Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar 7. september 2026 19:00 Hvers vegna lýsum við móðurhlutverkinu með orðfæri strits og erfiðis? Þessi fyrirsögn í The Times vakti athygli mína: „Brjóstagjöf er nógu erfið án þess að henni sé blandað í kynjastríðin.“ Greinin var á bak við greiðsluvegg og vel má vera að höfundurinn, Alison O’Connor, hafi síðan fært rök fyrir einhverju sem ég væri hjartanlega sammála. En það voru fyrstu fjögur orð fyrirsagnarinnar sem sátu í mér: Brjóstagjöf er nógu erfið. Er hún það? Ég hafði þrjú börn á brjósti og þegar ég hugsa til baka er „erfið“ ekki orðið sem kemur upp í hugann. „Dásamlegt” er orðið. Ást. Gleði. Í raun „stórkostlegt… undursamlegt”—að minn eigin líkami gæti nært þessa örsmáu manneskju sem hafði lifað inni í mér í níu mánuði. Var ég þreytt? Auðvitað. Var stundum erfitt að vakna á þriggja tíma fresti með aum brjóst… oh, ég vil bara fá að sofa í friði…? Vissulega. Og reynsla margra kvenna er mun erfiðari—brjóstabólga, ónóg mjólk, barn sem ekki nær taki; sumar konur geta alls ekki haft börn sín á brjósti. Ekki á að gera lítið úr þessum erfiðleikum. En hvers vegna þarf að lýsa móðurhlutverkinu eins og það sé stöðugt strit og erfiði? Meðganga er „æxlunarvinna.” Barnauppeldi er „ólaunuð umönnunarvinna,” heimilishald er „heimilisvinna“. Að halda utan um þarfir fjölskyldunnar er „tilfinningavinna.” Og um móðurhlutverkið sjálft er sífellt rætt út frá fórnum, tekjutapi og skertum starfsframa. Öll þessi hugtök lýsa veruleika, en það er ekki í lagi þegar þau hætta að vera hagfræðilegar eða félagsfræðilegar skilgreiningar og verða að okkar helsta orðaforða um móðurhlutverkið. Ást verður að vinnu. Umhyggja verður að kvöð. Fórn verður að arðráni. Móðir sem gefur barni sínu brjóst um miðja nótt er vissulega að gera eitthvað sem getur verið erfitt. Hún kann að vera örmagna og brjóstin gætu verið aum. En er „erfiði” besta orðfærið sem við eigum til að lýsa því sem á sér stað þegar móðir nærir barnið sitt? Heldur á litla líkamanum sem hún bar undir hjarta sér í níu mánuði. Barnið þekkir lyktina hennar, hlýjuna og röddina. En nú hefur okkur tekist að lýsa brjóstagjöf, þessu ævaforna og stórkostlega undri, eins og ólaunaðri vinnuvakt. Ég held að fyrri kynslóðir hafi ekki fegrað móðurhlutverkið um of, heldur hefur okkar kynslóð ekki tekist nógu vel að sjá fegurðina í því. Það er erfitt að skrifa bók. Það er erfitt að byggja upp fyrirtæki. Það er erfitt að æfa fyrir maraþon. Það er erfitt að annast aldrað foreldri. Hjónaband getur verið erfitt. Nánast allt sem við teljum mikils virði krefst fyrirhafnar, fórna og óþæginda. En móðurhlutverkið virðist í auknum mæli þurfa á einhvers konar viðvörunarmerkingu að halda. Þetta er sérkennileg arfleifð femínismans. Kvennahreyfingin krafðist þess með réttu að framlag kvenna væri metið að verðleikum. En við höfum byrjað að nota undarlega markaðsvæddan mælikvarða til að mæla lífsfyllingu kvenna. Launuð vinna táknar sjálfstæði, árangur og sjálfsmynd. Það sem kona gerir innan fjölskyldunar verður hins vegar að fá hagfræðilegt heiti—„ólaunuð vinna“—svo það sé ekki talið einskis virði. Spáum aðeins í þá þversögn. Ef kona ver átta klukkustundum á dag í að annast börn annarra á leikskóla efast enginn um að hún er að vinna. Hún er starfsmaður og fær greidd laun. Ef hún ver sömu átta klukkustundum í að annast sín eigin börn virðumst við þurfa hugtakið „ólaunuð umönnunarvinna“ til að sannfæra okkur um að það sem hún gerir hafi gildi. En gildi þessarar umönnunar var aldrei efnahagslegt. Auðvitað eru gildar ástæður fyrir því að meta ólaunaða heimilisvinnu til fjár. Hagfræðingar og stjórnvöld þurfa að skilja hvernig heimili virka og ekki á sjálfkrafa að ætlast til þess að konur annist alla ábyrgð á heimilinu einfaldlega vegna þess að þær eru konur. En það hjálpar konum ekki heldur að telja þeim trú um að túlka sérhvert kærleiksverk sem arðrán. Við ættum að geta haldið tvennu í höfðinu samtímis: Móðurhlutverkið getur verið ótrúlega erfitt og það getur verið ótrúlega dásamlegt. Fæðing getur verið sársaukafyllri en orð fá lýst og samt ein stórkostlegasta reynsla í lífi konu. Brjóstagjöf getur verið erfið, en hún getur líka verið undursamleg. Svefnlaus nótt vegna umönnunar barns getur bæði verið erfið og dýrmæt. Við getum valið að færa fórnir af fúsum og frjálsum vilja vegna þess að manneskjan sem við færum fórnina fyrir skiptir okkur meira máli en það sem við látum af hendi. Við erum ótrúlega margmál þegar kemur að kostnaði móðurhlutverksins—tekjur, svefn, frelsi, starfsframi, sjálfræði yfir eigin líkama, frítími—en þegar að því kemur að tala um það sem móðurhlutverkið gefur okkur er okkur orða vant. Ást. Tengsl. Tilgangur. Blíða. Stolt. Gleði. Hamingja. Samband sem á sér enga hliðstæðu í lífi okkar. Auðvitað er móðurhlutverkið vinna. En það er ekki bara vinna. Kannski þarf ekki að vara konur við því að fegra móðurhlutverkið, heldur ættum við frekar að segja upphátt og oft að þrátt fyrir allt erfiðið sem því fylgir er móðurhlutverkið dásamlegt. Við ættum við að hætta að tala um það fallegasta og undursamlegasta sem við konur gerum eins og einhver skuldi okkur yfirvinnukaup. Höfundur er fjölmiðafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kvenheilsa Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar