„Gangandi martröð“ Valur Páll Eiríksson skrifar 4. september 2026 08:33 Ståle Solbakken, landsliðsþjálfari Noregs, er hér með Erling Haaland á HM í sumar. Solbakken styður Liverpool sem hefur háð harða keppni við Manchester City, félag Haalands, undanfarin ár. Litlar líkur eru á slíku í ár og þjálfarinn ekki sáttur við sína menn í rauða hluta Liverpool-borgar. Torbjorn Tande/DeFodi Images/DeFodi via Getty Images Ståle Solbakken, landsliðsþjálfari Noregs, er allt annað en sáttur við stöðuna á hans mönnum í Liverpool á Englandi.
Hinn 58 ára gamli Solbakken, sem stýrði Noregi til sögulega góðs árangurs á HM karla í fótbolta í sumar, tók þátt í þætti Viaplay í Noregi á lokadegi félagsskiptagluggans. Þar var hann beðinn um að leggja mat sitt á viðskipti Liverpool í sumar og byrjunina á leiktíðinni. Liverpool hefur gert jafntefli við Newcastle og Nottingham Forest í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins og mætir Ipswich í þriðja leiknum í kvöld. Solbakken er sérlega óánægður með frammistöðu bakvarða liðsins. „Bakverðirnir eru gangandi martröð varnarlega. Kerkez virðist ekki geta gert þetta rétt, jafnvel með gamla stjóranum sínum. Frimpong er, að mínu mati, veikur hvað varðar staðsetningar og betri í sókn en vörn,“ sagði hann. Dagbladet í Noregi skrifaði grein upp úr ummælum sem Solbakken lét falla í útsendingu Viaplay í vikunni.Skjáskot/Dagbladet Á milli þeirra er 35 ára fyrirliðinn Virgil van Dijk í miðri vörninni. Sá er á loka ári samnings og hefur aðeins misst niður hraða síðustu misseri. „Er Van Dijk að syngja sitt síðasta? Ég er ekki viss um það. Hann er alls ekki með sama hraða lengur. Ég held ekki það sé fátt sem bendir til að þeir lyfti bikarnum í lok tímabilsins,“ útskýrði Solbakken. Mohamed Salah, Ibrahima Konaté og Andy Robertson yfirgáfu allir félagið á frjálsri sölu í lok síðasta tímabils. Félagið hefur fjárfest um 250 milljónum punda til að styrkja hópinn í sumar. Þrátt fyrir það telur Ståle Solbakken að rauðir hafi átt að semja við nýjan miðjumann. „Þetta er svolítið þunnt. Ég held að þeir hafi átt að fá miðvallarleikmann sem hefði getað farið beint inn í liðið. Ég er ekki viss með kantana,“ bætti hann við.
Liverpool FC Norski boltinn Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Formúla 1 Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Formúla 1 Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Fótbolti Fleiri fréttir Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Sjá meira