Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar 26. ágúst 2026 16:18 Það er sjálfsagt ekki nokkur leið fyrir okkur sem lifum í nútíma velmegnun á 21. öld að setja okkur í spor forfeðra okkar eða skilja hvað varð til þess að þeir samþykktu Gamla sáttmála árið 1262. Í dag erum við þó sjálfsagt öll á því að vilja dæma þann atburð sem svik við land og þjóð og skref afturábak frá sjálfstæði og lýðræði undir kúgunarvald erlends konungsvalds. Mestu hefur þó þá sjálfsagt ráðið sú neyð er blasti við fólki á Íslandi hvað varðar flutning á aðföngum til landsins. Með öllu var ótryggt að nauðsynlegur kostur líkt og mjöl bærist hingað en það var jú ákvæði í sáttmálanum þar sem konungur tók á sig þá skyldu að tryggja nægja birgðarflutninga til Íslands. Vert er að velta því fyrir sér hvort ekki hafi á þeim tíma mátt finna Íslendinga sem höfðu til þess burði að kaupa skip og sjá til þess að landsmenn ættu greiðan aðgang að þeim fáu nauðþurftum sem tryggja þurfti að bærust til landsins svo hér væri búandi. Tregða aðila í slíkri stöðu til þess að standa nógu vel að því leiddi af sér skort sem vel mátti hagnast á. Við höfum auðvitað mjög takmarkaðar heimildir til að gera okkur mynd af því hvernig líf almennings kann að hafa verið á Íslandi á 12. öld en Gamli sáttmáli var undirritaður í von um betri tíð, að konungsríkið væri traustsins virði og hefði þann styrk og vilja sem til þyrfti. Hvort leysa hefði mátt vanda Íslendinga þá á annan hátt er erfitt að segja og vangaveltur um það hvort ekki hefði verið til staðar önnur lausn hér heima, og að allt sem hafi skort var viljinn, verður aldrei neitt meira en það. Við Íslendingar glímum við ýmsar áskoranir á 21. öld og þó svo að þær séu ekki jafn lífsógnandi og mjölskorturinn á 12. öld þá valda þær okkur velflestum ýmsum óþægindum og erfiði. Um helmingur þjóðarinnar vill nú fara þá leið að athuga hvort hægt sé að semja um og undirrita nýjan sáttmála. Að þessu sinni þó ekki við konung heldur ríkjasamband. Þessi sami helmingur þjóðarinnar bindur miklar vonir við að með góðum „Nýja sáttmála“ megi lagfæra það sem helst veldur óþægindum og gerir lífið erfiðara en það telur að þurfi að vera. Þessi helmingur Íslendinga hlýtur að hafa nú þegar komist að sömu niðurstöðu og forfeður okkar að vandamálin okkar séu okkur sjálfum ofvaxin og að þau verði ekki leyst nema með utanaðkomandi aðstoð. Slíka aðstoð sé ekki að fá nema beygja sig undir „konung“. Ég er þess nánast fullviss að á 12. öld hefði mátt finna á Íslandi stórefnaða bændur og héraðshöfðingja sem leyst hefðu geta vanda Íslendinga. Ef þeir hefðu haft vilja til og verið reiðubúnir að draga úr gróða sínum og huga frekar að heildarhagsmunum samfélagsins. Skyldu vera á Íslandi í dag stórefnaðir einstaklingar sem hafa alla burði til þess að bæta lífskjör almennings í landinu? Til þess gætu þeir þurft að kosta hluta síns eigin hagnaðar? Ég tel að við Íslendingar séum fullfærir um að bæta stöðuna hér sjálf en að það skorti til þess vilja hjá þeim sem græða mikið við núverandi aðstæður. Og þó svo að ég efist um að það breytist í bráð ætla ég samt að segja nei á laugardaginn. Gamli sáttmáli leysti úr vanda á sínum tíma og sjálfsagt gæti nýr sáttmáli gert það líka núna. Það er bara ekki sú leið sem ég tel að farsælast sé fyrir okkur að feta. Ég er þess nánast fullviss að framtíðin mun líta til baka á Nýja sáttmála með svipuðum augum og við gerum nú til Gamla sáttmála. Við getum sjálf lagfært okkar mál og það byrjar á breyttu hugarfari hjá öllum Íslendingum, en þó ekki hvað síst hjá þeim sem eiga meira en nóg. Vilji til þess að græða persónulega aðeins minna af því að samfélagið græðir meira á því er gott skref. Ég skora á alla eigendur fyrirtækja að lækka öll verð á öllu um 10% 1. september nk til frambúðar og sýna þannig við viljum breytingu og ætlum að hætta að láta græðgina stýra. Ég skora að sama skapi á alla leigusala húsnæðis að lækka núverandi húsaleigu um 10% frá næstu mánaðarmótum. Við getum þetta sjálf. Segjum nei og sýnum jafnframt í verki að við erum til í að berjast gegn græðgishugsýkinni sem herjar á Íslendinga. Við þurfum ekki að undirrita Nýjan sáttmála og gangast á ný undir „kóng“ til þess að bæta lífskjör á Íslandi. Þau sem eiga fjármagnið og stýra verslun okkar og viðskiptum, leigumarkaði og fjármögnunarfyrirtækjum hafa það í sinni hendi - en græðgin er alveg að drepa þau! Höfundur er fyrrverandi kennari og áhugamaður um framtíð Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun