Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar 21. september 2026 08:31 Pólsk stjórnvöld hafa nú tryggt skólabörnum aðgang að máltíðum sem eru alfarið úr jurtaríkinu. Heilbrigðisráðherra Póllands undirritaði reglugerðina 16. febrúar 2026 og hún tók gildi 1. september á þessu ári. Nýju reglurnar ná til 6,8 milljóna barna í opinberum skólum og leikskólum landsins. Samkvæmt reglugerðinni verða skólar að bjóða upp á að minnsta kosti einn rétt á viku sem er alfarið úr jurtaríkinu og byggir meðal annars á belgjurtum, svo sem baunum, kjúklingabaunum eða linsubaunum. Þá daga sem kjöt eða fiskur er á matseðlinum skal jafnframt bjóða upp á næringarríkan valkost úr jurtaríkinu. Aðeins má bjóða upp á kjöt tvisvar í viku en fisk að minnsta kosti einu sinni í viku. Í reglugerðinni eru jurtadrykkir, jurtamiðaðir staðgenglar mjólkurvara og staðgenglar kjötvara úr jurtaríkinu sérstaklega viðurkennd sem hluti af skólamáltíðum. Verslunum í pólskum skólum er nú einnig heimilt að selja jurtamiðaða staðgengla mjólkurvara. Breytingarnar komu í kjölfar opinbers samráðs þar sem bárust um 800 umsagnir. Green REV Institute og verkefni samtakanna, Plant Based School, höfðu meðal annars beitt sér fyrir breytingunum með stuðningi ProVeg Foundation. Maturinn skiptir máli í loftslagsmálum Þessar breytingar snúast ekki eingöngu um að auka valfrelsi barna og fjölskyldna. Þær tengjast einnig einni stærstu umhverfisáskorun samtímans: hvernig við framleiðum matinn okkar. Matvælakerfi heimsins valda umtalsverðri losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum og dýraafurðir vega þar þungt. Rannsóknir sýna að eftir því sem hlutur dýraafurða í mataræði eykst, aukast að jafnaði loftslags- og umhverfisáhrif þess. Í umfangsmikilli rannsókn sem byggði á mataræði 55.504 einstaklinga og gögnum frá 38.000 býlum í 119 löndum var umhverfisfótspor mismunandi mataræðis borið saman. Niðurstöðurnar, sem birtust í vísindatímaritinu Nature Food árið 2023, sýndu mikinn mun. Losun gróðurhúsalofttegunda sem tengdist mataræði grænkera var að meðaltali um fjórðungur af losun þeirra sem neyttu mikils kjöts. Landnotkunin var sömuleiðis um fjórðungur. Munurinn snerist ekki aðeins um þá sem slepptu dýraafurðum alfarið. Þeir sem borðuðu lítið kjöt höfðu einnig umtalsvert minna umhverfisfótspor en þeir sem borðuðu mikið kjöt. Með öðrum orðum þarf ekki að hugsa breytinguna sem allt eða ekkert. Hver máltíð skiptir máli. Önnur rannsókn á losun frá matvælaframleiðslu á heimsvísu, sem birtist í sama tímariti árið 2021, áætlaði að 57% losunar frá matvælaframleiðslu tengdist dýraafurðum, samanborið við 29% frá matvælum úr jurtaríkinu. Einstaklingsval eða kerfisbreyting? Við tölum gjarnan um loftslagsvænt mataræði sem persónulegt val. Hvað set ég á diskinn minn? En breytingin í Póllandi sýnir hina hliðina á málinu. Einstaklingar velja ekki í tómarúmi. Það skiptir máli hvaða matur stendur þeim til boða í skólum, á vinnustöðum, í mötuneytum og verslunum. Þegar plöntumiðaður réttur er sjálfsagður valkostur í stað þess að vera undantekning verður auðveldara fyrir fólk að velja mat sem hefur minni áhrif á loftslag og umhverfi. Þarna getur opinber stefna haft veruleg áhrif. Ein plöntumiðuð skólamáltíð kann að virðast lítil breyting. Þegar breytingin nær hins vegar til milljóna barna, viku eftir viku og ár eftir ár, verður samanlagt umfang hennar allt annað. Samráðsferlið í Póllandi sýnir jafnframt að slíkar kerfisbreytingar verða ekki endilega til af sjálfu sér. Félagasamtök og aðrir aðilar geta haft áhrif á hvernig opinber stefna þróast og hvaða valkostir standa almenningi til boða. Frá vali til aðgengis Loftslagsvandinn verður ekki leystur með mataræði einu saman. Samgöngur, orkunotkun, iðnaður og neysla skipta öll miklu máli. En mataræði er einn þeirra þátta sem við getum haft áhrif á í daglegu lífi. Rannsóknir sýna að það að færa mataræðið frá dýraafurðum og í átt að fæðu úr jurtaríkinu getur dregið verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda, landnotkun og öðrum umhverfisáhrifum. Pólsk stjórnvöld hafa nú tekið skref í þessa átt. Í stað þess að láta loftslagsvænni matarvenjur eingöngu ráðast af vali hvers og eins hafa þau breytt umhverfinu þar sem valið fer fram. Kannski er það einmitt þar sem eitt stærsta tækifærið liggur: að gera loftslagsvænni kostinn ekki aðeins mögulegan, heldur aðgengilegan og hversdagslegan. Þegar slíkt val stendur milljónum barna til boða í skólanum getur ein máltíð á disknum orðið hluti af mun stærri breytingu. Gaman væri að sjá hvort yfirvöld skólamála á Íslandi væru ekki áhugasöm um sömu breytingar. Greinarhöfundur er í loftslagshópnum París 1,5. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Vegan Matur Pólland Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Sjá meira
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar