Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Starri Freyr Jónsson skrifar 28. september 2026 10:07 „Þessi viðurkenning sýnir að reksturinn stendur á traustum grunni,“ segir Lárus Orri Stefánsson, sölu- og markaðsstjóri Payday, sem er fjórði frá vinstri í hópi starfsmanna fyrirtækisins. Payday er nú í fyrsta sinn á lista Framúrskarandi fyrirtækja. Það er ekki á hverjum degi sem fyrirtæki kemst í fyrsta sinn í hóp Framúrskarandi fyrirtækja. Hjá Payday er því rík ástæða til að fagna í haust en fyrirtækið er í ár í fyrsta sinn á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki. „
Þetta hefur góð og víðtæk áhrif. Þessi viðurkenning sýnir að reksturinn stendur á traustum grunni,“ segir Lárus Orri Stefánsson, sölu- og markaðsstjóri Payday. Hann segir viðurkenninguna ekki síður mikilvæga fyrir starfsfólkið enda sé hún staðfesting á þeirri vinnu sem unnin hefur verið innan fyrirtækisins undanfarin ár. „Fyrir okkur starfsfólkið er þetta líka viðurkenning á hlutum sem sjást ekkert endilega út á við.“ Vaxið hratt á nokkrum árum Payday var stofnað árið 2017 og er því tiltölulega ungt fyrirtæki. Fyrstu árin var megináherslan á að einfalda lífið fyrir sjálfstætt starfandi fólk, meðal annars með reikningagerð og launagreiðslum. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og árið 2020 bættist bókhaldshlutinn við. Lárus Orri Stefánsson er sölu- og markaðsstjóri Payday. Í dag er Payday orðið að fullbúnu viðskiptakerfi sem þjónustar þúsundum fyrirtækja og einstaklinga. Þar má meðal annars finna bókhaldskerfi, launakerfi, reikningagerð og tilboðsgerð. Viðskiptavinir Payday eru að stórum hluta lítil og meðalstór fyrirtæki en Lárus segir þann hóp mynda um 85 prósent af íslenskum markaði. „Til að byrja með vorum við mikið með einyrkja og sóttum sérstaklega á þann markað. Í dag erum við hins vegar með fullbúið bókhaldskerfi og þjónum litlum og meðalstórum fyrirtækjum.“ Traustið skiptir öllu Þegar þjónustan snýst um bókhald, laun, skil til Skattsins og lífeyrissjóða og önnur mikilvæg mál fyrirtækja skiptir traust miklu máli. Lárus telur því að viðurkenning Creditinfo geti haft beina þýðingu í samskiptum Payday við bæði núverandi og verðandi viðskiptavini. „Fyrir viðskiptavini sýnir þetta vonandi ákveðið traust. Þeir eru að treysta okkur fyrir bókhaldi og mikilvægum málum eins og skilum til Skattsins og lífeyrissjóða, launavinnslu og öðru slíku. Vonandi styrkir þessi viðurkenning stöðu okkar enn frekar þegar kemur að trausti.“ Hann segir það einfaldlega eðli starfseminnar að viðskiptavinir þurfi að geta treyst fyrirtækinu sem þeir velja til að halda utan um þessa mikilvægu þætti rekstrarins. „Þú ferð ekkert með rekstur fyrirtækisins hvert sem er þegar kemur að þessum málum. Þannig að þetta mun klárlega hjálpa okkur hvað það varðar.“ Ekki sérstakt markmið að komast á listann Þótt Payday sé nú komið í hóp Framúrskarandi fyrirtækja segir Lárus að það hafi ekki verið sérstakt markmið stjórnenda að ná inn á listann. Viðurkenningin sé fremur afleiðing af því hvernig fyrirtækið hefur verið rekið og hvernig það hefur þróast. „Ég held að það hafi ekkert verið sérstakt markmið að komast á þennan lista. En þau atriði sem listinn byggir á ættu auðvitað að vera markmið allra fyrirtækja. Að geta uppfyllt þessi skilyrði er vissulega markmið í sjálfu sér.“ Gervigreindarfjármálastjóri á leiðinni Vöruþróunin heldur áfram og næstu skref Payday verða meðal annars tekin inn í heim gervigreindar. Lárus segir samkeppnina á markaðnum töluverða og að nýjar lausnir séu nú að spretta upp í takt við hraða þróun gervigreindar. Payday ætlar ekki að sitja hjá. „Þróunin er að færast inn í heim gervigreindar og við ætlum að taka þátt í henni.“ Meðal þess sem er fram undan er aukin sjálfvirkni við afstemmingar. Notendur munu geta búið til reglur um hvernig ákveðnir hlutir eiga að bókast og eftir það sér kerfið um að bóka þá með sama hætti. Einnig er væntanlegt verk- og tímaskráningarkerfi. Starfsmenn fyrirtækja geta þá skráð vinnutíma sinn á einstök verk og upplýsingarnar tengjast beint við reikningagerð og launavinnslu. En þar stoppar þróunin ekki. Payday vinnur einnig að eins konar gervigreindarfjármálastjóra sem verður innbyggður í kerfið. Hugmyndin er að notandinn geti rætt við kerfið á mannamáli og spurt hvernig reksturinn standi, hvort einhver óvenjulegur kostnaður hafi komið upp eða beðið um sundurliðaðar skýrslur fyrir ákveðin tímabil. Kerfið vinni þá upplýsingarnar og skili þeim til notandans án þess að hann þurfi sjálfur að grafa þær upp og setja saman. Sparifötin tekin fram í október Áður en nýjungarnar taka alfarið yfir athyglina er þó tilefni til að fagna áfanganum sem þegar hefur náðst. Fulltrúar Payday ætla að sjálfsögðu að mæta í Hörpu 28. október þegar listinn yfir Framúrskarandi fyrirtæki verður kynntur. „Klárt mál, við ætlum að mæta. Það er ekki á hverjum degi sem maður fær svona viðurkenningu,“ segir Lárus. Hann segir viðburðinn jafnframt gott tækifæri til að hitta fólk úr öðrum fyrirtækjum, mynda tengsl og hitta viðskiptavini og aðra sem eru á svipuðum stað í rekstri. Fyrsta árið í hópi Framúrskarandi fyrirtækja verður því ekki látið fram hjá sér fara. „Við erum spennt,“ segir hann að lokum.
Framúrskarandi fyrirtæki 2026 Mest lesið Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Atvinnulíf Lækka verð á þúsund vörum Neytendur Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Samstarf Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Framúrskarandi fyrirtæki Loka Krambúðinni á Húsavík Viðskipti innlent Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Neytendur Tugir bíltegunda innkallaðir eftir 35 dauðsföll Neytendur Breskur fjárfestir leitar á náðir ríkisins vegna sæstrengs til Íslands Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Fleiri fréttir Frá löngum gátlista yfir í flennigír og fögnuð Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Eina vottunin sem sýnir hvaða fyrirtæki skara raunverulega fram úr Sjá meira
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf