Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar 28. ágúst 2026 16:52 Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur fékk samþykki Alþingis 2009 til að hefja viðræður við ESB um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Vinstri græn áttu aðild að ríkisstjórninni og voru þá eins og nú andstæðingar aðildar en létu samþykkt málsins á Alþingi yfir sig ganga. Þeir fengu ráðuneyti sjávarútvegs- og landbúnaðarmála. Í upphafi viðræðna átti einmitt að leggja áherslu á þessa tvo kafla aðildarsamnings en ráðherrar VG komu í raun í veg fyrir það. Þegar ríkisstjórnin fór frá voru enn margir kaflar óleystir og viðræður voru komnar í strand. Þeir sem tóku við völdum og mynduðu ríkisstjórn eftir kosningarnar 2013, Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkur, voru harðir andstæðingar aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Þeir ætluðu að hætta viðræðunum en höfðu ekki þingstyrk til að slíta þeim formlega. Í stað þess sendi þáverandi utanríkisráðherra bréf 2015 til ESB um ótímabundna frestun viðræðna. Var tilkynnt sú niðurstaða formanna stjórnarflokkanna, Sigmundar og Bjarna, að viðræður myndu ekki hefjast að nýju fyrr en að fengnu samþykki í þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Væntanlega hefur þessi aðferð þeirra Sigmundar og Bjarna átt að tryggja að viðræður myndu ekki hefjast aftur. Þeir vissu manna best um andstöðu almennings við NATÓ aðild, EFTA aðild og EES samninginn enda voru þessir samningar af þeirrri ástæðu aðeins samþykktir af Alþingi en ekki bornir undir þjóðaratkvæði. Þegar fyrir lá að núverandi ríkisstjórn vildi leggja fyrir þjóðina tillögu um hefja aðildarviðræður að nýju 29. ágúst nk voru liðsmenn Sigmundar í Miðflokknum, Framsóknarmenn og liðsmenn Bjarna í Sjálfstæðisflokknum ásamt samtökum bænda, sjávaútvegsfyrirtækja og atvinnulífs tilbúnir að gera allt sem þeir gátu til að fella slíka tillögu þannig að viðræður myndu ekki hefjast að nýju. Í sjálfu sér var ekkert sem að knúði ríkisstjórnina til að fara þessa leið, þ.e. að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu, enda lá samþykki þingsins frá 2009 fyrir og ekkert hefði átt að stöðva upptöku viðræðna á þeim grunni, ef þingmeirihulti hefði haldið. Nú hefur kosningabaráttan staðið á milli ríkisstjórnarflokka Samfylkingar og Viðreisnar sem hafa lagt áherslu á málefnalega baráttur fyrir því að fá samþykki fyrir að leiða aðildarviðræður til lykta þannig að þjóðin fái tækifæri til að skoða samninginn og greiða um hann atkvæði. Andstæðingar þess, NEI sinnarnir, hafa beitt hvers kyns aðferðum, málefnalegum, hótunum og hræðsluáróðri, til að freista þess að fella tillöguna. Ekki er alveg ljóst hvað það er sem NEI sinnar óttast en verði NEI tillagan samþykkt skerðir það framgang lýðræðislegrar tillögu enda felur samþykkt tillögunnar aðeins í sér heimild til að hefja viðræður og ekkert umfram það. Kjósum JÁ á morgun og gerum þjóðaratkvæðagreiðsluna að lýðræðisveislu. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun