Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 28. ágúst 2026 13:30 Við Íslendingar værum ekki á þeim stað sem við erum í dag, sem eitt auðugasta velsældarsamfélag heimsins, ef við hefðum ekki tekið fjölmargar góðar ákvarðanir í gegnum tíðina. Vitanlega höfum við einnig stundum tekið slæmar ákvarðanir eins og gengur en góðu ákvarðanirnar hafa hins vegar ljóslega verið marfalt fleiri. Annars væri staðan hér á landi ekki eins góð og raun ber vitni. Það er ekki sjálfgefið eins og dæmi eru um í tilfelli ófárra annarra ríkja. Það gerðist ekki af sjálfu sér. Tal um að við þurfum að ganga í Evrópusambandið og fara undir stjórn þess með þeim rökum að við höfum haldið svo illa á málum stenzt enga skoðun. Við höfum það almennt miklu betra en ríki sambandsins. Það er ástæða fyrir því að talsmenn inngöngu í Evrópusambandið tala helzt ekki um aðrar hagstærðir en vextina enda ekki til þess að hrópa húrra fyrir. Hins vegar eru vextirnir ekki birtingarmynd heilbrigðs efnahagslífs heldur þvert á móti viðvarandi efnahagslegrar stöðnunar. Hitt er svo annað mál að jafnvel þó það væri rétt að við hefðum almennt haldið illa á okkar málum til þessa, eins og talmenn inngöngu í Evrópusambandið vilja meina þegar þeir tala niður Ísland og efnahagsmál landsins, væru það vitanlega ekki rök fyrir þvi að ákveða um leið að unga fólkið okkar og næstu kynslóðir gætu ekki haldið betur á málum en við höfum gert. Hvers vegna eigum við ekki að treysta því til þess að gera enn betur? Það á skilið tækifæri til þess að sýna hvað í því býr. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Við Íslendingar værum ekki á þeim stað sem við erum í dag, sem eitt auðugasta velsældarsamfélag heimsins, ef við hefðum ekki tekið fjölmargar góðar ákvarðanir í gegnum tíðina. Vitanlega höfum við einnig stundum tekið slæmar ákvarðanir eins og gengur en góðu ákvarðanirnar hafa hins vegar ljóslega verið marfalt fleiri. Annars væri staðan hér á landi ekki eins góð og raun ber vitni. Það er ekki sjálfgefið eins og dæmi eru um í tilfelli ófárra annarra ríkja. Það gerðist ekki af sjálfu sér. Tal um að við þurfum að ganga í Evrópusambandið og fara undir stjórn þess með þeim rökum að við höfum haldið svo illa á málum stenzt enga skoðun. Við höfum það almennt miklu betra en ríki sambandsins. Það er ástæða fyrir því að talsmenn inngöngu í Evrópusambandið tala helzt ekki um aðrar hagstærðir en vextina enda ekki til þess að hrópa húrra fyrir. Hins vegar eru vextirnir ekki birtingarmynd heilbrigðs efnahagslífs heldur þvert á móti viðvarandi efnahagslegrar stöðnunar. Hitt er svo annað mál að jafnvel þó það væri rétt að við hefðum almennt haldið illa á okkar málum til þessa, eins og talmenn inngöngu í Evrópusambandið vilja meina þegar þeir tala niður Ísland og efnahagsmál landsins, væru það vitanlega ekki rök fyrir þvi að ákveða um leið að unga fólkið okkar og næstu kynslóðir gætu ekki haldið betur á málum en við höfum gert. Hvers vegna eigum við ekki að treysta því til þess að gera enn betur? Það á skilið tækifæri til þess að sýna hvað í því býr. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar