Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar 27. ágúst 2026 10:32 Þeir ráðamenn og hagfræðingar, sem hafa tjáð sig um efnahagsmál í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar þann 29. ágúst n.k., þreytast aldrei á samanburði á vöxtum, verðbólgu og stærð myntsvæðis krónunnar, sérstaklega við Evrópusambandið (ESB) og aðildarríki þess. En þeir hafa þagað um samanburð á þjóðartekjum Íslands og þessara landa. Með þessari grein verður sú þögn rofin. Efnahagslegur árangur ríkja er mældur í vergri landsframleiðslu (e. gross domestic product eða VLF) eða vergum þjóðartekjum (e. gross national income eða VÞT), á hvern mann. VLF samanstendur af (1) einkaneyslu, (2) samneyslu, (3) fjármunamyndun og (4) hreinum útflutningi. VÞT samanstanda svo af (1) VLF og (2) hreinum launa- og fjármagnstekjum frá útlöndum, þ.e. tekjum íbúa hvers og eins hagkerfis. Munurinn á milli þessara stærða er lítill á Íslandi, en er t.d. mikill á Írlandi, þar sem VÞT eru mun lægri en VLF vegna greiðslu launa, arðs og vaxta til erlendra aðila. Af þessum tveimur mælikvörðum eru VÞT meira viðeigandi heldur en VLF í samhengi ESB, þar sem árleg framlög aðildarríkja til sambandsins miða að hluta til við VÞT, en ekki VLF. Alþjóðabankinn (World Bank) birtir í gagnagrunni sínum ýmsar upplýsingar um VLF og VÞT landa heimsins. Tölur bankans fyrir árið 2025 sýna t.d. hvaða lönd í heiminum höfðu hæstu VÞT á hvern mann í bandaríkjadölum. Fimm hæstu löndin þar voru: Sviss með $110,3 þúsund, Noregur með $97,3 þúsund, Lúxemborg með $95,7 þúsund, Ísland með $89,2 þúsund og Bandaríkin með $88,8 þúsund. Af þessum ríkjum er einungis eitt aðildarríki ESB, en þrjú aðildarríki EFTA. Ísland er þannig með fjórðu hæstu VÞT á mann í heiminum, þrátt fyrir það að vera með “örmynt” og “okurvexti”. Til samanburðar, þá voru VÞT á hvern mann $48,2 þúsund á evru svæðinu og $45,1 þúsund í ESB árið 2025, eða 54,1% og 50,5% af VÞT Íslands. Við erum greinilega að gera eitthvað rétt. Höfundur er fyrrverandi forstjóri Bankasýslu ríkisins og hefur starfað á innlendum og alþjóðlegum fjármálamarkaði í um 30 ár. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar