Skoðun

Um helmingur lækna á Land­spítala í fullu starfi

Sigurður Helgi Pálmason skrifar

Í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn minni um starfshlutfall lækna hjá Landsítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri kemur fram að einungis 271 af 568 læknum á Landspítala eru þar í fullu starfi, eða með starfshlutfall frá 91 til 100 prósent. Tuttugu læknar eru þar í 81 til 90 prósenta starfshlutfalli, fimmtíu læknar í 71 til 80 prósenta starfshlutfalli og tuttugu og þrír læknar eru í 61 til 70 prósenta starfi á Landspítalanum.

Samandregið eru því 64 prósent lækna á Landspítalanum með starfshlutfall á bilinu 61 til 100 prósent. Þar með eru 36 prósent læknanna með sextíu prósenta starfshlutfall eða minna. Í svörum ráðherra kemur til að mynda fram að enginn þeirra tólf augnlækna sem þar starfa séu þar í meira en 60 prósenta starfshlutfalli.

Þar af eru 79 læknar í tíu prósenta eða minna starfshlutfalli. Það þýðir að 14 prósent lækna á Landspítalanum eru þar í minna en 10 prósenta starfi.

Samfella í starfi Landspítala

Það geta auðvitað verið margs konar og réttmætar ástæður fyrir litlu starfshlutfalli lækna á Landspítala. Til að mynda starfa 143 þeirra einnig eftir samningi Sjúkratrygginga Íslands og Læknafélags Reykjavíkur, eða um fjórðungur þeirra lækna sem vinnur á Landspítalanum.

Þegar svör heilbrigðisráðherra eru skoðuð vekur það athygli að einungis 51 prósent lækna sem starfa á Landspítalanum eru þar í meira en 80 prósenta starfshlutfalli. Það hefur komið fram í opinberri umræðu að læknar sem einnig vinna utan Landspítala, sinni þar útköllum þegar á þarf að halda. En það hefur einnig komið fram í umræðunni að til að tryggja festu og samfellu í þróun starfsemi á Landspítala sem jafnframt er háskólasjúkrahús, þurfi að hafa hátt hlutfall lækna þar í fullu starfi.

Svör heilbrigðisráðherra við fyrirspurn minni gætu því nýst til frekari umræðu um þessi mál.

Höfundur er þingmaður Flokks fólksins.




Skoðun

Skoðun

Glassúrfólkið

Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar

Sjá meira


×