Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. september 2026 16:29 Kormákur og Skjöldur ræddu sína uppáhalds minningu í Milli vina. Kormákur og Skjöldu rifjuðu upp þegar þeir fengu í jólagjöf frá eiginkonum sínum óvissuferð á Hótel Rangá. Um nóttina var mikið kampavín drukkið og pörin komin í svo mikið stuð að þau ákváðu að gifta sig.
Kormákur Geirharðsson og Skjöldur Sigurjónsson hafa rekið fataverslunina Kormák & Skjöld í þrjátíu ár og brallað ýmislegt gegnum tíðina. Þeir ræddu sín á milli í þriðja þætti samtalsseríunnar Milli vina en þar ræða tveir vinir milli sín á persónulegu nótunum. „Mín uppáhaldsminning í gegnum þetta allt saman er jólagjöf sem við fáum frá konunum okkar, það er óvissuferð. Við eigum bara að fara upp í bíl á ákveðnum degi og þær keyra með okkur á Hótel Rangá og búið að taka voða flott herbergi þar, einhverjar svona svítur,“ segir Skjöldur í þættinum. „Það verður gríðarleg gleði nema daginn eftir ætlum við upp í sumarbústað sem foreldrar Dýrleifar eiga og vera eina nótt þar. Nema þarna um nóttina þá er mikið kampavín og voða fjör,“ bætir Skjöldur við. „Reyndar, það voru alveg sko tuttugu metrar á sekúndu og snjókoma, þannig að við sáum ekkert út. Við vorum svolítið föst inni á hótelinu,“ skýtur Kormákur inn í. „Við vorum búin að ákveða, okkur fannst það bara sniðugt þá, hvort það væri ekki bara sniðugt eftir öll þessi ár að við myndum bara gifta okkur, fyrst við værum í svo miklu stuði,“ segir Skjöldur. Þessar hugleiðingar um hjónaband hafi átt sér stað um nóttina meðan mesta kampavínsstuðið stóð yfir. „Það gerist um nóttina að við byrjum að tala um þetta. Svo förum við að sofa, þurfum að tékka okkur út um tólf og erum öll svona lurkum lamin eftir... eitthvað,“ segir Kormákur um ástandið morguninn eftor. Eitt þeirra hafi þá spurt: „Voruð þið að meina þetta sem að þið voruð að tala um í nótt?“ Svarið hjá hinum hafi verið á þennan veg: „Já.. ég held það, svei mér þá.“
Milli vina Sýn Tengdar fréttir Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Vinkonurnar og leikkonurnar Vala Kristín Eiríksdóttir og Júlíana Sara Gunnarsdóttir unnu saman í fjölda ára við gamanþáttagerð og rifjuðu upp spennuþrungnar lokatökurnar á síðustu seríu Venjulegs fólks í samtalsþættinum Milli vina. Upprifjunin tók á þær stöllur og klökknaði Vala Kristín. 25. ágúst 2026 16:10 Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Fjölmiðlamennirnir Helgi Seljan og Andri Freyr Viðarsson eru æskuvinir að austan og hafa brallað ýmislegt í gegnum tíðina. Þeir rifjuðu upp saman þegar rússneskur togari kom til Reyðarfjarðar og þeir skiptu á leikföngum og raftækjum við sjómennina fyrir rússneskar sígarettur. 19. ágúst 2026 14:41 Mest lesið Hvað veistu um… textana hans Bubba? Lífið Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Gagnrýni Sögufrægt verslunarhús til sölu Lífið Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Tíska og hönnun Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Lífið Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi Lífið Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lífið Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Lífið samstarf Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Tónlist „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Sjá meira
Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Vinkonurnar og leikkonurnar Vala Kristín Eiríksdóttir og Júlíana Sara Gunnarsdóttir unnu saman í fjölda ára við gamanþáttagerð og rifjuðu upp spennuþrungnar lokatökurnar á síðustu seríu Venjulegs fólks í samtalsþættinum Milli vina. Upprifjunin tók á þær stöllur og klökknaði Vala Kristín. 25. ágúst 2026 16:10
Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Fjölmiðlamennirnir Helgi Seljan og Andri Freyr Viðarsson eru æskuvinir að austan og hafa brallað ýmislegt í gegnum tíðina. Þeir rifjuðu upp saman þegar rússneskur togari kom til Reyðarfjarðar og þeir skiptu á leikföngum og raftækjum við sjómennina fyrir rússneskar sígarettur. 19. ágúst 2026 14:41