Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar 1. september 2026 20:02 Þjóðaratkvæðagreiðslan um hvort hefja ætti á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið var í raun og sann persónulegt pólitískt verkefni utanríkisráðherra. Hún stofnaði stjórnmálaflokk beinlínis til að vinna að því markmiði að Ísland yrði aðili að Evrópusambandinu, fékk forystu Evrópusambandsins til liðs við málstað sinn og lét hraða atkvæðagreiðslunni innan kjörtímabils núverandi ríkisstjórnar vegna þess að hún taldi ummæli Trumps Bandaríkjaforseta á Alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos myndu nýtast málstað hennar. Hún lagði fjármuni og stofnanir ríkisins, einkum og sér í lagi utanríkisráðuneytið, undir sína eigin pólitísku stefnu. Þá byggði hún málflutning sinn fremur á vafasömum fullyrðingum og tilfinningalegum þrýstingi en yfirveguðum rökum. Með þessu var hún reiðubúin að valda djúpstæðri sundrungu meðal þjóðarinnar í þágu eigin pólitísks metnaðar. Þrátt fyrir að öllu þessu pólitíska valdi, fjármunum og áhrifum væri teflt fram í þágu verkefnisins hafnaði þjóðin því með afgerandi hætti. Þá niðurstöðu ber að virða. Ráðherra sem sjálf hrindir af stað pólitísku metnaðarmáli af þessari stærðargráðu, leiðir það og bíður síðan ósigur getur ekki einfaldlega haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist. Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar. Utanríkisráðherra hefur augljóslega glatað trausti stórs hluta kjósenda. Afsögn er ekki aðeins viðeigandi. Hún er nauðsynleg afleiðing þess sem gerst hefur. Höfundur er með MSc í hagfræði frá University College of Wales og Diploma í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Þjóðaratkvæðagreiðslan um hvort hefja ætti á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið var í raun og sann persónulegt pólitískt verkefni utanríkisráðherra. Hún stofnaði stjórnmálaflokk beinlínis til að vinna að því markmiði að Ísland yrði aðili að Evrópusambandinu, fékk forystu Evrópusambandsins til liðs við málstað sinn og lét hraða atkvæðagreiðslunni innan kjörtímabils núverandi ríkisstjórnar vegna þess að hún taldi ummæli Trumps Bandaríkjaforseta á Alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos myndu nýtast málstað hennar. Hún lagði fjármuni og stofnanir ríkisins, einkum og sér í lagi utanríkisráðuneytið, undir sína eigin pólitísku stefnu. Þá byggði hún málflutning sinn fremur á vafasömum fullyrðingum og tilfinningalegum þrýstingi en yfirveguðum rökum. Með þessu var hún reiðubúin að valda djúpstæðri sundrungu meðal þjóðarinnar í þágu eigin pólitísks metnaðar. Þrátt fyrir að öllu þessu pólitíska valdi, fjármunum og áhrifum væri teflt fram í þágu verkefnisins hafnaði þjóðin því með afgerandi hætti. Þá niðurstöðu ber að virða. Ráðherra sem sjálf hrindir af stað pólitísku metnaðarmáli af þessari stærðargráðu, leiðir það og bíður síðan ósigur getur ekki einfaldlega haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist. Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar. Utanríkisráðherra hefur augljóslega glatað trausti stórs hluta kjósenda. Afsögn er ekki aðeins viðeigandi. Hún er nauðsynleg afleiðing þess sem gerst hefur. Höfundur er með MSc í hagfræði frá University College of Wales og Diploma í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar