Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar 27. ágúst 2026 07:40 Við Íslendingar erum stolt af sjálfstæði okkar. Og það eigum við sannarlega að vera. Sjálfstæðið er grunnurinn að því að við ráðum okkar eigin málum, mótum okkar eigin framtíð og veljum sjálf hvernig við eigum í samstarfi við aðrar þjóðir. Í umræðunni heyrist þó stundum sú hugsun að sjálfstæði felist helst í því að standa sem mest ein og halda öðrum í hæfilegri fjarlægð. Ég hef aldrei skilið sjálfstæði þannig. Sjálfstæði snýst í mínum huga um að geta tekið eigin ákvarðanir. Að ráða eigin framtíð. Að hafa rödd og nota hana. Og þegar ákvarðanir sem varða okkar hagsmuni eru teknar með öðrum þjóðum snýst sjálfstæði líka um að mæta á staðinn og taka þátt. Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið en lætur ekki vísa sér til sætis í hliðarsal. Öryggi í samstarfi við önnur ríki Við Íslendingar höfum raunar byggt velgengni okkar á nákvæmlega þessu í áratugi. Við erum stofnaðilar að Atlantshafsbandalaginu vegna þess að við töldum öryggi okkar best tryggt í samstarfi við önnur lýðræðisríki. Við gengum í EFTA og síðar inn á innri markað Evrópu með EES-samningnum vegna þess að við vildum að íslenskt fólk og fyrirtæki nytu aðgangs að stærri markaði og auknum tækifærum. Við höfum gert fríverslunarsamninga, yfirleitt í samstarfi við önnur ríki, vegna þess að opin samskipti og alþjóðlegt samstarf hafa reynst okkar litlu útflutningsþjóð vel. Ekkert af þessu gerði Ísland minna sjálfstætt. Þvert á móti hefur þetta styrkt stöðu okkar. Að hafa áhrif þar sem ákvarðanirnar eru teknar Í dag eigum við aðild að innri markaði Evrópu í gegnum EES. Það samstarf hefur reynst Íslandi gríðarlega vel og ég mun alltaf standa vörð um það. En fyrirkomulagið hefur líka sín takmörk. Við tökum upp stóran hluta þess regluverks sem gildir á sameiginlega markaðnum. En þegar pólitískar ákvarðanir eru teknar sitjum við ekki við sama borð og þau ríki sem taka ákvörðunina. Spurningin er hvort við teljum það áfram besta fyrirkomulagið fyrir Ísland til framtíðar. Sérstaklega á tímum sem þessum, þegar tollastríð geisa og viðskipti eru í auknum mæli orðin stjórntæki stórvelda. Ég vil fá svar við þeirri spurningu. Ekki með ágiskunum heldur með samningaviðræðum þar sem við sendum okkar besta fólk til að semja fyrir Íslands hönd. Ef þjóðin segir já við því að hefja aðildarviðræður er hún ekki að samþykkja aðild að Evrópusambandinu. Hún er að samþykkja að Ísland setjist við borðið og reyni að ná eins góðum samningi og mögulegt er. Síðan kemur samningurinn heim og þá tekur þjóðin sjálf afstöðu. Mætum þegar framtíð okkar er rædd Við erum þjóð sem hefur varið gríðarlega hagsmuni á alþjóðavettvangi í áratugi. Við höfum byggt upp eitt öflugasta sjávarútvegskerfi heims, tryggt réttindi okkar yfir auðlindum og hafsvæðum og gert samninga sem hafa opnað íslenskum fyrirtækjum markaði um allan heim. Við eigum vel menntað fólk, sterkar stofnanir, mikilvægar auðlindir og einstaka landfræðilega stöðu. Við eigum að mæta til viðræðna með ítrustu kröfur og fullt sjálfstraust. Við eigum að hafa kjark til að sjá hvað stendur okkur til boða. Því Ísland á að vera þjóð sem mætir þegar framtíð hennar er rædd. Þjóð sem kemur sjónarmiðum sínum að. Þjóð sem gerir kröfur, semur af festu og treystir svo eigin fólki til að leggja mat á niðurstöðuna. Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið. Hún sættir sig ekki við hliðarsalinn. Höfundur er utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar