Hugrekki til að breyta Berglind Guðmundsdóttir skrifar 28. ágúst 2026 10:01 Nú eru um þrír mánuðir síðan nokkrir einstaklingar tóku sig saman og stofnuðu SJÁ félagasamtök. Með ekkert nema hugmyndir um að við vildum skapa vettvang fyrir fólk sem sannarlega vildi fá að sjá samning áður en endanleg ákvörðun um Evrópusambandið yrði tekin. Ég held að ekkert okkar hafi fyllilega áttað sig á því út í hvað við vorum að fara. Hversu stórt umfangið yrði og hversu mikilli andstöðu við myndum mæta. En einnig hversu miklum kærleik, hlýju og samstöðu við myndum upplifa. Síðan þá höfum við ferðast vítt og breitt um landið, fengið með okkur í lið flotta talsmenn, hitt magnað fólk og átt mikilvæg samtöl. Þegar ég tek saman þessa mánuði fyllist ég miklu stolti og þakklæti. Þetta hefur verið mögnuð reynsla. En orðið sem er mér efst í huga er hugrekki. Því það þarf hugrekki til að vera tilbúinn að sjá að hlutirnir geta verið öðruvísi.Það þarf hugrekki til að vera tilbúinn að stíga fram.Og það þarf hugrekki til að vera tilbúinn að taka þátt í því að skapa breytingar. Stórar og mikilvægar breytingar fá alltaf viðnám. Og við höfum svo sannarlega fengið nóg af því. En það hefur bara hvatt okkur til dáða. Það er lítið eftir og mjótt á munum. Hvert eitt og einasta já þarna úti skiptir öllu máli.Nú er ekki tíminn til að halda aftur af sér. Nú er tíminn til að vera hugrökk. Til að stíga fram.Til að hvetja aðra til að gera slíkt hið sama. Og á morgun skiptir eitt mestu máli. Að mæta á kjörstað. Að taka þátt. Og merkja X við já.Já til að sjá. Höfundur er stjórnarmaður SJÁ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Skoðun Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nú eru um þrír mánuðir síðan nokkrir einstaklingar tóku sig saman og stofnuðu SJÁ félagasamtök. Með ekkert nema hugmyndir um að við vildum skapa vettvang fyrir fólk sem sannarlega vildi fá að sjá samning áður en endanleg ákvörðun um Evrópusambandið yrði tekin. Ég held að ekkert okkar hafi fyllilega áttað sig á því út í hvað við vorum að fara. Hversu stórt umfangið yrði og hversu mikilli andstöðu við myndum mæta. En einnig hversu miklum kærleik, hlýju og samstöðu við myndum upplifa. Síðan þá höfum við ferðast vítt og breitt um landið, fengið með okkur í lið flotta talsmenn, hitt magnað fólk og átt mikilvæg samtöl. Þegar ég tek saman þessa mánuði fyllist ég miklu stolti og þakklæti. Þetta hefur verið mögnuð reynsla. En orðið sem er mér efst í huga er hugrekki. Því það þarf hugrekki til að vera tilbúinn að sjá að hlutirnir geta verið öðruvísi.Það þarf hugrekki til að vera tilbúinn að stíga fram.Og það þarf hugrekki til að vera tilbúinn að taka þátt í því að skapa breytingar. Stórar og mikilvægar breytingar fá alltaf viðnám. Og við höfum svo sannarlega fengið nóg af því. En það hefur bara hvatt okkur til dáða. Það er lítið eftir og mjótt á munum. Hvert eitt og einasta já þarna úti skiptir öllu máli.Nú er ekki tíminn til að halda aftur af sér. Nú er tíminn til að vera hugrökk. Til að stíga fram.Til að hvetja aðra til að gera slíkt hið sama. Og á morgun skiptir eitt mestu máli. Að mæta á kjörstað. Að taka þátt. Og merkja X við já.Já til að sjá. Höfundur er stjórnarmaður SJÁ.
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun