlega keyrt um þverbak. Einn stærsti fjölmiðill landsins flytur svo ónákvæma frétt af álitsgerð þriggja lagaprófessora að þeir hinir sömu sjá sig knúna til að senda frá sér fréttatilkynningu til að leiðrétta vitleysuna. Ein Nei-hreyfingin lætur í veðri vaka að atkvæði greitt já þýði að auðlindir Íslands verði einhvern veginn settar á sölu. Ekkert er fjarri sannleikanum. Þá ríða ungir sem aldnir höfðingjar íslenskra vinstri manna (sem hafa eiginlega alltaf verið á móti öllu) undir herópi Sjálfstæðisflokksins um að segja nei. Hvít er orðið svart og svart er orðið hvítt. Þannig ég ætla að leggja mitt lóð á vogarskálarnar og segja frá því hvers vegna ég ætla að segja já á laugardaginn kemur. Ég ber í flestum tilvikum fulla virðingu fyrir því að fólk sé annarar skoðunar í þessu máli. Evrópusambandið er ekki gallalaust, ekkert frekar en önnur mannana verk. En þegar ég met mögulega kosti gagnvart þeim meintu ókostum, eða fórnarkostnaði, sem í aðild kynni að felast, er niðurstaða mín alltaf sú sama. Það er þess virði að komast að niðurstöðu. Já þann 29. ágúst þýðir að vilja sjá hvað er í boði - hvorki meira né minna Því hefur gjarnan haldið fram undanfarin misseri að Ísland muni aldrei fá neitt sérsniðið að sínum þörfum í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Að það sé ekkert til að semja um, að pakkinn sem eigi að kíkja í sé í raun umbúðalaus. Raunveruleikinn og sagan sýna hins vegar allt annað. Evrópusambandið hefur ítrekað í sögu sinni sýnt sveigjanleika þegar kemur að sérstöðu einstakra aðildarríkja og hér eru dæmin því til sönnunar: ●Írar standa alfarið fyrir utan Schengen-samstarfið þar sem þeir töldum hagsmunum sínum betur borgið utan þess. ●Malta fékk sérstakt fyrirkomulag og vernd yfir sínu 25 sjómílna fiskveiðilögsögusvæði til að vernda smábátaflota sinn og staðbundið lífríki. ●Danir tryggðu sér varanlega undanþágu um kaup útlendinga á dönskum sumarhúsum til að koma í veg fyrir óheft uppkaup. ●Svíar fengu varanlega undanþágu fyrir sænska munntóbakið, sem er bannað í öllum öðrum aðildarríkjum ESB. Allur málflutningur um að varanlegar sérlausnir séu ekki í boði við inngöngu í ESB fellur um sjálfan sig þegar þessi dæmi eru skoðuð. Af hverju ætti Ísland með sína landfræðilegu sérstöðu, sérstöðu í orkumálum og sjávarútvegi ekki að geta samið um sínar sérlausnir? Að halda því fram að við getum ekki einu sinni rætt slíkt er í besta falli vanmat á okkar eigin samningsstöðu og í versta lagi eitthvað allt annað. Aðildarviðræður eru það sem það hljóðar upp á. Aðildarviðræður. Það þarf ekki að horfa lengra en til Noregs sem í tvígang hefur gengið til aðildarviðræðna, lagt aðildarsamning í dóm norsku þjóðarinnar sem síðan tók endanlega ákvörðun. Verði Já ofan á á laugardaginn hefst nákvæmlega sama ferlið. Stöðugleiki, gjaldmiðill og alvöru samkeppni En um hvað snýst málið? Svörin eru vafalaust misjöfn fyrir þá 272.690 Íslendinga sem eru á kjörskrá á laugardaginn kemur. En fyrir mig snýst þetta um lífskjör heimilanna, fjölskyldufólksins í landinu og unga fólksins. Sambúðin með íslensku krónunni, með tilheyrandi verðbólguskotum, vaxtaokri og sveiflum, bitna alltaf hvað harðast einmitt á ungu fólki og fjölskyldum sem m.a. eru að koma sér þaki yfir höfuðið. Mögulegur ávinningur af aðild og upptöku trausts gjaldmiðils þegar að þessum atriðum kemur er augljós. Lægri vextir og stöðugara verðlag er raunverulegur möguleiki með inngöngu í myntbandalagið og upptöku Evru. Þetta er ekki draumkennd framtíðarsýn, dæmin sýna að þetta hefur endurtekið gerst þegar ríki með sjálfstæðan, minni gjaldmiðil hefur farið þessa leið. Raunveruleg virk samkeppni, halló? Mikið þætti mér gott að geta haft kostinn á því að beina viðskiptum mínum til annarra en bankanna þriggja (sem eru allir eins) og tryggingafélaganna fjögurra (sem eru líka öll eins). Og síðast en ekki síst, fyrirsjáanleikinn. Því sú staðreynd að hvert og eitt íslenskt heimili þarf að keyra sitt heimilisbókhald eins og vogunarsjóður er bara eitthvað sem ég er kominn með nóg af. Klárum málið og tökum upplýsta ákvörðun Verði já-ið ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni hefjumst við sem þjóð handa við að halda áfram aðildarviðræðunum sem hófust árið 2009. En í gerólíkri stöðu, miklu sterkari stöðu, en við vorum í rétt eftir fjármálahrun. Með því að klára viðræðurnar fáum við loksins svart á hvítu fullbúinn aðildarsamning þar sem við fáum endanlega úr því skorið hvaða ávinningur er fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið og hvað við þyrftum mögulega að gefa eftir. Þegar hann liggur fyrir fer fram önnur þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem þjóðin tekur lokaákvörðun. Að segja JÁ næsta laugardag er ekki ákvörðun um að ganga í ESB. Það er ákvörðun um að fá öll gögn á borðið, hætta að giska og taka upplýsta ákvörðun. Við höfum bókstaflega engu að tapa. Þess vegna segi ég já. Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar