Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar 24. september 2026 06:02 Ríkisstjórnin birti frumvarp sitt til fjárlaga fyrir árið 2027 á dögunum. Þar er gert ráð fyrir 4,7 milljarða króna afgangi á ríkissjóði. Náist það markmið verður það í fyrsta sinn frá árinu 2018 sem ríkissjóður er rekinn með afgangi. Það eru góð tíðindi og full ástæða til þess stefna að hallalausum ríkisrekstri. Góð markmið duga þó ekki ein og sér. Ekki síður skiptir máli hvaða leið er farin að settu marki. Í fjárlagafrumvarpinu er þannig bæði gert ráð fyrir umfangsmiklum aðhaldsaðgerðum og aukinni skattheimtu. Því er ástæða til að skoða hvað felst í hvoru tveggja. Hversu mikil er hagræðingin í raun? Í frumvarpinu er gert ráð fyrir 44 ma. kr. aðhaldsaðgerðum á útgjaldahlið ríkissjóðs. Við fyrstu sýn gefur sú fjárhæð til kynna töluvert aðhald í ríkisrekstrinum, eða sem nemur 2,6% af fyrirhuguðum 1.704 ma. kr. heildarútgjöldum ríkissjóðs árið 2027. Þegar betur er að gáð felst þó verulegur hluti aðhaldsins í ráðstöfunum sem ekki fela í sér varanlega hagræðingu í ríkisrekstrinum. Um 19 milljarðar tengjast ónýttum fjárheimildum frá fyrri árum, meðal annars vegna uppbyggingar nýs Landspítala. Samdráttur þessara fjárveitinga er þannig bókhaldslegs eðlis frekar en að leiða til þess að umfang viðkomandi verkefna minnki að sama skapi. Eftir standa um 26 milljarðar króna í öðrum aðhaldsaðgerðum, meðal annars almennri 1% niðurskurðarkröfu, 1% fækkun stöðugilda, hagræðingu í opinberum innkaupum, sameiningu stofnana og frestun eða niðurfellingu verkefna. Þessar aðgerðir eru enn að miklu leyti óútfærðar og því óljóst hve stór hluti þeirra mun skila varanlegum sparnaði í ríkisrekstrinum. Skattahækkanir vega þungt Á sama tíma og ríkisstjórnin boðar 26 milljarða króna hagræðingaraðgerðir nema fyrirhugaðar skattahækkanir 34 milljörðum króna. Hækkanirnar eru tíu talsins í ár og þær má sjá á meðfylgjandi mynd. Umfangsmiklar breytingar eru meðal annars fyrirhugaðar á skattlagningu ferðaþjónustu. Gert er ráð fyrir að gjaldtaka á ferðamannastöðum og hækkun virðisaukaskatts á viðskiptavini baðlóna skili ríkissjóði níu milljörðum króna. Til samanburðar nam hagnaður ferðaþjónustunnar í heild um 20 milljörðum króna árið 2024. Umfang fyrirhugaðrar skattheimtu er því verulegt í samhengi við afkomu greinar sem enn er í uppbyggingarfasa. Þá á hækkun bankaskatts að skila ríkissjóði um sex milljörðum króna. Skatturinn leggst á alla helstu banka landsins og hækkar þannig kostnað við bankastarfsemi almennt. Reikna má með að hluti kostnaðarins skili sér til viðskiptavina. Skatturinn leggst því ekki aðeins á bankana sjálfa heldur munu heimili og fyrirtæki einnig bera hluta hans í formi aukins fjármagnskostnaðar. Framleiðniviðmið við útreikning skattleysis- og þrepamarka tekjuskatts verður jafnframt lækkað úr 1% í 0%. Við það hækka persónuafsláttur og skattleysismörk minna en ella og skattbyrði launafólks eykst sem mismuninum nemur. Áætlað er að breytingin skili ríkissjóði rúmum þremur milljörðum króna. Við þetta bætast meðal annars hækkun krónutölugjalda, 16% hækkun kílómetragjalds, framlenging forvarnargjalds vegna eldsumbrota á Reykjanesi og lækkun endurgreiðsluhlutfalls virðisaukaskatts vegna vinnu við byggingu íbúðarhúsnæðis. Skattahækkanir eru því veigamikill þáttur í áætlun ríkisstjórnarinnar um hallalausan rekstur. Á sama tíma felst verulegur hluti aðhaldsaðgerða í breyttri ráðstöfun fjárheimilda fremur en varanlegri lækkun rekstrarkostnaðar. Samsetning aðhaldsins skiptir máli Ekki skiptir aðeins máli hversu miklu aðhaldi er beitt heldur einnig hvernig það er útfært. Skattahækkanir og lækkun ríkisútgjalda geta haft ólík áhrif á heimili, fyrirtæki og efnahagslífið í heild. Þetta skiptir ekki síst máli nú þegar merki eru um kólnun í hagkerfinu. Í ágústspá Seðlabankans var hagvaxtarspáin fyrir árið 2026 lækkuð í 1,4%, meðal annars vegna þess að einkaneysla hafði gefið meira eftir en áður var talið. Jafnframt hafa flestir mælikvarðar bent til aukins slaka á vinnumarkaði. Slík þróun getur veikt afkomu ríkissjóðs með minni skatttekjum og auknum útgjöldum. Auknar álögur geta dregið úr ráðstöfunartekjum heimila og þrengt að svigrúmi fyrirtækja til fjárfestinga og atvinnusköpunar. Sumar skattabreytingar hafa jafnframt bein áhrif á verðlag. Hækkanir krónutölugjalda eru til dæmis taldar hækka vísitölu neysluverðs um 0,28%, sem hefur jafnframt áhrif á höfuðstól verðtryggðra lána og getur haft áhrif á launa- og verðmyndun. Útgjaldaaðhald getur vissulega einnig dregið úr eftirspurn í hagkerfinu. Efnahagsleg áhrif fjárlaga ráðast því ekki aðeins af því hvort gripið er til skattahækkana eða útgjaldalækkana, heldur hvaða skattar eru hækkaðir og hvaða útgjöld eru lækkuð. Varanleg hagræðing sem dregur úr kostnaði án þess að skerða þjónustu hefur til að mynda önnur áhrif en almennur niðurskurður eða frestun arðbærra fjárfestinga. Ekki er allur afgangur eins Tækifærin til hagræðingar skortir ekki. Í upphafi kjörtímabilsins efndi ríkisstjórnin til umfangsmikils samráðs um hagræðingu í ríkisrekstri. Alls bárust um 4.000 umsagnir með yfir 10.000 tillögum um hvernig mætti fara betur með skattfé. Viðskiptaráð lagði fram 60 aðgerðir sem gætu samkvæmt mati ráðsins bætt árlega afkomu ríkissjóðs um rúmlega 120 milljarða króna, meðal annars með breytingum á starfsmannahaldi, sameiningum stofnana, endurskoðun verkefna og sölu ríkiseigna til niðurgreiðslu skulda. Ríkisstjórnin ætti því að draga úr fyrirhuguðum skattahækkunum og leggja þess í stað meiri áherslu á að fylgja hagræðingarverkefni sínu eftir. Nú þegar hægir á hagkerfinu er sérstaklega mikilvægt að nýta þau tækifæri sem þegar hafa verið kortlögð og leita enn frekari leiða til að reka ríkið með hagkvæmari hætti, fremur en að auka álögur á heimili og fyrirtæki. Það er ástæða til að fagna því ef ríkissjóður skilar loks afgangi. En ekki er allur afgangur eins. Höfundur er hagfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birta Karen Tryggvadóttir Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun