Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar 24. september 2026 06:31 Maður gæti stundum haldið, miðað við orðræðu ráðherra og stjórnarliða, að erlendir ferðamenn sem sækja landið heim komi hingað tómhentir, aki um vegina okkar, traðki á náttúrunni og skilji svo reikninginn eftir á eldhúsborði íslenskra skattgreiðenda. Auðvitað fylgir ferðaþjónustunni ákveðinn kostnaður og það er eðlilegt að þeir taki sanngjarnan þátt í þeim kostnaði. Það gera þeir reyndar nú þegar þar sem skattspor ferðaþjónustunnar hleypur á hundruðum milljarða króna og greinin skapar störf og verðmæti um allt land. En þessi pistill snýr ekki að því að telja upp hagtölur ferðaþjónustunnar í heimilisbókhaldi íslensks samfélags. Það er orðræða kjörinna fulltrúa sem vert er að vekja athygli á. Þegar umræðan er sífellt sett upp sem íslenskir skattgreiðendur annars vegar og erlendir ferðamenn hins vegar verður til afar einföld mynd: Við borgum, þeir kosta. En slík framsetning er varhugaverð og sýnir aðeins brot af heildarmyndinni. Og hún skýtur nokkuð skökku við stefnu stjórnvalda sjálfra. Sjálfbærni er leiðarstef í ferðamálastefnu Íslands til 2030 – stefnu sem sjö af ellefu núverandi ráðherrum og yfirgnæfandi meirihluti þáverandi þingmanna samþykktu á Alþingi árið 2024. Þar er lögð áhersla á jafnvægi efnahags, samfélags, umhverfis og gesta. Ferðaþjónustan eigi að vera arðsöm og samkeppnishæf, starfi í sátt við land og þjóð og stuðli að dreifingu gesta um allt land. Það hlýtur því að mega spyrja hvort orð, markmið og aðgerðir núverandi ríkisstjórnar fari alltaf saman? Hvernig samræmist það að auka kostnað við akstur um landið markmiðum um meiri dreifingu ferðamanna? Hvernig samræmast auknar álögur markmiðum um efnahagslega sjálfbærni greinarinnar, arðsemi og samkeppnishæfni? Og hvernig er síendurtekin orðræða um erlenda ferðamenn sem kostnað fyrir íslenska skattgreiðendur til þess fallin að styrkja samfélagslega sátt? Síðasta spurningin er sérstaklega umhugsunarverð í ljósi þess að nýleg könnun Maskínu sýnir að 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Það er auðvelt að afgreiða gagnrýni ferðaþjónustunnar á skattahækkanir og auknar álögur sem fyrirsjáanlegt væl. En það verður samt að vera hægt að benda á staðreyndir og það hlýtur að vera eðlileg krafa að stjórnvöld standi með eigin ferðamálastefnu, í orði og aðgerðum. Ferðaþjónustan er ekki hafin yfir gagnrýni en það þýðir ekki að hún eigi að kyngja því að vera alltaf gerð að blóraböggli. Að endingu má minna á hið augljósa: erlendir ferðamenn eru líka skattgreiðendur á meðan þeir dvelja hér. Þeir greiða skatta og gjöld með neyslu sinni, rétt eins og við íslensku skattgreiðendurnir þegar við ferðumst um eigið land. Um leið nýta erlendir ferðamenn ekki með sama hætti þá opinberu þjónustu sem skattar standa undir fyrir íbúa landsins. Þess vegna er þessi aðgreining á milli íslenskra skattgreiðenda og erlendra ferðamanna dálítið sérkennileg. Ferðamaðurinn stendur ekki utan samfélagsins með ógreiddan reikning. Hann tekur þátt í að greiða hann. Við borgum, þeir borga. Og það væri óskandi að orðræða stjórnvalda endurspeglaði þá staðreynd. Höfundur er verkefnastjóri hjá Samtökum ferðaþjónustunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun