Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar 3. september 2026 16:30 Í þjóðaratkvæðagreiðslunni síðasta laugardag kom skýrt svar við spurningunni sem borin var fram. Því var hafnað að hefja að nýju viðræður um aðild að Evrópusambandinu. Í svarinu felst líka skýrt svar við annarri spurningu, sem ríkisstjórnin vildi ekki bera upp. Aðild að Evrópusambandinu var afdráttarlaust hafnað. Það er meginniðurstaða atkvæðagreiðslunnar. Það þarf ekki frekari vitnanna við. Meirihluti kjósenda er andvígur því að Ísland gangi í Evrópusambandið. Það er engin leið að skilja afstöðu kjósenda á annan veg. Andstaða við viðræður um aðild er sjálfkrafa andstaða við aðild að Evrópusambandinu. Á sínum tíma hófust viðræður um aðild við Evrópusambandið eftir að Alþingi hafði samþykkt ályktun þar um. Nú þegar afstaða meirihluta þjóðarinnar liggur fyrir er næsta skref að Alþingi skilji afstöðu kjósenda og staðfesti hana með annarri ályktun þar sem aðild er hafnað. Það verður hlutverk Alþingis á komandi þingi. Fyrir liggur að meirihluti er á Alþingi fyrir því. Spurningin er aðeins hvort ríkisstjórnin ætli að þráast við og reyni að viðhalda þeirri túlkun að umsóknin frá 2009 sé enn virk í skjalasafni Evrópusambandsins. Framsal á sjálfstæði úr landi Stærsti munurinn á EES samningnum frá 1992 og fullri aðild að Evrópusambandinu er sá að hluti af löggjafarvaldi, dómsvaldi og framkvæmdavaldi flyst frá innlendum stofnunum, Alþingi, ráðherrum og dómstólum til Evrópudómstólsins, Evrópuþingsins og embættismanna Evrópusambandsins. Þetta valdaframsal þýðir til dæmis að sumt af löggjafarvaldi Alþingis flyst einkum til Brussel. Embættismenn þar munu senda tilskipanir hingað sem fá um leið stöðu löggjafar. Evrópudómstóllinn verður yfirdómstóll og ræður túlkun innlendra laga þar sem honum sýnist það vera sitt mál að túlka tilskipanir Evrópusambandsins og ákveða að þær gangi framar innlendri löggjöf. Þessi breyting verður sérstaklega áberandi í sjávarútvegsmálum þar sem stefna ESB er að miklu leyti miðstýrð frá Brussel. Orkumálin verða líka viðkvæm fyrir Íslendinga. Hafa verður í huga að lífskjarabati á næstu áratugum mun að verulegu leyti byggjast á nýtingu auðlinda sjávar og virkjunar fallvatna og jarðvarma. Nú ráðum við þessum málum sjálf án afskipta Evrópusambandsins og okkur hefur lánast að gera það þannig að á umliðnum áratugum hafa lífskjör tekið stórstígum framförum. Áframhaldandi forræði Íslendinga er nauðsynlegt til þess að nýta komandi efnahagslegan ávinning af sjávarútvegi, fiskeldi og orkuframleiðslu til þess að bæta lífskjör landsmanna. Evrópusambandið mun með aðild fá ráðandi stöðu um löggjöf og nýtingu auðlindanna. Það mun horfa á þessi mál á annan veg. Þar verður litið til þess að dreifa ávinningnum til aðildarlanda ESB – ekki sérstaklega til Íslands. Framsal á sjálfstæði verður framsal á lífskjörum komandi kynslóða landsmanna. Þorskastríðin voru ekki háð til þess. Höfundur er ritstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristinn H. Gunnarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar