Viðskipti innlent

„Er til­gangurinn sér­hags­munir Við­reisnar?“

Árni Sæberg skrifar
Ingibjörgu líst ekkert á boðaðar breytingar á tollflokkun pitsaosts.
Ingibjörgu líst ekkert á boðaðar breytingar á tollflokkun pitsaosts. Vísir

Þingmaður Miðflokksins veltir því fyrir sér hvort tilgangurinn með boðaðri breytingu á tollflokkun pitsaosts séu sérhagsmunir Viðreisnar og þjónkun við innflytjendur matvæla. Miðflokkurinn muni tala til varna fyrir landbúnaðinn komi frumvarp þess efnis fyrir þingið.

Líkt og Vísir fjallaði um í gær birti fjármála- og efnahagsráðuneytið þann 4. september síðastliðinn áform um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld. Meðal boðaðra breytingar er breyting á tollflokkun pitsaosts. 

Umræðan um tollflokkun pitsaosts á sér langa sögu en nú síðast var fjallað um það að bændur eru æfir vegna boðaðra breytinga, sem höfðu raunar verið boðaðar áður en síðar afboðaðar.

Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins, gerði sér mat úr málinu á þingfundi dagsins, undir liðnum störf þingsins.

„Fyrirhuguð breyting beinist að vöruflokki sem hefur sætt ítarlegri meðferð hjá íslenskum tollyfirvöldum og öllum stigum dómstóla og hefur verulega þýðingu fyrir íslenska mjólkurframleiðslu eins og kunnugt er,“ sagði hún í upphafi ræðu sinnar.

Opni glufu frekar en loki

Ingibjörg sagði það vekja sérstaka athygli að samkvæmt áformaskjali ráðuneytisins sé markmið áformaðs frumvarps meðal annars að loka glufum, fækka undanþágum í skattkerfinu og auka skilvirkni í framkvæmd. 

„Þetta eru ekkert annað en öfugmæli, frú forseti, því að þessi fyrirhugaða breyting á tollflokkum myndi fela í sér hið gagnstæða þar sem hún myndi skapa sérstaka undanþágu fyrir afmarkaðan vöruflokk sem hingað til hefur notið sömu tollmeðferðar og aðrar sambærilegar mjólkurafurðir og frekari glufur opnaðar. Þessi áform fjármálaráðherra Viðreisnar munu því óhjákvæmilega hafa mikil áhrif á íslenska mjólkurframleiðslu og afkomu kúabúa. En ég get upplýst Viðreisn um, sé henni ekki kunnugt um það, að mjólkurframleiðsla á sér stað á kúabúum á landsbyggðinni þar sem verðmætasköpun á sér stað og lífsviðurværi fjölda fjölskyldna í landinu, hún skiptir gríðarlegu máli.“

Sérhagsmunir fárra undir

Ingibjörg sagði þá að það læddist að henni sá grunur að fyrirhuguð breyting myndi fyrst og fremst þjóna sérhagsmunum fámenns hóps. Næði breytingin fram að ganga yrðu sérhagsmunir örfárra innflytjenda matvæla teknir fram yfir almannahagsmuni, sem fælust meðal annars í fæðuöryggi, innlendri verðmætasköpun, byggðafestu og framleiðslugetu landsins, auk þess sem með þessu yrði skapað afar slæmt fordæmi. 

„Hver er þá tilgangurinn? Það er von að maður velti því fyrir sér. Er tilgangurinn að herða enn frekar að landbúnaðarframleiðslu í landinu? Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar og þjónkun við tiltekna innflytjendur matvæla? Ég get upplýst þingheim um það að muni þetta frumvarp líta dagsins ljós, sem ég vona að það geri ekki, þá mun Miðflokkurinn taka til varna fyrir landbúnaðinn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×