Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar 3. september 2026 16:02 Sem stjórnarformaður Hugarafls og lögmaður sé ég hvernig mannlegi harmleikurinn sem fylgir geð- og fíknivanda rekst á lagalega og kerfislæga innviði sem eiga að grípa fólk, en bregðast því ítrekað. Við búum í litlu samfélagi sem á að mörgu leyti erfitt með að horfast í augu við raunveruleikann. Það er kominn tími til að draga frá tjöldin, rjúfa meðvirknina og horfast í augu við afleiðingarnar sem blasa við okkur. Þróunin er í þá átt að fólk á öllum aldri, úr ólíkum stéttum og af ólíkri samfélagsstöðu, notar stórhættuleg vímuefni, einkum kókaín, oft samhliða áfengisneyslu í skemmtanalífinu. Margir telja sig hafa stjórn á neyslunni og líta á hana sem saklausa dægradvöl eða hluta af helgargleðinni. En mörkin á milli svokallaðrar skemmtunarnotkunar og skaðlegrar, jafnvel lífshættulegrar neyslu geta verið óljós og afleiðingarnar alvarlegar, bæði fyrir líkamlega og andlega heilsu. Á sama tíma hefur andleg líðan ungs fólks verið mikið áhyggjuefni. Í stað þess að ráðast að rótum vandans með öflugum félagslegum stuðningi, forvörnum og snemmtækri íhlutun virðist kerfið of oft leita að fljótlegri lausn í formi lyfseðla. Lyf geta vissulega verið nauðsynleg og mikilvæg meðferð, en þau mega ekki verða sjálfgefiðsvar við samfélagslegri vanlíðan. Við sjáum ungt fólk grípa til bæði löglegra og ólöglegra efna til að takast á við lífið og standast kröfur tilverunnar. Sú þróun ætti að vekja okkur til umhugsunar. Við verðum að spyrja hvað það er í samfélagsgerðinni okkar sem veldur því að svo margt ungt fólk upplifir vanlíðan snemma á lífsleiðinni og hvers vegna hluti þess leiðist út í neyslu eða glímir við alvarlegar áskoranir vegna andlegrar líðanar. Þegar geðrænn vandi og fíkn fara saman koma veikleikar kerfisins sérstaklega fram. Einstaklingar með svokallaðar tvígreiningar eru alltof oft sendir á milli kerfa án þess að eitt þeirra taki heildstætt utan um vandann. Geðheilbrigðisþjónusta og fíknimeðferð verða að geta unnið saman þegar vandi fólks er samtvinnaður. Einstaklingurinn getur ekki borið ábyrgð á því að kerfin tali ekki saman. Afleiðingarnar sjást meðal annars á götum úti í formi heimilisleysis og alls þess vanda sem því fylgir. Í hópi fólks sem glímir við langvarandi heimilisleysi eru margir með flókinn og samsettan geð- og fíknivanda. Þar er fólk á besta aldri sem hefur fallið á milli kerfa. Neyðarskýli og tímabundin úrræði eru nauðsynleg, en þau geta ekki komið í stað langtímalausna. Það sem sárlega vantar eru meðal annars viðeigandi búsetuúrræði til lengri tíma, með viðeigandi samþættri heilbrigðisþjónustu Sem lögmaður sé ég jafnframt hvernig þessi vandi getur undið upp á sig og endað innan réttarkerfisins. Þar blasir kostnaður aðgerðaleysisins ekki síður við. Reynslan sýnir þó einnig að samtök á borð við Hugarafl geta skipt sköpum. Bati er mögulegur þegar fólk fær viðeigandi stuðning, fær að taka virkan þátt í eigin bata og mætir öðrum á jafningjagrundvelli. Fyrsta skrefið er að við sem samfélag opnum augun og viðurkennum vandann. Við þurfum að ræða af hreinskilni hvað veldur því að unga fólkið okkar leitar í vímuefni, hvers vegna svo mörg upplifa vanlíðan og hvers vegna einstaklingar með flókinn vanda mæta enn of oft lokuðum dyrum eða einhliða lyfjagjöf. Við getum ekki haldið áfram að snúa baki í vandann og látið eins og hann komi okkur ekki við. Þetta er ekki mál afmarkaðs hóps. Þetta snertir okkur öll og stóra spurningin er, hvers konar samfélag við viljum vera? Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sævar Þór Jónsson Fíkn Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar