Viðskipti innlent

Veru­legur sam­dráttur hjá Isavia

Árni Sæberg skrifar
Sveinbjörn Indriðason er forstjóri Isavia.
Sveinbjörn Indriðason er forstjóri Isavia. Vísir/Vilhelm

Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta á fyrri helmingi ársins 2026 var jákvæð um 3.338 milljónir króna samanborið við 4.245 milljónir króna fyrir sama tímabil á síðasta ári. Lækkunin milli ára nemur um 907 milljónum króna.

Í fréttatilkynningu um árshlutauppgjör Isavia segir að tekjur samstæðunnar hafi lækkað um 4.158 milljónir króna milli tímabila og numið 20.295 milljónum króna.

„Lækkunina á tekjum samstæðunnar má annars vegar rekja til þess að rekstur fríhafnarverslunar á Keflavíkurflugvelli færðist frá dótturfélaginu Fríhöfninni ehf. til nýs rekstraraðila í maí 2025 og hins vegar fækkaði farþegum um Keflavíkurflugvöll milli ára vegna gjaldþrots flugfélagsins Play,“ er haft eftir Sveinbirni Indriðasyni, forstjóra Isavia.

Heildarafkoma tímabilsins hafi verið jákvæð um 441 milljón króna samanborið við jákvæða afkomu upp á um 1.130 milljónir króna fyrir sama tímabil í fyrra.

Fjárfestingar samstæðunnar hafi numið um 5.659 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 6.107 milljónir króna fyrir sama tímabil í fyrra.   

Á fyrstu 6 mánuðum ársins hafi um 3,4 milljónir farþega farþega farið um Keflavíkurflugvöll, sem sé um 8 prósenta fækkun á milli ára.  

Lykiltölur úr árshlutauppgjöri samstæðu Isavia 2026: 

  • Tekjur: 20.295 milljónir króna 
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA): 3.338 milljónir króna 
  • Heildarafkoma eftir skatta: 441 milljón króna 
  • Handbært fé: 5.505 milljónir króna 
  • Fjárfestingar í rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum: 5.659 milljónir króna 
  • Eigið fé í lok tímabils: 53.125 milljónir króna 
  • Eiginfjárhlutfall: 42,06% 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×