Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar 26. ágúst 2026 10:11 Þegar ég útskrifaðist með meistaragráðu í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands árið 2011 stóðu aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið sem hæst. Á þeim tíma mótaðist sýn mín á stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu, eðli samningaviðræðna og mikilvægi fullveldisins. Fljótlega eftir námið starfaði ég á viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og fékk þar dýrmæta innsýn í það hvernig stjórnsýslan vinnur þegar verkefni af þessari stærðargráðu er sett af stað. Í umræðunni í dag heyrist oft að við eigum „bara að kíkja á samninginn“ eða „sjá hvað er í boði“. Sú mynd er villandi. Aðildarviðræður eru ekki eins og prufuáskrift sem maður mátar án skuldbindingar. Þær krefjast gríðarlegs tíma, fjármuna og vinnu af hálfu alls stjórnkerfisins. Það sá ég með eigin augum. Þegar viðræðurnar voru stöðvaðarárið 2013 höfðu 27 samningskaflar verið opnaðir en aðeins 11 lokað til bráðabirgða. Á bak við það lá margra ára vinna: stöðugildi voru færð til innan ráðuneyta, sérfræðingar unnu myrkranna á milli og mikilvægum verkefnum í annarri stjórnsýslu var ýtt til hliðar. Nú, rúmum áratug síðar, er aftur rætt um að hefja þetta ferli. En við göngum ekki inn í það blint. Í mati utanríkisráðuneytisins er beinn kostnaður við enduruppteknar viðræður varlega áætlaður um 1,9 milljarðar króna. En stærsti kostnaðurinn kemur ekki fram á fjárlögum. Hann felst í tímanum og fórnunum: Hvaða brýnu samfélagsmálum verður frestað á meðan okkar færustu sérfræðingar innan ráðuneyta og stofnana sitja á fundum í Brussel? Þar að auki skapar ferlið langvarandi óvissu. Fyrirtæki og fjárfestar þurfa skýrar leikreglur til framtíðar. Eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn benti á á sínum tíma dregur óvissa um framtíðarskipan lykilatvinnugreina, regluverk og gjaldmiðil úr fjárfestingu og framþróun. Að loknum áralöngum viðræðum, milljarðakostnaði og miklu vinnuálagi innan stjórnsýslunnar stæðum við svo frammi fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu – þar sem samningnum yrði hugsanlega hafnað. Það er að segja ef tækist að ljúka viðræðum, en síðasta ríkisstjórn sem hélt í þessa vegferð stöðvaði ferlið án árangurs. Ísland stendur sterkt. Við búum við mikil lífskjör, öfluga nýsköpun og traustar grunnstoðir. Í gegnum EES-samninginn og annað alþjóðlegt samstarf erum við nú þegar í nánu og góðu sambandi við Evrópu. Við þurfum ekki að setja framtíð landsins í biðstöðu til að komast að því hvað felst í fullri ESB-aðild. Afstaða mín byggir bæði á menntun minni í alþjóðamálum og þeirri reynslu að hafa séð hvernig ferlið virkar í reynd. Við þekkjum regluverkið, við þekkjum stofnanirnar og við vitum hvað ferlið kostar okkur. Við vitum hvað er í boði og við þurfum ekki annan hring. Ég segi nei. Höfundur er MA í alþjóðasamskiptum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar