Sjálfbær rekstur eða niðurgreiddur – hvort er lúxus, Daði? Hilmar Gunnlaugsson skrifar 2. september 2026 16:00 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra tilkynnti í fjölmiðlum fyrir ríflega viku síðan að sækja ætti 3–4 milljarða króna í auknar skatttekjur til ferðaþjónustunnar með því að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11% í 24%. Í málflutningi sínum hefur ráðherrann talað um baðlón sem „lúxus“ og að þau hafi notið „sérmeðferðar“. Sagði vera dýrt í baðlónin og hlýtur þar að vera að miða við sundlaugar landsins. Þessi röksemdafærsla hagfræðiprófessorsins fyrrverandi vekur spurningar. Lúxus – fyrir hvern? Heimafólk á Egilsstöðum getur fyrir 89.900 kr., að 11% virðisaukaskatti meðtöldum, keypt ársmiða fyrir tvo í VÖK Baths. Sama fólk getur fyrir 86.560 kr., án virðisaukaskatts, keypt ársmiða fyrir tvo í Sundlaug Egilsstaða. Verðmunurinn er 3.340 krónur á ári. Ríkið fær 8.909 kr. í sinn hlut af ársmiðanum í VÖK sem virðisaukaskatt en ekkert í sundlauginni. Það rennur því minna til baðlónsins en sundlaugarinnar. Varla er þá hægt að segja að lúxusinn sé hjá baðlóninu? Mögulega er það lúxus fyrir heimafólk að geta valið á milli þessara kosta, en það stenst ekki að halda því fram að baðlónið sé sérstakur lúxus í þessu tilviki og að aðgangur sem þessi sé dýr. Sérmeðferð - fyrir hvern? Munurinn verður hins vegar mikill þegar stakir miðar eru skoðaðir. Ferðamaður getur keypt stakan miða í VÖK Baths fyrir 7.690 kr., að 11% virðisaukaskatti meðtöldum. Sami ferðamaður getur farið í Sundlaug Egilsstaða fyrir 1.220 kr. án virðisaukaskatts. En munurinn er ekki aðeins fólginn í verði. Hann felst einnig í því hver stendur undir kostnaðinum. Ég hef ekkert á móti sundlaugum. Þvert á móti eru þær mikilvægur hluti af íslensku samfélagi. En einmitt þess vegna eigum við að geta rætt kostnaðinn af þessari samfélagsþjónustu af hreinskilni. Sérmeðferð sundlauga á Íslandi Fyrir árið 2016 voru baðlón og sundlaugar í sömu stöðu gagnvart virðisaukaskatti. Síðan þá hafa baðlón borið 11% virðisaukaskatt á meðan aðgangur að sundlaugum hefur áfram verið undanþeginn virðisaukaskatti. Baðlón greiða þannig nú þegar hærri virðisaukaskatt en sundlaugar. Lægra virðisaukaskattsþrep á baðþjónustu er heldur ekki einhver íslensk sérviska. Í Þýskalandi er almennt virðisaukaskattsþrep 19%, en tekjur sem tengjast beint rekstri sund- og heilsubaða bera samkvæmt lögum 7%. Í Hollandi er almenna þrepið 21%, en hollenska skattstjórnin segir beinlínis að aðgangur að sundlaugum og sauna beri 9%. Í Austurríki er almenna þrepið 20%, en sundböð og thermal-meðferð bera 13%. Í þessum löndum starfa jafnframt sum stærstu og glæsilegustu bað- og thermal-spa Evrópu. Núverandi 11% skattþrep íslenskra baðlóna, samanborið við 24% almennt þrep, er því engan veginn óvenjuleg „sérmeðferð“ í evrópskum samanburði. Það er athyglisvert að í þessum tilvikum gildir sama regla um baðstaði og sundlaugar. Þrátt fyrir þetta heldur ráðherra því fram að það séu baðlónin sem á Íslandi njóti „sérmeðferðar“. Gjörólíkar rekstrarforsendur Rekstur baðlóna er almennt atvinnustarfsemi sem þarf að standa undir fjárfestingu sinni, launum, orku, viðhaldi og fjármagnskostnaði með tekjum frá viðskiptavinum. Þegar vel gengur skilar starfsemin jafnframt verulegum skatttekjum til ríkis og sveitarfélaga. Því ber að fagna. Rekstur almenningssundlauga byggir hins vegar á allt öðru rekstrarlíkani. Sveitarfélögin greiða verulega með honum ár hvert. Gögn úr reikningum íslenskra sveitarfélaga sýna að nettóframlag þeirra til íþróttahúsa og sundlauga nam tæpum 20 milljörðum króna árið 2024. Þegar sundlaugahlutinn er metinn sérstaklega, meðal annars með hliðsjón af sundurliðuðum rekstrartölum Reykjavíkurborgar, má áætla að sveitarfélög greiði um 8–11 milljarða króna á ári með rekstri sundlauga. Og þá er ekki verið að reikna allan kostnað sveitarfélaganna af fjárfestingum og fjármagnsbindingu í mannvirkjunum, sem í tilviki VÖK Baths ehf. er 20% árlegs kostnaðar. Skoðum Reykjavík Reykjavík gefur ágætt dæmi. Árið 2024 voru rekstrartekjur sundlauga borgarinnar um 1,4 milljarðar króna en rekstrarkostnaður um 4,2 milljarðar. Borgarsjóður greiddi því um 2,8 milljarða króna með rekstrinum, eða um 67% kostnaðarins. Þetta jafngildir niðurgreiðslu að fjárhæð 2.000 kr. á hvern þann gest sem greiðir stakt gjald. Þetta er samfélagsleg ákvörðun sem full ástæða getur verið til að standa vörð um. En þetta er engu að síður niðurgreiðsla. Hún nær líka til erlendra ferðamanna. Samkvæmt könnunum Ferðamálastofu fer um fjórðungur erlendra ferðamanna í hefðbundna sundlaug í Íslandsferð sinni og margir þeirra oftar en einu sinni. Ef tvær milljónir erlendra ferðamanna koma til landsins á ári og hver fer einu sinni jafngildir það hálfri milljón ferðamanna sem fara í íslenskar almenningssundlaugar. Aðgangur þeirra er niðurgreiddur af opinberu fé. Ef bein niðurgreiðsla sveitarfélags nemur að meðaltali um 2.000 krónum á sundheimsókn er opinber niðurgreiðsla á sundferðum erlendra ferðamanna einn milljarður króna á ári, jafnvel þótt aðeins sé reiknað með einni sundferð hvers ferðamanns. Hver er þá lúxusinn og hver er sérmeðferðin? Hér verður hugtakið „lúxus“ áhugavert. Annars vegar höfum við einkarekna baðstaði sem fjármagna eigin uppbyggingu og rekstur, bera virðisaukaskatt og aðra skatta og selja stóran hluta þjónustu sinnar til erlendra ferðamanna. Munum að almennt greiðir annar útflutningur en ferðaþjónusta ekki virðisaukaskatt. Hins vegar höfum við almenningssundlaugar sem samfélagið hefur meðvitað ákveðið að niðurgreiða verulega – einnig fyrir erlenda ferðamenn. Til viðbótar við algert skattfrelsi hvað varðar virðisaukaskatt og tekjuskatt. Það er hægt að færa rök fyrir því að Íslendingar haldi áfram að niðurgreiða sundlaugar. Þær eru hluti af samfélagsgerð okkar, lýðheilsu og menningu. Baðlónin eru það reyndar líka að mínu mati. En þá skulum við kalla hlutina réttum nöfnum og það mætti gjarna gefa því gaum í hvað skatttekjur sveitarfélaga eru notaðar til að niðurgreiða. Sjálfbær atvinnurekstur sem greiðir skatta og stendur undir eigin fjárfestingum er ekki „sérmeðferð“ vegna þess eins að hann ber 11% virðisaukaskatt í stað 24%. Og niðurgreidd þjónusta verður ekki síður niðurgreidd þótt við höfum i grunninn góðar og gildar ástæður fyrir niðurgreiðslunni. Þess vegna eru spurningar mínar til fjármálaráðherra einfaldar: Hvort er meiri lúxus – a) sjálfbær rekstur sem leggur til samneyslunnar eða b) opinber niðurgreiðsla á sambærilegri afþreyingu í samkeppni við einkarekna starfsemi?Hvort er sérmeðferð: a) að borga 0% vsk af aðgöngumiða eða b) 11% vsk? Höfundur er stjórnarformaður VÖK Baths ehf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sundlaugar og baðlón Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun