Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar 26. ágúst 2026 11:21 Einkunnarorð okkar Íslendinga eru „þetta reddast“. Við höfum margoft náð að bregðast hratt við áföllum með samblöndu af samstöðu, þekkingu, útsjónarsemi og heppni. Ef til vill erum við sjaldan eins stolt þjóð og þegar við sjáum „þetta reddast“ raungerast. Viðbragðsáætlanir og langtímaplön vekja hins vegar ekki hjá okkur sömu jákvæðu hughrifin þó fæstir haldi því fram að slík plön séu ekki nauðsynleg.Ein af meginröksemdafærslum þeirra sem tala fyrir því að við eigum að halda í íslensku krónuna er að hún gefi okkur meiri stjórn þegar áföll og sveiflur verða. Ef við tökum upp evru munum við tapa þessu stjórntæki og missa sjálfstæða peningastefnu.Ég efast hins vegar um að stjórnvöld hafi nokkurn tíma haft almennilega stjórn á krónunni.Hvers virði er sjálfstæð peningastefna og mynt þegar niðurstaðan er áhætta, sveiflur og óstöðugleiki? Er "þetta reddast" skynsamleg stefna í peningamálum?Ef krónan væri raunverulegt stjórntæki væru vextir og verðbólga þá ekki lægri og stöðugleikinn meiri? Er raunhæft að ná stjórn á fljótandi örmynt?Ísland er pínulítið hagkerfi, krónan er þess vegna mjög viðkvæm fyrir sveiflum og erlendum áhrifum sem við höfum nær enga stjórn á, s.s. olíuverði, alþjóðlegum vöxtum, fiskverði og ferðamannastraumi. Seðlabankinn og stjórnvöld geta vissulega reynt að redda málunum með aðgerðum en að tala um að við höfum stjórn á krónunni á miklu frekar skylt við fræðilega óskhyggju en raunveruleika.Íbúar eins ríkasta lands í heimi eiga skilið að búa við sambærileg lánakjör og aðrar ríkar þjóðir sem búa við sambærilegt stjórnarfar.Það er ekkert eðlilegt við það að við vitum ekkert hvað við borgum fyrir húsnæðislánið okkar. Það er ekkert eðlilegt við það að borga af láni í hverjum mánuði árum saman og höfuðstóllinn bara hækkar og hækkar. Jafnvel þó að hlutirnir eigi það til að reddast þá verðum við að gera ráðstafanir sem auka líkur á stöðugleika til framtíðar og hætta að borga himinháar fjárhæðir fyrir hripleka krónu með gati.Fyrsta skrefið er að segja Já á laugardaginn! Höfundur er aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Einkunnarorð okkar Íslendinga eru „þetta reddast“. Við höfum margoft náð að bregðast hratt við áföllum með samblöndu af samstöðu, þekkingu, útsjónarsemi og heppni. Ef til vill erum við sjaldan eins stolt þjóð og þegar við sjáum „þetta reddast“ raungerast. Viðbragðsáætlanir og langtímaplön vekja hins vegar ekki hjá okkur sömu jákvæðu hughrifin þó fæstir haldi því fram að slík plön séu ekki nauðsynleg.Ein af meginröksemdafærslum þeirra sem tala fyrir því að við eigum að halda í íslensku krónuna er að hún gefi okkur meiri stjórn þegar áföll og sveiflur verða. Ef við tökum upp evru munum við tapa þessu stjórntæki og missa sjálfstæða peningastefnu.Ég efast hins vegar um að stjórnvöld hafi nokkurn tíma haft almennilega stjórn á krónunni.Hvers virði er sjálfstæð peningastefna og mynt þegar niðurstaðan er áhætta, sveiflur og óstöðugleiki? Er "þetta reddast" skynsamleg stefna í peningamálum?Ef krónan væri raunverulegt stjórntæki væru vextir og verðbólga þá ekki lægri og stöðugleikinn meiri? Er raunhæft að ná stjórn á fljótandi örmynt?Ísland er pínulítið hagkerfi, krónan er þess vegna mjög viðkvæm fyrir sveiflum og erlendum áhrifum sem við höfum nær enga stjórn á, s.s. olíuverði, alþjóðlegum vöxtum, fiskverði og ferðamannastraumi. Seðlabankinn og stjórnvöld geta vissulega reynt að redda málunum með aðgerðum en að tala um að við höfum stjórn á krónunni á miklu frekar skylt við fræðilega óskhyggju en raunveruleika.Íbúar eins ríkasta lands í heimi eiga skilið að búa við sambærileg lánakjör og aðrar ríkar þjóðir sem búa við sambærilegt stjórnarfar.Það er ekkert eðlilegt við það að við vitum ekkert hvað við borgum fyrir húsnæðislánið okkar. Það er ekkert eðlilegt við það að borga af láni í hverjum mánuði árum saman og höfuðstóllinn bara hækkar og hækkar. Jafnvel þó að hlutirnir eigi það til að reddast þá verðum við að gera ráðstafanir sem auka líkur á stöðugleika til framtíðar og hætta að borga himinháar fjárhæðir fyrir hripleka krónu með gati.Fyrsta skrefið er að segja Já á laugardaginn! Höfundur er aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar