Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa Björn Snæbjörnsson skrifar 2. september 2026 10:03 Það er kominn tími til að stjórnmálamenn hætti að tala um eldri borgara sem einsleitan hóp. Eldri borgarar eru fjölmennur og fjölbreyttur hópur. Sumir hafa góðar tekjur og búa við ágæt kjör. Aðrir þurfa að snúa hverri krónu við og hafa verulegar áhyggjur af því hvernig þeir ná endum saman. Það er þessi hópur sem við verðum að tala um. Um 8.000 eldri borgarar eru með heildartekjur undir lægsta taxta á vinnumarkaði. Þetta er fólk sem hefur unnið og lagt sitt af mörkum til samfélagsins alla sína ævi. Samt eru tekjur þess undir þeim launum sem samfélagið telur lágmark fyrir fólk á vinnumarkaði. Stjórnmálin verða að svara þessu fólki. Stjórnmálamenn verða að svara því hvort það sé ásættanlegt að fólk á efri árum búi við svo þröngan kost að hækkun á mat, lyfjum, húsnæði eða þjónustugjöldum geti haft veruleg áhrif á líf þess. Á sama tíma sjáum við ríki og sveitarfélög hækka gjaldskrár. Matarkostnaður hækkar, komugjöld hækka, þjónusta hækkar og ýmis önnur gjöld leggjast á heimilin. Hver hækkun fyrir sig kann að virðast lítil í augum þeirra sem taka ákvörðunina. En fyrir þann sem hefur lítið til ráðstöfunar getur samanlögð hækkun orðið veruleg. Við verðum að spyrja: Hvar eru mörkin? Getum við ekki lengur rekið samfélagið án þess að sækja í vasa þeirra sem minnst hafa? Ég spyr ekki þessarar spurningar til að ráðast á stjórnmálafólk. Ég spyr vegna þess að þetta snýst um pólitíska ábyrgð. Það er pólitíkin sem ákveður skattkerfið, bótakerfið, lífeyriskjörin og að stórum hluta gjaldskrár hins opinbera. Þess vegna verða stjórnmálaflokkarnir að svara. LEB hefur lagt fram skýrar kröfur. Við viljum að grunnlífeyrir verði þannig að hann tryggi fólki mannsæmandi afkomu. Við viljum að þeir sem hafa lægstar tekjur verði sérstaklega varðir gegn gjaldskrárhækkunum. Við viljum sanngjarnt frítekjumark og að dregið verði úr þeirri kjaragliðnun sem hefur myndast milli eftirlaunaog lægstu launa á vinnumarkaði. Við viljum líka að umboðsmaður eldri borgara verði skipaður. Það er ekki óeðlileg krafa. Eldri borgarar eiga að hafa sjálfstæðan talsmann innan stjórnsýslunnar sem fylgist með því hvernig ákvarðanir stjórnvalda koma við þennan hóp og tryggir að sjónarmið hans heyrist. Hvers vegna er svona erfitt að hlusta? Er það vegna þess að eldri borgarar séu ekki nógu mikilvægur kjósendahópur? Eða er það vegna þess að stjórnmálamenn telji að þeir muni sætta sig við loforð sem seint eða illa eru efnd? Ég vona svo sannarlega ekki. Við hjá LEB ætlum ekki að sætta okkur við það. Við ætlum að halda áfram að benda á það sem betur má fara og krefjast svara. Stjórnmálin verða að svara þeim 8.000 sem hafa tekjur undir lægsta taxta. þau verða að svara þeim sem þurfa að velja milli nauðsynja. Þau verða að svara þeim sem finna mest fyrir hverri hækkun gjaldskrár. Og spurningin sem við eigum að leggja fyrir alla stjórnmálaflokka er einföld: Hvað ætlið þið að gera fyrir þá eldri borgara sem minnst hafa? Ekki eftir kosningar, heldur NÚNA. Það er ekki spurning um hvort íslenskt samfélag hafi efni á því að tryggja þessum hópi mannsæmandi kjör. Við höfum efni á því. Allt sem þarf er pólitískur vilji til að leiðrétta það ranglæti sem er innbyggt í kerfið. Það er kominn tími til að stjórnmálin svari. Höfundur er formaður Landsambands eldri borgara. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Snæbjörnsson Eldri borgarar Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar