Ásdís Karen að fara til AIK Andri Broddason skrifar 30. ágúst 2026 15:42 Ásdís Karen Halldórsdóttir stoppar stutt hjá FH og er á leiðinni til AIK í Svíþjóð. megapiksel.no Ásdís Karen Halldórsdóttir var ekki í leikmannahóp FH þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Val í dag. Guðni Eiríksson, þjálfari FH, staðfesti í viðtali eftir leikinn að hún væri að ganga til AIK í Svíþjóð.
Ásdís Karen gekk til liðs við FH fyrr í mánuðinum en fyrir það lék hún með Braga í Portúgal. Búist var við að hún myndi fylla í skarð sem Ída Marín Hermannsdóttir skildi eftir þegar hún gekk í raðir Hammarby í Svíþjóð. Nú mun Ásdís Karen elta Ídu Marín til Svíþjóðar en búist er við formlegri kynningu frá félögunum hvað úr hverju. Eftir jafnteflið við Val er FH nú tveimur stigum frá toppsæti deildarinnar auk þess að mikið álag er á leikmenn liðsins á meðan Evrópuleikir eru í gangi. AIK er sem stendur í sjötta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar en liðið er búið að tapa síðustu þremur deildarleikjum. Liðið þarf því liðsauka til að fara ofar í deildinni og mun því Ásdís Karen vonandi spila stórt hlutverk. Ásdís Karen spilaði þrjá leiki fyrir FH. Tveir þeirra voru í Bestu deildinni en einn í Evrópukeppni. Báðir leikir hennar í Bestu deildinni töpuðust en FH vann Apollon Limasol á útivelli æi Evrópukeppninni. Ásdís Karen náði ekki að skora mark fyrir FH. Guðni Eiríksson var spurður út í það eftir leik hvers vegna Ásdís Karen væri ekki í hóp og þá staðfesti hann að hún væri á förum til AIK. „Ég held að það sé hárrétt það sem litli fuglinn er að hvísla. Hún er bara að ganga frá sínum málum og spilar í treyju AIK í næsta leik held ég.“ Svar Guðna má sjá í spilaranum hér að neðan: Klippa: Guðni Eiríksson staðfestir að Ásdís Karen sé að fara til AIK
Besta deild kvenna Íslenski boltinn Sænski boltinn FH Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Formúla 1 Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Formúla 1 Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Uppgjörið: Stjarnan – ÍBV 2-2 | Eyjamenn á botninn Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Uppgjör: FH - Þór/KA 2-1| FH tyllir sér á toppinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Sjá meira