Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Lovísa Arnardóttir skrifar 24. september 2026 09:14 Guðrún Hafsteinsdóttir er formaður Sjálfstæðisflokksins. Hún var áður formaður Samtaka iðnaðarins og í eigin rekstri. Vísir/Vilhelm Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokks, vill að embætti ríkissáttasemjara fái auknar valdheimildir til að stíga inn í kjarabaráttu, til dæmis með því að fresta verkföllum. Hún telur vilja á Alþingi fyrir því. Hún segir vinnumarkaðsmódelið ekki ganga upp og útflutningsgreinar eigi að leiða launaþróun, ekki opinberi geirinn. Það verði að gera breytingar á módelinu eigi lífskjör að haldast góð.
Guðrún var til viðtals um vinnumarkaðinn í Bítinu á Bylgjunni í morgun en hún hefur setið hringinn í kringum borðið í atvinnulífinu en hún hefur verið í eigin rekstri, verið formaður Samtaka iðnaðarins og svo verið á þingi að setja lög. Hún ræddi vinnumarkaðsmódelið við okkur. Guðrún segir taktinn oft hægan á þingi og telur að það sé hægt að taka ákvarðanir hraðar. „Við erum búin að vita í fimmtíu ár að við verðum að leggja Sundabraut en við erum búin að rífast yfir því í fimmtíu ár,“ segir hún og að sömuleiðis hafi verið rifist um það í tuttugu ár hvar nýr Landspítali ætti að rísa. Það verði líklega til þess að þegar hann loks verði opnaður verði hann orðinn of lítill miðað við fólksfjölgun. Guðrún segir það hafa verið eitt af verkefnunum þegar hún var formaður Samtaka iðnaðarins, 2014 til 2020, og í stjórn Samtaka atvinnulífsins að það þyrfti að breyta vinnumarkaðsmódelinu. Hún telur nánast alla sammála um að það þurfi að gera það. Þegar hún hafi verið í þessu, fyrir tíu árum, hafi hafist vinna við SALEK-samkomulagið og þá hafi atvinnurekendur og launþegar farið saman til Norðurlanda til að reyna að læra af félögum þar. Vilja færa sig nær norrænu líkani „Ég held að við séum öll sammála um það að við viljum færast nær hinu norræna samningalíkani,“ segir Guðrún. Hún segir þetta hafa gengið vel en þó hægt og þá hafi orðið leiðtogaskipti í verkalýðshreyfingunni og tónninn og áherslurnar breyst með því. Samstarfinu var formlega slitið 2016 og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, var til dæmis kjörinn formaður VR árið 2017 og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar ári síðar. „Þið heyrið engan tala um Salek í dag, nema þá að það sé einhvers konar skammaryrði.“ Hún segir Salek-samkomulagið hafa snúist um það að við myndum taka okkur það meira til fyrirmyndar hvernig Norðurlöndin hagi sér á vinnumarkaði. Þar séu það útflutningsgreinarnar, samkeppnisgreinarnar, sem leggi línuna. „Þar sést svigrúmið best hvað við höfum til skiptanna í kjarasamningum, hvað við höfum til launahækkana,“ segir hún og atvinnurekendur hafi viljað leggja áherslu á þetta, að útflutningsgreinar segi til um það svigrúm sem sé til launahækkana á hverjum tíma. „Ef þeim gengur vel þá getum við hækkað meira og svo framvegis.“ Opinberi geirinn eigi ekki að leiða Í staðinn sé það þannig að opinberi geirinn sem semji fyrst leggi línuna fyrir alla hina og þá sé búið að setja útflutningsgreinar í bobba. „Við höfum of oft, á síðustu tíu, fimmtán árum, verið að hækka laun hér á Íslandi umfram þessa getu,“ segir Guðrún og að það sé ekki hægt að tappa því af öðruvísi en með verðbólgu og hærri vöxtum. „Þess vegna höfum við verið á öðrum stað en norrænu ríkin,“ segir hún og að laun hafi hækkað miklu meira og vaxtastigið sé miklu meira. Hún segir að ef það eigi að skoða vaxtastigið og af hverju það er hærra hérna verði á sama tíma að horfast í augu við það að það hafi ekki verið nægilegur agi. Spurð hvort það sé sanngjarnt að verkfallsrétturinn hafi meiri áhrif hjá ákveðnum stéttum segist Guðrún líta svo á að öll störf séu jafn mikilvæg. Hún vilji ekki gera greinarmun á mikilvægi starfa en það séu ákveðnir hópar sem geti lamað samfélagið með því að fara í verkfall. Hún segir mörg fámenn stéttarfélög á Íslandi og það séu gerðir á fjórða hundrað kjarasamningar. Það þurfi miklu stærri blokkir og það hafi verið hugmyndir um að í hverri samningalotu séu að lágmarki þúsund manns sem eigi aðkomu að. Tuttugu manns geti lamað samfélagið „Hér erum við kannski með tíu eða tuttugu manns sem geta lamað hér hafnir, flugvelli og svo framvegis,“ segir Guðrún. Hún segist vilja tala fyrir því að launþegar, heildarsamtök og atvinnurekendur horfi á stóru myndina með opnum huga og hætti að hengja sig í fortíðina. Hér sé ein hæsta stéttarfélagsþátttaka í heimi og launþegar eigi ríkan rétt á Íslandi en það náist aldrei árangur ef stéttarfélög og launþegar nái ekki að krækja sig saman við atvinnurekendur um hvernig hægt sé að bæta samningamódelið þannig að launþegar eigi ávinning en einnig að fyrirtækin lifi og þau geti haldið áfram að búa til góð störf og greiða laun. „Við þurfum ekkert að finna upp hjólið ef það er búið að finna það upp annars staðar,“ segir Guðrún og að frekar eigi að aðlaga það að íslenskum veruleika. Hún segir Sjálfstæðisflokkinn hafa talað lengi fyrir því að það verði að efla heimildir ríkissáttasemjara til að stíga inn í deilur með fastari hætti og til dæmis fresta verkföllum. Hún telur að það sé vilji á þinginu til að breyta þessu ólíkt því sem var þegar flokkur hennar var síðast í ríkisstjórn. Þá hafi sá ráðherra sem sá um vinnumarkaðinn ekki deilt þessari skoðun. Verði að hætta höfrungahlaupi „Ég held að fólk ætti að taka það mjög til sín að gera þetta mikilvægi embætti ríkissáttasemjara, að færa því embætti auknar valdheimildir,“ segir hún og að það ætti að samræma það við það sem er á Norðurlöndum. Guðrún segir hörfungahlaupið hafa einkennt íslenska vinnumarkaðsmódelið síðustu ár og það gangi ekki upp. Það gangi auk þess ekki að opinberi geirinn leiði launaþróun, hún verði að koma frá útflutningsgreinunum. „Það eru útflutningsgreinarnar okkar sem greiða fyrir nauðsynjar okkar, tækni og aðföng til landsins og ef við veikjum útflutningsgreinarnar með of háum launahækkunum sem þær ráða ekki við, þá erum við að veikja lífskjör á Íslandi.“
Kjaramál Kjaraviðræður 2023-25 Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Bítið Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Mest lesið Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Viðskipti innlent Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Atvinnulíf Mikill munur á afkomu almannatengla Viðskipti innlent Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Viðskipti innlent Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Viðskipti innlent Krónan frystir verð til áramóta Neytendur Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Viðskipti innlent Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Viðskipti innlent Hægst á verðhækkun á matvöru Neytendur Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Sjá meira