Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar 25. ágúst 2026 20:00 Við stöndum á tímamótum og höfum tvo skýra valkosti. Annar kosturinn er að segja já og hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, ljúka aðildarsamningi og vega og meta tækifærin sem hann kann að fela í sér. Hinn kosturinn er að segja nei og taka ekki frekari skref í þessa átt. Íslenska þjóðin hefur notið góðs af framsýni og fyrirhyggju í alþjóðamálum. Sérstaklega má nefna fjórar mikilvægar ákvarðanir sem hafa sett mark á hvernig íslenskt samfélag hefur þróast. Þær eru innganga okkar í Sameinuðu þjóðirnar, ákvörðunin um að vera stofnaðilar að Atlantshafsbandalaginu (NATO), aðild okkar að Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA) og loks að Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Sameinuðu þjóðirnar og NATO hafa fært okkur öryggi, rödd í samfélagi þjóðanna og skýra stöðu sem sjálfstætt og fullvalda ríki. EFTA og EES hafa tryggt okkur sögulega efnahagslega velsæld, aðgang að öflugasta innri markaði heims og tækifæri til viðskipta sem við njótum góðs af á hverjum einasta degi. Aðildin að Sameinuðu þjóðunum var nánast óumdeild. Hinar voru það ekki. Nei-sinnar töldu aðild að NATO vera svik við fullveldisrétt þjóðarinnar sem myndi gera okkur undirorpin erlendum herveldum. Ekki voru gagnrýniraddirnar lágstemmdari vegna EFTA og EES. Í sambandi við EFTA var talað um að Íslendingar myndu missa forræði sitt yfir auðlindum og atvinnuvegum og varðandi EES um að samningurinn væri vondur, óhagstæður og beinlínis hættulegur fyrir þjóðina. Hvað höfum við lært? Ekki þarf að fjölyrða um það að hrakspárnar rættust ekki. Þvert á móti hafa fáar ákvarðanir reynst okkur gæfuríkari en einmitt þær sem hafa aukið samstarf okkar á alþjóðasviðinu. Sem betur fer höfðu framsýnir stjórnmálaleiðtogar okkar á 20. öldinni yfirhöndina. Þar fór fremst í flokki forystufólk Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Fólk sem tók af skarið og vissi að Ísland ætti heima í samfélagi þjóða. Þar væri hag okkar best borgið. Þegar við ræðum hvort eigi að hefja viðræður að nýju við Evrópusambandið birtast úrtöluraddir og sjónarmið sem eiga sér ótrúlega margar hliðstæður úr fyrri tíð. Við heyrum kunnuglegt stef um fullveldi, auðlindir og meintar hættur af alþjóðasamstarfi. Sagan hefur þegar fellt sinn dóm. Óttinn hefur alltaf reynst haldlaus og hann er það ekki síður nú um stundir. Ég trúi því að samningaviðræður við Evrópusambandið muni staðfesta enn á ný að lífsgæði okkar, tækifæri og öryggi haldist í hendur við þétta og nána samvinnu við aðrar þjóðir. Þegar samningur liggur á borðinu tökum við upplýsta ákvörðun, í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu, um hvort við viljum stíga skrefið til fulls. Það er jákvætt að læra af sögunni. Höfundur er fjármála- og efnahagsráðherra og varaformaður Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Daði Már Kristófersson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar