Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar 1. september 2026 10:00 Að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildaviðræður við ESB var sláandi munur á skoðunum landsmanna af höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar. En getur verið að í þessari augljósu skiptingu felist vísbending um leið að bættum þjóðarhag til lengri tíma? Slagurinn við verðbólguna hefur verið okkur erfiður. Hækkandi húsnæðisverð, dýrari matarkarfa og aukinn rekstrarkostnaður hafa gert heimilum erfiðara fyrir. Á sama tíma glíma atvinnurekendur og opinberir aðilar við að halda í við síhækkandi kostnað og launakjör. Höfuðborgarmiðuð byggðaþróun getur verið verðbólguhvetjandi, húsnæðið þar er kostnaðarsamara en á landsbyggðinni og mikil eftirspurn eftir húsnæði og þjónustu í hinum ýmsu formum getur valdið hækkandi verðlagi. Stuðningur við sterka landsbyggð Gæti markviss uppbygging um land allt verið hluti af lausninni? Hvatning landsmanna til að skoða þá fjölmörgu kosti sem búsetu á landsbyggðinni fylgir, líkt og ódýrara húsnæðisverð, styttri vegalengdir og því aukinn tími fyrir ýmis hugðarefni. Slíku átaki þyrfti að sjálfsögðu að fylgja meðvituð ákvarðanataka ríkisins gagnvart eflingu sveitarfélaga á landsbyggðinni og að styrkja enn frekar stoðir sterkrar landsbyggðar. Það gæti verið ákjósanlegt skref af mörgum sem þarf að taka til að rétta skútuna okkar við. Öflug þjónusta hins opinbera, heilbrigðisþjónusta, möguleikar ungs fólks til menntunar í heimabyggð, traust fjarskipti og síðast en ekki síst góðar og tryggar samgöngur vítt og breitt um landið eru lykilbreyta í hlutverki ríkisins í að styrkja stöðu Íslands og velferð Íslendinga. Við getum ekki öll átt heima á sama blettinum, það er engum til hagsbóta. Sterkt Ísland byggist á fjölbreyttum og öflugum samfélögum um allt land, þar sem fólk hefur raunverulegt val um búsetu og tækifæri til að byggja sér bjarta framtíð. Blómleg landsbyggð er því ekki aðeins hagsmunamál þeirra sem þar búa, heldur þjóðarinnar allrar. Höfundur er forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Byggðamál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildaviðræður við ESB var sláandi munur á skoðunum landsmanna af höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar. En getur verið að í þessari augljósu skiptingu felist vísbending um leið að bættum þjóðarhag til lengri tíma? Slagurinn við verðbólguna hefur verið okkur erfiður. Hækkandi húsnæðisverð, dýrari matarkarfa og aukinn rekstrarkostnaður hafa gert heimilum erfiðara fyrir. Á sama tíma glíma atvinnurekendur og opinberir aðilar við að halda í við síhækkandi kostnað og launakjör. Höfuðborgarmiðuð byggðaþróun getur verið verðbólguhvetjandi, húsnæðið þar er kostnaðarsamara en á landsbyggðinni og mikil eftirspurn eftir húsnæði og þjónustu í hinum ýmsu formum getur valdið hækkandi verðlagi. Stuðningur við sterka landsbyggð Gæti markviss uppbygging um land allt verið hluti af lausninni? Hvatning landsmanna til að skoða þá fjölmörgu kosti sem búsetu á landsbyggðinni fylgir, líkt og ódýrara húsnæðisverð, styttri vegalengdir og því aukinn tími fyrir ýmis hugðarefni. Slíku átaki þyrfti að sjálfsögðu að fylgja meðvituð ákvarðanataka ríkisins gagnvart eflingu sveitarfélaga á landsbyggðinni og að styrkja enn frekar stoðir sterkrar landsbyggðar. Það gæti verið ákjósanlegt skref af mörgum sem þarf að taka til að rétta skútuna okkar við. Öflug þjónusta hins opinbera, heilbrigðisþjónusta, möguleikar ungs fólks til menntunar í heimabyggð, traust fjarskipti og síðast en ekki síst góðar og tryggar samgöngur vítt og breitt um landið eru lykilbreyta í hlutverki ríkisins í að styrkja stöðu Íslands og velferð Íslendinga. Við getum ekki öll átt heima á sama blettinum, það er engum til hagsbóta. Sterkt Ísland byggist á fjölbreyttum og öflugum samfélögum um allt land, þar sem fólk hefur raunverulegt val um búsetu og tækifæri til að byggja sér bjarta framtíð. Blómleg landsbyggð er því ekki aðeins hagsmunamál þeirra sem þar búa, heldur þjóðarinnar allrar. Höfundur er forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar