Arbeloa í brasi Valur Páll Eiríksson skrifar 5. september 2026 16:03 Ekki fer það vel af stað hjá Álvaro Arbeloa í Lundúnum. Jose Breton/Pics Action/NurPhoto via Getty Images Fimm leikir fóru fram í enska boltanum um miðjan dag. Fjör var í Lundúnaslag tveggja stigalausra liða.
Fulham og Crystal Palace áttust við á Craven Cottage í Lundúnaslag liða sem bæði höfðu tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í deildinni. Fulham byrjaði betur er Norðmaðurinn Joshua King kom liðinu yfir eftir ellefu mínútna leik. 1-0 stóð fram á 35. mínútu þegar enski bakvörðurinn Tyrick Mitchell jafnaði leikinn. César Palacios, annar tveggja ungra Spánverja sem komu til Fulham frá Real Madrid í sumar, kom heimamönnum aftur yfir rétt fyrir hlé. Staðan var 2-1 í hléi en skömmu eftir að síðari hálfleikurinn hófst skoraði Mitchell sitt annað mark til að jafna leikinn öðru sinni, 2-2. Annar vinstri bakvörður, Ben Chilwell, skoraði það sem reyndist sigurmark Palace seint í leiknum og það í frumraun sinni fyrir félagið eftir skipti frá Strasbourg í Frakklandi á dögunum. Palace vann 3-2 og er komið á blað í deildinni en Álvaro Arbeloa leitar enn fyrstu stiganna með Fulham. 1-1 í hinum tveimur Vitaly Janelt kom Brentford yfir í leik við Sunderland í Lundúnum. Gestirnir fengu hins vegar víti þegar skammt var eftir og Frakkinn Enzo Le Fée skoraði af punktinum til að tryggja Sunderland stig. Brentford er með fimm stig eftir þrjá leiki en Sunderland fjögur. Brighton og Leeds skildu þá jöfn 1-1 á suðurströndinni. Jayden Bogle kom Leeds yfir eftir kortersleik og Leeds hefði hæglega getað bætt við, enda óð liðið í færum snemma leiks. Leedsurum refsaðist fyrir þar sem efnilegi króatíski varnarmaðurinn Luka Vuskovic skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið til að tryggja liðinu stig. Leeds er taplaust með fimm stig en Brighton er með fjögur stig.
Fulham FC Crystal Palace FC Brentford FC Sunderland AFC Brighton & Hove Albion Leeds United Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Nottingham Forest - Arsenal | Gengið skelfilega að skora á þessum velli Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Sjá meira