Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar 27. ágúst 2026 13:11 Nú er Evrópusambandsumræðan í hámarki og hefur hún yfirskyggt flest önnur málefni síðustu vikur. Þó er vert að huga að heræfingunni Norður-Víking sem stendur yfir, þar sem fjölmargir Íslendingar taka þátt í byssuleikjum ásamt „fjölþjóðlegum liðsafla frá Bandaríkjunum, Belgíu, Kanada, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Noregi, Svíþjóð, Þýskalandi og NATO.“ Markmiðið er að æfa hefðbundinn hernað, viðbrögð við fjölþáttaógnum og virkjun 5. greinar Nató, sem margir hafa nú bent á að Nató gæti virkjað gegn sjálfu sér ef Bandaríkin réðust á Grænland.Á meðan ríkisstjórn Donald Trumps hefur dregið Bandaríska herinn úr heræfingum í Suður-Kóreu fyrr en búist var við og sendir spurningalista um hollustu á Nató-þjóðir til að undirbúa fækkun liðsafla í Evrópu þá boðar bandaríski yfirhershöfðingi Nató langtímauppbyggingu á Íslandi og aukna áherslu á norðurslóðir. Utanríkisráðherra hefur fagnað þessari áherslubreytingu þó að minna bóli á ógninni sem þessari hernaðaruppbyggingu er beint gegn, rússneskar siglingar um Norður-Atlantshaf eru t.d. í sögulegu lágmarki.Það að stefnt sé á að auka viðbúnað á norðurslóðum er því varla til marks um raunverulega ógn heldur meðvirkni með þráhyggju Trumps varðandi Grænland. Ólíkt Evrópu og Austur-Asíu þá er Ísland og norðurheimskautið innan heimavarnarsvæðis Bandaríkjanna, svæði sem verður ekki fórnað þó að Bandaríkin yfirgefi skuldbindingar sínar við Bandamenn í Evrópu og Austur-Asíu. Það er því skiljanlegt að sumir líti til Evrópu sem mótvægis við þessa ásælni Bandaríkjanna en það er því miður tálsýn.Evrópu er nú í miðju vígvæðingarkapphlaupi og hernaðarútgjöld ESB ríkja hafa meira en tvöfaldast frá 2021. Þar er margt sem veldur, krafa Trumps um að 5% þjóðarframleiðslu fari í hernaðarútgjöld, óttinn við Rússa og vantraust á varnarskuldbindingum Bandaríkjanna við evrópsk Nató-ríki. Þessari uppbyggingu er hinsvegar ekki beint gegn Bandaríkjunum sjálfum þó að þau miði að því að auka sjálfstæði frá þeim og í raun þjónar hún hagsumunum Bandaríkjanna. Núna hafa þau loksins fengið hin tryggu Evrópuríki til þess að ausa meiri peningum í hernaðarmaskínuna, þar á meðal Bandarísk vopn. Ekkert bólar hins vegar á sjálfstæðari utanríkisstefnu evrópskra Nató-ríkja. Þau styðja eða láta óátalda stefnu Bandaríkjanna gegn Kína, stuðninginn við þjóðarmorð Ísraela í Palestínu og stríðið við Íran. Norðurlöndin hafa opnað herstöðvar sínar fyrir Bandaríkjaher, meira að segja Danmörk eftir að hótanirnar gegn Grænlandi byrjuðu. Það er því óskhyggja að halda að Evrópuríkin myndu verja Ísland gegn ásælni Bandaríkjanna.Evrópusambandið sjálft hefur tekið meiri og meiri þátt í þessari hervæðingu með styrkjum til hergagnaiðnaðar, undanþágum frá skuldareglum og loforðum um stofnun sameiginlegs hers. Evrópusambandið hefur sitt hermálastarfslið, rekur fjölmörg hernaðartengd verkefni og Lissabon-sáttmálinn hefur klausu um sameiginlegar varnir. Írland setti fyrirvara við þá klausu vegna hlutleysis síns og Malta tekur ekki þátt í hernaðarsamstarfinu en ef Ísland gengi inn í sambandið þá myndi það gera það sem Nató-ríki og miðað við stefnu síðustu ríkisstjórna myndu íslenskir utanríkisráðherrar troða sér inn í allar þær samkomur þar sem finna má borðalagða herforingja. Ísland myndi ganga inn í bandalag þar sem verið er að skera niður velferðarkerfin til að fóðra hernaðarmaskínuna og íslenskir ráðamenn hafa hingað til ekki sýnt mikinn vilja til að standa gegn slíkum kröfum. Íslensk hernaðarútgjöld hafa líka margfaldast síðustu ár og forsætisráðherra hefur lofað 1,5% af þjóðarframleiðslu í hernaðartengd útgjöld sem hafa ekkert með raunverulegar varnir Íslands að gera.Öryggi Íslands verður ekki tryggt með því að ganga inn í enn annað hernaðarbandalag. Evrópsk vígvæðing mun ekki verða vænlegri til friðar en sú bandaríska. Eina raunverulega öryggið er í friðsamlegri utanríkisstefnu og hlutleysi í átökum stórveldanna því að herstöðvar eru bara skotmörk og vopn geta ekki tryggt frið. Hver svo sem niðurstaðan verður á laugardaginn vona ég að friðsamir Íslendingar krefjist þess að íslensk stjórnvöld taki ekki frekari þátt í vopnakaupum og vígvæðingu, hvort sem það er í samstarfi við ESB eða Nató. Ef við viljum standa gegn Bandaríkjunum væri nær að segja upp herstöðvasamningnum nú á 75 ára afmæli hans. Höfundur er bókavörður, friðarsinni og sagnfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guttormur Þorsteinsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Skoðun Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun