Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar 26. ágúst 2026 09:00 Ég segi já 29. ágúst. Það geri ég vegna þess að heimurinn er að breytast – og ég tel okkur tvímælalaust hafa fleiri möguleika, fleiri valkosti og vera í sterkari stöðu ef við göngum til viðræðna við Evrópusambandið nú, heldur en ef við sleppum því. Ísland er í góðri samningsstöðu. Við þurfum að halda vel utan um sérstöðu okkar – um sjávarútveginn, landbúnaðinn, sjálfbærni okkar – og semja með okkar ýtrustu kröfur að leiðarljósi. Sagan sýnir að okkur hefur farnast best þegar við höfum tekið skref inn í aukið samstarfi við önnur, líktþenkjandi ríki sem bera virðingu fyrir okkur sem þjóð. Nú höfum við annað slíkt tækifæri. Ótvíræðir kostir fylgja Evrópusambandsaðild og upptöku evru, ef þjóðin myndi ákveða að stíga það skref. Það er dýrt fyrir okkur Íslendinga að halda úti sjálfstæðri örmynt og fjármagna okkar eigin gjaldeyrisvaraforða. Krónan er líka hávaxtamynt, sem viðkvæm er fyrir ytri áföllum. Vaxtakostnaður bæði ríkis og sveitarfélaga er miklu hærri en hann þyrfti að vera. Með því að spara þessar upphæðir gæti skapast svigrúm til að setja meiri fjárhæðir í heilbrigðiskerfið, innviði okkar, í það sem skiptir landsmenn hvað mestu máli að sé í lagi. Við sem höfum upplifað efnahagsuppgang og -hrun þekkjum það líka hvað óstöðugur gjaldmiðill getur haft djúpstæð áhrif á heimilisbókhaldið og fjölskyldurnar okkar og litlu og meðalstóru fyrirtækin sem drífa áfram efnahagslífið. Við sem byggjum þetta land höfum lagt mikið á okkur til þess að byggja upp lífsgæði á Íslandi. Ég tel hins vegar að það sé hægt að gera enn betur, með auknum efnahagslegum stöðugleika og hagfelldara vaxtaumhverfi. Ísland er frábært land og á ýmsum sviðum stöndum við einna fremst meðal jafningja. En það er ekki síst vegna tilstuðlan samstarfs við önnur ríki sem við höfum náð að dafna, verandi lítil þjóð sem treystir mjög á innflutning og útflutning. Ég trúi því staðfastlega að með auknu samstarfi við Evrópu getum við náð enn meiri árangri. Í það minnsta tel ég áhættuminna að fara í viðræður – með hagsmuni og sérstöðu Íslands að leiðarljósi – heldur en að loka dyrunum strax. Þess vegna segi ég já 29. ágúst. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragna Sigurðardóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar