Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar 20. september 2026 16:00 Í upphafi árs kallaði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra eftir samstöðu og varaði við sundrungu og „svartagallsrausi“. Slík orðræða vekur þó spurningu sem skiptir máli í lýðræðislegri umræðu: Hver ákveður hvað telst samstaða og hvað sundrung? Hvenær er gagnrýni málefnaleg og hvenær verður hún að svartagallsrausi? Hver skilgreinir það – og á hvaða forsendum? Stjórnmálamenn skilgreina ekki aðeins eigin afstöðu. Þeir geta einnig skilgreint afstöðu andstæðinga sinna, eignað þeim orð eða sett sjónarmið þeirra inn í ramma sem þeir sjálfir hafa ekki valið. Þá færist umræðan frá því sem sagt var yfir í það sem einhver annar segir að hafi verið meint. Þýski fræðimaðurinn Thomas H. Stütz hefur þróað hugtakið Definitionsmacht, eða skilgreiningarvald. Það lýsir valdi til að móta rammann sem umræða fer fram innan og þar með hvaða merking er lögð í orð, hugtök og afstöðu annarra. Spurningin er þá ekki aðeins hvað er sagt, heldur hver fær að skilgreina hvað það merkir. Fólkið veit sínu viti Þessi spurning varð áleitin í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Í ræðu á Hólahátíð 16. ágúst fjallaði forsætisráðherra ítarlega um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem þá var fram undan. Hún sagði þjóðina ekki klofna í herðar niður af heift og æsingi, „eins og ýmsir foringjar og álitsgjafar vilja vera láta“. Slíkir forystumenn hefðu látið stór orð falla „með það fyrir augum að magna upp og ala á klofningi sem þeir telja geta orðið sér og sínum málstað til framdráttar“. Um fólkið sjálft sagði hún hins vegar að það vissi sínu viti og væri fullfært um að taka eigin ákvörðun „án þess að láta skipa sér á bás í þessu máli af flokkspólitískum foringjum“. Þarna eru tvö ólík hlutverk skilgreind. Annars vegar almenningur, sem ræðir málin af yfirvegun og tekur sjálfstæða ákvörðun. Hins vegar foringjar og álitsgjafar sem magna upp klofning og skipa fólki á bás. En hver skilgreinir hvorum megin þeir standa? Spurningin einföld og svarið skýrt Þjóðin var spurð hvort Ísland ætti að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. 52,8% kjósenda svöruðu nei. Í stefnuræðu sinni 9. september kallaði forsætisráðherra þjóðaratkvæðagreiðsluna „sigur fyrir lýðræðið“. „Spurningin [var] einföld og svarið skýrt,“ sagði hún, og ríkisstjórnin myndi ekki hefja aðildarviðræður á ný. Síðan bætti hún við: „En með því höfum við ekki sagt nei við Evrópu.“ Það er rétt. Kjósendur voru ekki spurðir hvort þeir vildu segja nei við Evrópu. Þeir voru heldur ekki spurðir hvort Ísland ætti að segja sig frá EES-samningnum, hætta Schengen-samstarfi eða draga úr samskiptum við Evrópusambandið. En einmitt þess vegna vaknar spurningin: Hvers vegna þarf að taka fram hvað þjóðin sagði ekki? „Nei við Evrópu“ var ekki valkostur á kjörseðlinum. Engin ástæða er því til að leggja þá afstöðu í munn þeirra sem sögðu nei til þess eins að taka síðan fram að þeir hafi ekki sagt hana. Þjóðin var spurð hvort hefja ætti aðildarviðræðurnar á ný og svaraði nei. Umsóknin frá 2009 kann að standa formlega óbreytt. En þjóðaratkvæðagreiðslan snerist um annað: hvort fyrir hendi væri lýðræðislegur grundvöllur til að hefja ferlið á ný. Í aðdraganda hennar var talað um að já myndi leggja „traustan lýðræðislegan grunn“ að viðræðunum. Þjóðin valdi að leggja þann grunn ekki. Þá vaknar spurningin um skilgreiningarvaldið að nýju: Hver fær að ákveða hvað stendur „óbreytt“ eftir slíka niðurstöðu? Fortíðin og framtíðin Skilgreiningarvaldið birtist einnig annars staðar í sömu stefnuræðu. Forsætisráðherra biður þingheim að líta til baka: „Leiðum hugann að stöðunni eins og hún var orðin árið 2024. Skoðum þær breytingar sem orðið hafa til batnaðar fyrir venjulegt fólk.“ Fortíðin er þar notuð sem samanburðargrunnur til að meta árangur ríkisstjórnarinnar. Í lok sömu ræðu er hins vegar hvatt til þess að fólk festist ekki í „pólitísku þrasi um fortíðina“ heldur taki höndum saman um framtíðina. Fortíðin getur auðvitað bæði upplýst umræðu og verið misnotuð í pólitísku þrasi. En þá blasir sama spurning við: Hver skilgreinir hvenær hún er hvort? Sama spurning kemur þannig aftur í ólíkum myndum. Hver skilgreinir hvað er samstaða og hvað sundrung? Hvað er málefnaleg gagnrýni og hvað svartagallsraus? Hvað er nauðsynlegt uppgjör við fortíðina og hvað pólitískt þras? Hvað sögðu andstæðingarnir – og hvað „meintu“ þeir? Og þegar þjóðin sjálf hefur talað, hver fær þá að ákveða hvað svar hennar merkir? Forsætisráðherra bað þjóðina um svar. Hún fékk það. Lýðræði virðir ekki aðeins kjósandann með því að spyrja hann. Það virðir hann með því að leyfa honum að eiga svarið. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar