Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Birgir Olgeirsson skrifar 17. september 2026 11:35 Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair. Félagið telur kröfur flugvirkja umfram svigrúm sitt og hefur ítrekað lagt til að óháður gerðardómur skeri úr ágreiningi um launaliðinn. Sýn/Arnar Rúmlega þúsund farþegar Icelandair hafa nýtt sér boð félagsins um að færa flug vegna fyrirhugaðs verkfalls flugvirkja. Enginn sáttafundur hefur verið boðaður í deilunni en ótímabundið verkfall á að hefjast aðfaranótt miðvikudagsins 23. september. „
Rúmlega 1000 farþegar hafa nýtt sér að færa flugið sitt í takt við það sem við sendum út í gær,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, í svari við fyrirspurn fréttastofu. Boðið nær til farþega sem eiga bókað flug 23. og 24. september. Samkvæmt upplýsingum Icelandair ráðast breytingarnar af sætaframboði. Félagið hefur varað við verulegum áhrifum á flugáætlunina komi til verkfalls. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir í samtali við fréttastofu að enginn fundur hafi verið boðaður í deilunni. Samningar flugvirkja hafa verið lausir frá síðustu áramótum, í rúma átta og hálfan mánuð. Viðræður hófust í nóvember í fyrra og deilunni var vísað til ríkissáttasemjara í febrúar. Segja grunnlaunin hafa dregist aftur úr Ástráður segir megindeiluefnið vera leiðréttingu vegna skekkju í kjörum flugvirkja gagnvart viðmiðunarstéttum. Flugvirkjafélagið segir grunnlaun flugvirkja hafa verið 47.277 krónum hærri en hjá samanburðarhópi iðnfræðinga árið 2019, en 40.500 krónum lægri árið 2025. Samkvæmt þeim tölum hefur munurinn á hópunum breyst flugvirkjum í óhag um 87.777 krónur. Félagið segir grunnlaun flugvirkja hafa hækkað um 27,2 prósent á þessu tímabili en grunnlaun samanburðarhópsins um 50,8 prósent. Flugvirkjar hafi tekið á sig kjaraskerðingu þegar samið var við Icelandair í heimsfaraldrinum árið 2020. „Við viljum leiðrétta þessa skekkju og semja um eðlilega launaþróun til framtíðar,“ segir í yfirlýsingu félagsins. Flugvirkjafélagið segir jafnframt deilt um kröfur Icelandair um rýmri heimildir til verktöku og breytingar á vöktum. Icelandair hefur hins vegar sagt kröfurnar umfram svigrúm félagsins. Félagið hefur ítrekað lagt til að óháður aðili skeri úr ágreiningi um launaliðinn með samningsbundnum gerðardómi. Flugmenn funda í dag Samninganefndir flugmanna og Icelandair funda hjá ríkissáttasemjara í dag. Ástráður segir búið að snerta á öllum ágreiningsefnunum í þeirri deilu. Sum þeirra séu erfiðari en önnur en hann vill ekki fara nánar út í það. Eins og Vísir fjallaði um í maí hefur deilan meðal annars snúist um flugtíma, hvíld, vaktir og frí. Icelandair hefur sóst eftir meiri sveigjanleika í rekstrinum en flugmenn vilja verja kjör sín og réttindi. Þá hefur verið deilt um forgangsrétt félagsmanna Félags íslenskra atvinnuflugmanna til flugs Icelandair, rekstur á erlendu flugrekstrarleyfi og heimildir til svokallaðrar blautleigu. Með blautleigu er átt við að Icelandair leigi flugvél með áhöfn annars flugfélags. Lagasetning ekki verið rædd Eyjólfur Ármansson innviðaráðherra sagði í viðtali við Vísi á þriðjudag að grundvallaratriði væri að samningsaðilar fyndu lausn áður en til verkfalls kæmi. Ekki hefði komið til umræðu að setja lög á verkfallið. „Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi og ábyrgð samningsaðila er mjög, mjög mikil,“ sagði Eyjólfur. Alþingi samþykkti lög gegn verkfalli flugvirkja Icelandair 22. mars 2010. Fjórum árum síðar brugðust flugvirkjar við yfirvofandi lagasetningu með því að aflýsa boðuðu ótímabundnu verkfalli. Þeir höfðu þá farið í sólarhringsverkfall 16. júní 2014. Ótímabundið verkfall átti að hefjast 19. júní en því var aflýst kvöldið áður til að afstýra lagasetningu. Alþingi hafði verið kallað saman til að stöðva aðgerðirnar með lögum. Kostaði fjórar milljónir dala Í samantekt Vísis á fyrri aðgerðum flugvirkja Icelandair kom fram að þeir hafa sjö sinnum lagt niður störf í fjórum kjaradeilum á árunum 2010 til 2017. Tvær vinnustöðvanir voru árið 2010, þrjár árið 2011 og ein hvort áranna 2014 og 2017. Verkfallið í desember 2017 stóð í 46 klukkustundir, frá morgni 17. desember til aðfaranætur 19. desember. Icelandair sagði 64 flug hafa fallið niður og ferðir um 20 þúsund farþega hafa raskast. Í uppgjöri Icelandair vegna ársins 2017 var kostnaður verkfallsins tilgreindur sem fjórar milljónir Bandaríkjadala. Sú fjárhæð átti við verkfallið í heild, sem stóð í tæpa tvo sólarhringa.
Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Icelandair Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Fleiri fréttir Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sýndu fljúgandi Roadster Lokanir, lægðir og samviskubit „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Þungur róður hjá fyrirtækjum en undirstöðurnar sterkar Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Sjá meira