Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Birgir Olgeirsson skrifar 2. september 2026 15:16 Halla Tómasdóttir veitti verðlaunin. Sigurjón Ragnar Bláa Lónið hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2026 fyrir uppbyggingu alþjóðlegs vörumerkis og verðmætasköpun á sviði ferðaþjónustu, vellíðunar og húðvara. Alfreð Gíslason handknattleiksþjálfari fær heiðursviðurkenningu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsstofu sem sér um framkvæmd verðlaunanna. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, og Grímur Sæmundsen stjórnarformaður tóku við verðlaununum við athöfn á Bessastöðum í dag. Bláa Lónið fékk verðlaunin einnig árið 2004 og hlýtur þau því nú öðru sinni, rúmum tveimur áratugum síðar. Í rökstuðningi úthlutunarnefndar kemur fram að fyrirtækið hafi um árabil verið eitt þekktasta íslenska vörumerkið erlendis og átt þátt í að byggja upp ímynd Íslands sem áfangastaðar. Fyrirtækið var stofnað árið 1992 og hefur vaxið úr heilsulind við Svartsengi í fyrirtæki sem rekur meðal annars hótel, veitingastaði og heilsutengda þjónustu auk þess að stunda rannsóknir og framleiða húðvörur. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 156,1 milljón evra á síðasta ári og jukust um 36 prósent frá fyrra ári. Tekjurnar voru um 40 milljónir evra árið 2014 og hafa því nær fjórfaldast á rúmum áratug. Hjá fyrirtækinu starfa nú meira en 800 manns af 44 þjóðernum. Rannsóknir á eiginleikum jarðsjávarins hafa meðal annars skapað grundvöll að þróun húðvara undir vörumerkinu Blue Lagoon Skin Science. Í rökstuðningnum er einnig fjallað um þær krefjandi aðstæður sem fyrirtækið hefur glímt við vegna jarðhræringa og eldgosa á Reykjanesskaga undanfarin ár. Þrátt fyrir ítrekaðar rýmingar og lokanir hafi fyrirtækið haldið áfram að þróa starfsemina. Alfreð heiðraður fyrir ferilinn í Þýskalandi Alfreð Gíslason hlýtur heiðursviðurkenningu verðlaunanna fyrir árangur sinn á alþjóðavettvangi og fyrir að hafa rutt brautina fyrir íslenska handknattleiksþjálfara erlendis. Alfreð hóf feril sinn hjá KA en lék síðar með KR, TUSEM Essen í Þýskalandi og Bidasoa á Spáni. Hann var valinn íþróttamaður ársins árið 1989 og var um árabil lykilmaður íslenska landsliðsins. Eftir að Alfreð stýrði KA til Íslandsmeistaratitils árið 1997 hélt hann til Þýskalands. Hann stýrði Magdeburg til fyrsta Þýskalandsmeistaratitils félagsins og vann þrjá Evróputitla með liðinu. Síðar stýrði hann Kiel í ellefu ár. Undir stjórn Alfreðs varð liðið sex sinnum Þýskalandsmeistari, vann þýsku bikarkeppnina sex sinnum og Meistaradeild Evrópu tvisvar. Alfreð hefur stýrt þýska landsliðinu frá árinu 2020. Liðið vann silfurverðlaun á Ólympíuleikunum árið 2024 og hafnaði í öðru sæti á Evrópumótinu fyrr á þessu ári. Útflutningsverðlaunin voru fyrst veitt árið 1989 og eru afhent nú í 38. sinn. Embla Medical hlaut verðlaunin í fyrra.
Bláa lónið Handbolti Forseti Íslands Halla Tómasdóttir Mest lesið Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga Viðskipti erlent Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Viðskipti innlent Fleiri fréttir Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Sjá meira