Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar 26. ágúst 2026 09:10 Á laugardaginn er kosið um hvort Ísland eigi að skoða þann möguleika að ganga í Evrópusambandið. Sá möguleiki getur falið í sér bjartari og betri framtíð fyrir yngri kynslóðir Íslendinga - en mun ekki breyta miklu fyrir okkur sem eldri erum. Þess vegna ættum við alls ekki að nota atkvæði okkar til að loka á möguleika sem hugnast mörgu ungu fólki. Það er að mínu viti siðferðilega rangt af okkur að nota atkvæðisréttinn til að ræna yngri kynslóðir þeim möguleika að skoða hvort aðild gæti verið þeim til góðs. Yngra fólk sér fjölmörg tækifæri sem aðild getur opnað á ýmsum sviðum - fyrir utan verulegan fjárhagslegan ávinning. Viljum við ræna yngra fólk þeim möguleika að lækka verulega matarverð og borga miklu minna fyrir að koma sér upp þaki yfir höfuðið? Eigum við að ræna afkomendur okkar þessum möguleika til að stórbæta lífskjör sín? Er ekki betra að þau fái tækifæri til að skoða það sem er í boði og taki síðan upplýsta ákvörðun? Margt er sagt þessa dagana eins og að Evrópulönd séu rænd náttúruauðlindum sínum eða séu ekki sjálfstæð og fullvalda ríki. Ekkert af þessu er rétt. Staðreyndin er sú að í öllum löndum Evrópusambandsins er yfirgnæfandi meirihluti fólks ánægður með veru sína þar samkvæmt könnunum. Við erum kannski ekki spennt fyrir Evrópusambandinu af ýmsum ástæðum en sá tími kann að koma að það sé lífsnauðsyn fyrir Ísland að vera hluti af þeirri sterku heild. Við getum ekki séð það fyrir. Malta er lítil eyja eins og Ísland. Árið 2003 kusu Maltverjar að ganga í Evrópusambandið. Lítill meirihluti, eða 53%, kusu með inngöngu en í dag telja 94% landsmanna að sú ákvörðun hafi verið þeim til góðs. Bretar kusu naumlega að ganga úr Evrópusambandinu árið 2016. Samkvæmt könnunum var það eldra fólk úti á landi sem kaus að ganga úr Evrópusambandinu - en unga fólkið í borgunum vildi vera þar áfram. Í dag segja yfir 70% Breta að útgangan hafi verið röng ákvörðun. Stór hluti elstu kynslóðarinnar sem kaus með útgöngu fyrir áratug er horfinn yfir móðuna miklu. Við ættum ekki að gera sömu mistökin. Þess vegna skulum við ekki að segja nei á laugardaginn. Kjósum já eða skilum auðu - þetta eru leynilegar kosningar. Við skulum sameinast um að ræna ekki unga fólkið tækifærinu til að skoða þá framtíð sem því stendur til boða. Höfundur er leikstjóri og framleiðandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn B. Björnsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Skoðun Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun