Flug

Flug

Allt það helsta sem viðkemur flugi.

Fréttamynd

Þurfti að lenda flug­vél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana

Flugkennarinn Leandro Andrés Bertazzo, 42 ára, fannst látinn eftir að hafa stokkið út úr dyrum flugvélar og með því skilið nemanda sem hann var að kenna eina eftir svo hún varð að lenda vélinni sjálf. Atvikið átti sér stað yfir bænum Toledo í Argentínu á laugardag, samkvæmt yfirlýsingu frá ríkissaksóknara landsins sem birt var á þriðjudag.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hægara sagt en gert að ná lé­legum myndum

Frönsk kona sem þykir hinn versti ljósmyndari lauk hringferð um Ísland á dögunum. Markmið ferðalagsins var að reyna að ná lélegum myndum af íslenskri náttúru. Hún komst þó að því að það væri hægara sagt en gert.

Lífið
Fréttamynd

Rukka ekki lengur for­eldra fyrir að sitja við hlið barna sinna

Lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur verið skikkað til þess að breyta reglum sínum um sætaskipan fyrir fjölskyldur og leyfa foreldrum að sitja við hlið ungra barna sinna án þess að greiða gjald fyrir sætapöntun. Er þetta í kjölfar rannsóknar sem breska samkeppnis- og markaðseftirlitið (CMA) hóf nýverið til að kanna hvort stefna flugfélagsins, sem eftirlitið segir að leiði venjulega til gjalds upp á átta pund, eða þrettán hundruð krónur, hvora leið, sé „ósanngjörn“ samkvæmt neytendalögum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

„Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“

„Við erum búin að vera í ESB núna í 30 ár,“ segir Baldur Pétursson, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu. Baldur er eindreginn stuðningsmaður evrunnar. „EES-samningurinn er um það bil 75-80% aðgangur að ESB. Við höfum góða reynslu af 80% aðild að ESB, þannig að það er ekki nema 20% eftir,“ segir Baldur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Flug­maður féll í yfir­lið við lendingu í Kefla­vík

Flugmaður EasyJet féll í yfirlið við lendingu í Keflavík í morgun og var rauðu óvissustigi tímabundið lýst yfir á flugvellinum. Engan sakaði og gekk lendingin vel, að sögn Isavia. Á annan hundrað voru um borð í vélinni. Flugmaðurinn var með rænu þegar vélin lenti.

Innlent
Fréttamynd

Dómur burðardýrs mildaður

Maður á fertugsaldri var dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar í héraðsdómi fyrr á árinu fyrir fíkniefnalagabrot. Málinu var skotið til Landsréttar en þar var refsing ákærða til endurskoðunar og dómur hans mildaður úr þremur og hálfu ári í þrjú ár. 

Innlent
Fréttamynd

Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair segist ekki eiga von á því að fleiri flugferðum verði aflýst vegna mönnunarvanda eftir að félagið og Félag íslenskra atvinnuflugmanna skrifuðu undir sameiginlega yfirlýsingu í dag.

Innlent
Fréttamynd

For­eldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir nú­verandi og fyrr­verandi starfs­mönnum Icelandair

Foreldrar Sólons Guðmundssonar heitins ætla ekki að kæra úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um frávísun meiðyrðamáls þeirra gegn Icelandair. Þau hyggjast þess í stað óska eftir skýrslutökum yfir meðal annars núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair. Markmiðið er að afla gagna áður en tekin verður ákvörðun um framhald málsins.

Innlent
Fréttamynd

Vonast til að brottfararstöðin verði á Kefla­víkur­flug­velli

Starfsmenn í dómsmálaráðuneytinu leita að húsnæði á Suðurnesjum undir nýja brottfararstöð, þar sem flóttamenn sem vísa á úr landi verða vistaðir nauðugir. Nýr bæjarstjóri Reykjanesbæjar fagnar því að ríkið hyggist hafa stöðina fjarri íbúabyggð en hann vill helst hafa hana innan flugvallarsvæðisins í Keflavík.

Innlent
Fréttamynd

ESB gæti markað enda­lok um­deildra skil­mála Icelandair

Evrópuþingið og ráðherraráð Evrópusambandsins (ESB) hafa náð samkomulagi um uppfærðar reglur um réttindi flugfarþega. Tillögurnar fela meðal annars í sér að flugfélögum verði gert skylt að sjá til þess að hver sá sem ferðast með barni undir fjórtán ára aldri fái að sitja í næsta sæti án aukakostnaðar. Það sama á við um ófrískar konur og farþega með fötlun og skerta hreyfigetu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Minni­háttar röskun gæti haft al­var­legar af­leiðingar

Hætta vegna dróna á Íslandi er sögð lítil samkvæmt nýrri skýrslu frá íslenskrri hugveitu. Þar er ljósi varpað á „gloppur“ í drónavörnum Íslands. Vegna landfræðilegrar einangrunar landsins geti jafnvel minniháttar truflanir haft alvarlegar þjóðhagslegar afleiðingar.

Innlent
Fréttamynd

Oliver Tree látinn 32 ára að aldri

Bandaríski tónlistarmaðurinn Oliver Tree er látinn, 32 ára að aldri. Hann fórst í þyrluslysi í Rio de Janeiro í Brasilíu. Tree er þekktur fyrir lög á borð við Life Goes On, When I'm Down og Miss You.

Lífið
Fréttamynd

Límdu efnin á fætur sína

Tveir voru dæmdir í þriggja ára fangelsi fyrir innflutning á tveimur og hálfu kílói af kókaíni. Málinu var áfrýjað til Landsréttar sem staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjaness.

Innlent
Fréttamynd

Þrjár af­lýsingar hjá Icelandair

Boðað hefur verið til nýs fundar í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hjá ríkissáttasemjara. Þremur flugferðum Icelandair var aflýst í nótt og í morgun. Vélarnar áttu að koma til landsins frá Mílanó, Boston og New York.

Innlent