Hver á að leggja símann frá sér? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar 2. september 2026 08:01 Það er brýnt að umræðan um nýja reglugerð um síma og snjalltæki verði ekki þannig að símavandi barna og ungmenna sé færður inn fyrir veggi skólanna og gerður að verkefni skóla og kennara. Markmiðin eru góð; námsfriður, vellíðan, félagsleg tengsl og jákvæður skólabragur. Athyglisvert er þó að reglugerðin sjálf talar sérstaklega um samstarf foreldra, nemenda og skóla og nefnir þar gagnkvæmt traust, virðingu og samábyrgð. Samábyrgð en hver sér um framkvæmdina? Þrátt fyrir fögur orð um samábyrgð lendir stór hluti framkvæmdarinnar hjá skólanum. Símar og snjalltæki nemenda eiga ekki aðeins að vera ónotuð heldur óaðgengileg allan skólatímann. Skólarnir þurfa að ákveða geymslu, móta reglur um afhendingu, kynna þær, sjá um tækin og gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir tjón, hvarf eða þjófnað. Þetta getur haft mjög jákvæð áhrif á skólastarf; aukinn námsfrið, meiri einbeitingu og fleiri bein samskipti nemenda. Skýr sameiginleg regla getur líka verið betri en að hver kennari þurfi að standa í stöðugum samningaviðræðum um símanotkun. En framkvæmdin er ekki án fyrirhafnar. Skólastjórnendur eiga að tryggja innleiðinguna, kynna hana fyrir skólaráði, halda utan um undanþágur, hafa nemendur með í ráðum og tengja mat á framkvæmdinni við innra mat skólans. Það er því eðlilegt að spyrja hvort við séum um leið að bæta enn einu stjórnsýslu- og eftirlitsverkefninu við skólastarfið. Að fjarlægja tækið eða kenna á tækið? Ger þarf greinarmun á símanotkun og tækninotkun. Skjárinn er ekki sjálfkrafa vandamál. Þar er að finna gríðarlegt magn þekkingar, upplýsinga og verkfæra til náms, sköpunar og samskipta. Reglugerðin viðurkennir það raunar sjálf; hún skilgreinir sérstaklega notkun snjalltækja í kennslufræðilegum tilgangi sem hluta af skipulagðri kennslu til að ná markmiðum og hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Við eigum því ekki aðeins að kenna börnum að vera án tækninnar heldur að lifa með henni. Að geta metið hvenær tækið er gagnlegt, hvenær það truflar, hvaða upplýsingar eru áreiðanlegar og hvenær á að leggja það frá sér er hluti af því að verða læs á stafrænan heim. Bann getur skapað mörk en það kennir ekki sjálfkrafa sjálfstjórn. Skólinn ræður aðeins hluta sólarhringsins Skólinn er aðeins hluti af lífi barna og ungmenna. Hann getur tekið símann úr umferð í nokkrar klukkustundir en ræður engu um símann við matarborðið, inni í svefnherberginu, á kvöldin eða um helgar. Reglugerðin nær raunar mjög vítt innan skólatímans; til frímínútna, matarhlé, vettvangsferða og jafnvel frístundaheimila en þar lýkur valdsviði hennar. Þess vegna verður þetta aldrei eingöngu verkefni skólans. Ef við höfum áhyggjur af svefni, félagslegum samskiptum, skjátíma eða því að börn og ungmenni geti ekki lagt símann frá sér verður að ræða jafnframt það sem gerist utan skólatíma. Og þar koma heimilin inn og ekki síður við fullorðna fólkið sem fyrirmyndir. Við getum varla ætlast til þess að börnin og ungmennin þrói með sér heilbrigt samband við símann ef skilaboðin frá okkur eru; þú átt að geta lagt þinn frá þér en ég þarf aðeins að kíkja á minn. Reglur hjálpa og fyrirmyndir kenna Reglugerð getur skapað símalausan skóla og vonandi bætt námsfrið og samskipti. En heilbrigt samband barna og ungmenna við síma og tækni verður ekki búið til með reglugerð einni saman. Þar skiptir samábyrgðin, sem reglugerðin sjálf boðar, mestu máli. Skólinn á að setja mörk og kenna skynsamlega notkun. Það gera margir skólar nú þegar. Heimilin þurfa að gera slíkt hið sama. Og við fullorðna fólkið þurfum stundum að horfa aðeins minna á skjátíma barna og ungmenna og aðeins meira á okkar eigin. Skólinn getur vissulega geymt síma nemenda í nokkrar klukkustundir á dag. Hitt verður aðeins flóknara; að finna nógu stóran geymslukassa fyrir síma okkar fullorðna fólksins. Símalaus skóli er eitt. Símalæs samfélög er annað. Ertu kannski að lesa þetta í símanum? Höfundur er kennari og skólastjórnandi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Símanotkun barna Grunnskólar Hjálmar Bogi Hafliðason Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar